Fréttablaðið - 30.03.2007, Síða 4
Baráttusamtök eldri
borgara og öryrkja og Höfuðborgar-
samtökin hafa stofnað með sér Bar-
áttusamtökin. Markmið Baráttu-
samtakanna er að bjóða fram til al-
þingis í öllum kjördæmum og bjóða
fram til sveitarstjórna í sem flest-
um sveitarstjórnum vorið 2010.
Baráttusamtök eldri borgara og
Höfuðborgarsamtökin hafa ákveð-
ið að skipa hver um sig fimm menn
í stjórn Baráttusamtakanna. For-
maður verður fyrsta árið úr Bar-
áttusamtökum eldri borgara en ár-
lega verður skipt um formann.
Arndís Herborg Björnsdóttir, for-
maður Baráttusamtaka eldri borg-
ara, verður formaður fyrsta árið.
Baráttusamtökin ætla að berj-
ast fyrir því að lífeyris- og bótaþeg-
ar hafi aldrei lægri tekjur en sem
nemur 210 þúsund krónum á mán-
uði miðað við launavísitölu og að
tekjurnar fylgi vísitölunni. Heima-
vinnandi húsmæður og þeir sem
ekki hafa lífeyrisréttindi fái bætur
upp á sömu fjárhæð. Öryrkjar fái
einnig jafn háar bætur.
Samtökin berjast fyrir því að líf-
eyrisþegar og öryrkjar geti aflað
allt að 500 þúsundum króna í mán-
aðartekjur á mann á vinnumark-
aði án skerðinga. Skattleysismörk
verði lágmark 150 þúsund krónur
og hækki í samræmi við launavísi-
tölu frá 29. mars 2007.
„Kröfur okkar í dag eru skýlaus-
ar vegna þess að ríkisvaldið hefur
ekki í hyggju að gera neitt í málefn-
um eldri borgara og öryrkja. Þrátt
fyrir fjálglegt tal er greinilegt að
ekkert á að gera,“ segir Arndís.
Baráttusamtökin gera ráð fyrir
því að stefnumálin leiði til út-
gjaldaauka upp á um 20-25 millj-
arða króna á ári. Gert er ráð fyrir
tekjum á móti, til dæmis með
auknu afgjaldi af aflakvóta, lækk-
un eftirlauna þingmanna og ráð-
herra, hagræðingu í ríkisrekstri og
utanríkisþjónustu, átta prósenta
hátekjuskattþrepi á mánaðartekj-
ur yfir 700 þúsundum, að fjár-
magnstekjur verði skattfrjálsar
að 150 þúsund krónum. Einnig er
lagt til að komið verði á stóreigna-
skatti, að lífeyrissjóðum verði gert
skylt að reka dvalar- og hjúkrunar-
heimili aldraðra, ríkislóðir í Vatns-
mýri verði seldar fyrir 30 millj-
arða svo fátt sé nefnt.
Baráttusamtökin setja einnig
skipulags- og uppbyggingarmál á
oddinn. Samtökin vilja að strand-
byggðir fái eðlilegan aðgang að
fiskimiðum og að kvótinn verði
þjóðareign. Unnið er að uppstill-
ingu lista um allt land.
Vilja hærri lífeyri og
afnám skerðinga
Baráttusamtök eldri borgara og öryrkja og Höfuðborgarsamtökin ætla að bjóða
fram saman í vor. Framboðið vill hækka lífeyri eldri borgara og öryrkja í minnst
210 þúsund á mánuði og afnema skerðingu lífeyris upp að 500 þúsund krónum.
Kröfur okkar í dag eru
skýlausar vegna þess að
ríkisvaldið hefur ekki í
hyggju að gera neitt í málefnum
eldri borgara og öryrkja.
Bill
Clinton, fyrr-
verandi Banda-
ríkjaforseti,
mun heim-
sækja Færeyj-
ar síðla í maí-
mánuði næst-
komandi. Þetta
upplýsti tals-
maður vinnu-
veitendasam-
bands Færeyja, Tórun Ellings-
gaard.
Með Clinton í för verður Sví-
inn Hans Blix, fyrrverandi yfir-
maður vopnaeftirlits Sameinuðu
þjóðanna. Þeir Clinton og Blix
munu tala um ýmsar hliðar hnatt-
væðingarinnar á 500 manna mál-
fundi sem haldinn verður í Norð-
urlandahúsinu í Þórshöfn 24. maí.
Clinton heim-
sækir Færeyjar
Óskar Steingrímsson, sveitarstjóri Reyk-
hólahrepps telur skynsamlegt að hafnarbætur á
ferjubryggju og nýframkvæmd fyrir eyjarskeggja
í Flatey, til dæmis flotbryggjugerð, verði gerðar á
sama tíma. Einnig að þeim verði flýtt til fyrri hluta
sumars.
Forsvarsmanna Sæferða, sem reka ferjuna Baldur,
hafa bent á að betra væri að fá endurbætta bryggju
áður en ferðamannavertíðin hefst í sumar, en skips-
höfn ferjunnar veigrar sér við því að leggja þar að
landi þegar veður eru vond.
Óskar segir vel koma til greina að athuga hvort
hægt sé að flýta framkvæmdum, svo bryggjan verði
boðleg ferðamönnum sem heimsækja eyjuna fyrri
hluta sumars. Flateyjarbryggja þoli ekki þung högg í
núverandi ásigkomulagi.
Óskar hefur ekki séð tillögur sem Tryggvi Gunn-
arsson sendi samgöngunefnd í fyrra um endurbætur
og hefur ekki séð útlistun á fyrirætlunum Siglinga-
stofnunar, en segir að framkvæmdin verði skoðuð
nánar á næstunni.
Bryggjan í Flatey kom illa undan vetrinum og er
víða götótt.
Gætu gerst fyrri hluta sumars
Epli, gulrætur
og enginn viðbættur sykur!
Nýtt
bragð!
Aðeins 42 hitaeiningar í 100 g
og hentar flestum sem hafa
mjólkursykursóþol
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Búast má við spennu-
breytingum með tilheyrandi
blikki í rafljósum allt fram að
páskum á Austurlandi, vegna
spennusetningar og prófana á raf-
búnaði í Fljóstsdalsstöð og hjá
Fjarðaáli.
Nils Gústavsson hjá Lands-
neti segir að óþægindin ættu
að verða smávægileg og þau
stafi aðallega af prófunum hjá
Fjarðaáli. „Þetta er fyrst og
fremst þangað til þeir byrja
uppkeyrsluna, sem ætti að verða
um páskana,“ segir hann. Trufl-
anirnar eiga ekki að valda tjóni
á búnaði né straumleysi.
Raftruflanir
á Austurlandi
Svisslendingur var
dæmdur í tíu ára fangelsi í gær
fyrir að hafa
úðað máln-
ingu yfir vegg-
myndir af
konungi Taí-
lands. Er þetta
í fyrsta skipti
í áratug sem
útlendingur
er sakfelld-
ur á grundvelli
strangra laga
sem vernda konungsveldið.
Oliver Rudolf Jufer, sem er
tæplega sextugur, játaði sig sekan
um fimm ákæruatriði drottins-
svika. Skipaður lögmaður Jufers
sagði dóminn viðeigandi miðað
við glæpi hans.
Jufer var drukkinn við verkn-
aðinn að sögn lögmanns hans.
Dæmdur fyrir
drottinssvik
Fjórum til sex ein-
staklingum sem þurfa á öndunar-
vélum að halda vegna slysa eða
sjúkdóma verður nú gert kleift
að fara ferða sinna með hjálp að-
stoðarmanna í stað þess að vera
bundnir öndunarvélum á hjúkr-
unarstofnun. Er þetta hluti
tveggja ára tilraunaverkefn-
is sem ríkisstjórnin hefur ákveð-
ið. „Þetta varðar sjálfræði, lífs-
gæði og mannlega reisn,“ segir
Magnús Stefánsson félagsmála-
ráðherra. „Þetta er stórkostleg-
ur áfangi í því að veita tilteknum
hópi einstaklinga tækifæri til að
búa áfram heima en ekki á stofn-
un,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra.
Ekki lengur
bundnir spítala