Fréttablaðið - 30.03.2007, Síða 6
Ætti að banna reykingar við
akstur?
Ertu sammála hugmyndum
dómsmálaráðherra um varalið
lögreglunnar?
„Það þarf klárlega að
gera eitthvað í sæstrengjamálum
ef áætlanir um netþjónabú eiga að
verða að veruleika,“ segir Hall-
dór Jörgensson, framkvæmda-
stjóri Microsoft á Íslandi. Hug-
myndir um íslenskt netþjónabú
á vegum Microsoft eru á viðræð-
ustigi eins og fram kom í Frétta-
blaðinu í gær.
„Ég held að um leið og einhver
segist vera tilbúinn að gera eitt-
hvað svona á Íslandi þá komist
hjólin á skrið,“ segir Halldór. „Að
öðru leyti vil ég sem minnst um
málið segja.“
Íslenska gagnavistunarfyrir-
tækið Data Íslandia hefur einn-
ig sýnt áhuga á því að setja upp
stórar gagnageymslur hér á landi,
sem myndu þjónusta erlend stór-
fyrirtæki.
Guðmundur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Farice hf., segist
eiga von á því að ákvörðun varð-
andi nýjan sæstreng, Farice-2,
verði tekin fljótlega eftir páska.
Ætlunin sé að gera botnrannsókn-
ir í sumar og leggja hann svo sum-
arið 2008, annað hvort til Skot-
lands eða Írlands.
„Það er alveg á hreinu að starf-
semi á borð við netþjónabú og
gagnageymslur koma ekki hingað
nema nýi strengurinn sé tilbúinn,“
segir hann.
Loftferðasamning-
ar við Danmörku, Noreg og Sví-
þjóð voru undirritaðir í utanríkis-
ráðuneytinu í fyrradag. Að því er
segir í fréttatilkynningu frá ráðu-
neytinu koma samningarnir í stað
eldri samninga frá 1950 til 1960
og fela í sér aukin flugréttindi ís-
lenskra flugrekenda.
Í samningunum við Noreg og Sví-
þjóð felast meðal annars ótakmörk-
uð réttindi til flugs til þriðju ríkja,
en í samningnum við Danmörku eru
þessi réttindi rýmkuð.Einnig eru
réttindi til farmflugs frá þriðju ríkj-
um til Norðurlandanna þriggja án
viðkomu á Íslandi ótakmörkuð.
Skrifað undir
flugsamninga
Dorrit Moussai-
eff forsetafrú liggur nú lærbrotin
á sjúkrahúsi í Aspen í Colorado-ríki
Bandaríkjanna.
Forsetafrúin lærbrotnaði og brák-
aði önnur bein þegar hún lenti í slysi
á skíðum síðdegis á þriðjudaginn.
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu forseta fór Dorrit í nokk-
uð stóra aðgerð, en líður vel eftir at-
vikum. Hún þarf að liggja á sjúkra-
húsinu í nokkra daga enn.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
var staddur í Washington í gær,
en stytti dvöl sína þar og flaug til
konu sinnar í gærkvöld. Hann mun
dveljast hjá henni fram á sunnu-
dag, en þá hefst dagskrá heim-
sóknar hans í Bandaríkjunum að
nýju.
„Beinbrot almennt séð geta tekið
allt frá nokkrum vikum til tveggja
mánaða að gróa,“ segir Aðalsteinn
Guðmundsson læknir, en hann
situr í stjórn Beinverndar. Aðal-
steinn segir að erfitt sé að meta ein-
stök mál úr fjarlægð, en þegar fólk
brotni eftir miðjan aldur, sé undir-
liggjandi orsök yfirleitt beinþynn-
ing. Það sé þó engan veginn einhlítt,
heldur fari eftir eðli áverka hverju
sinni.
Liggur lærbrotin í Aspen
Horfur eru á góðri
afkomu í rekstri hins opinbera á
þessu ári en líklegt að rekstraraf-
gangurinn snúist í halla á næsta
ári. Horfur fyrir árið 2009 eru
talsvert verri. Þetta kemur fram
í nýjasta hefti Peningamála, sem
Seðlabanki Íslands gefur út.
Með lækkandi tekjum og vax-
andi útgjöldum snýst rekstraraf-
koma ríkisins úr rúmlega fimm
prósenta afgangi árið 2006 í tæp-
lega sex prósenta halla árið 2009.
Tekjur lækka 2008 vegna þess að
skattar fyrirtækja vaxa ekki jafn
mikið og áður, einkaneysla og
innflutningur dragast saman og
neysluskattar skila minni tekjum.
Útgjöld ríkissjóðs hækka um tæp
fimm prósent að raungildi og þá
mestmegnis vegna stóraukinna
fjárfestinga.
Árið 2009 lækka tekjur ríkis-
sjóðs um níu prósent að raungildi,
eða um tæpa 30 milljarða króna
af sömu ástæðum og árið 2008. Að
auki lækka vaxtatekjur í takt við
lækkandi innlenda vexti. Útgjöld
ríkissjóðs aukast um 2,5 prósent,
til dæmis vegna meira atvinnu-
leysis. Halli ríkissjóðs nemur um
60 milljörðum króna.
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra segir að langtímaáætlun
fjármálaráðuneytisins geri ráð
fyrir að tekjur og gjöld verði
nokkurn veginn í jafnvægi en
álver og stóriðja séu ekki inni í
þeim áætlunum.
„Það verður áfram vandasamt
að stýra ríkissjóði og efnahags-
málum þjóðarinnar og gera það
af skynsemi og yfirvegun og stór
högg væru sennilega það hættu-
legasta sem gerðist,“ segir Árni.
„Tíðin hefur verið mjög hag-
stæð á undanförnum árum. Rík-
issjóður stendur mjög vel í dag.
Hann er undir það búinn að það
komi erfiðari tímar. Hann getur
tekið á móti því og á að gera það.
Það er aðalatriði málsins,“ segir
Einar Oddur Kristjánsson, vara-
formaður fjárlaganefndar.
Gunnar Ólafur Haraldsson, for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands, segir spá Seðla-
bankans fyrir næstu árin ekki
koma á óvart, hún sé í samræmi
við spár á markaðnum. Óviss-
an aukist eftir því sem spáð er
lengra fram í tímann og snúist
um stóriðjuframkvæmdir.
„Fljótlega eftir kosningar ætti
að koma í ljós hverjar horfurn-
ar eru í stóriðjumálum. Bankinn
spyrnir þar greinilega við fótum.
Ef farið verður í miklar stóriðju-
framkvæmdir verði áframhald-
andi aðhald í peningamálum,“
segir hann.
Umskipti í ríkisfjár-
málum næstu árin
Horfurnar í rekstri hins opinbera fara versnandi næstu árin. Rekstrarafgangur
snýst í halla strax á næsta ári og versnar enn árið 2009. Óvissan er þó talsverð.
Ríkissjóður er undir þetta búinn, að mati varaformanns fjárlaganefndar.