Fréttablaðið - 30.03.2007, Qupperneq 16
Fasteignafélagi› Sto›ir hf., kt. 450599-3529, hefur
gefi› út l‡singu vegna skráningar skuldabréfa sem
Kauphöll Íslands hefur samflykkt fyrir hönd
Fjármálaeftirlitsins og gert a›gengilega almenningi
frá og me› 30. mars 2007.
Eftirfarandi skuldabréfaflokkur hefur veri› gefinn út:
Skuldabréfaf lokkur a› f járhæ› kr .
3.000.000.000 var gefinn út flann 21. ágúst
sl. og er au›kenni flokksins í Kauphöll Íslands
STOD 06 2. Bréfin ver›a skrá› í Kauphöll
Íslands flann 30. mars 2007. Hver eining
bréfanna er kr. 5.000.000. Skuldabréfin eru
óver›trygg› og skulu bera 3ja mána›a
REIBOR vexti auk 1,9% álags. Höfu›stóll
bréfanna skal endurgrei›ast flann 21. ágúst
2011, en vaxtagjalddagar skulu vera fjórum
sinnum á ári, sá fyrsti var flann 21. nóvember
2006 og sí›an á flriggja mána›a fresti
L‡singu flessa er hægt a› nálgast hjá útgefanda
Fasteignafélaginu Sto›ir hf., Kringlunni 4 - 12, 103
Reykjavík og á vefsetri Kauphallar Íslands
www.news.icex.is og á vefsetri útgefanda
Fasteignafélagsins Sto›a hf. www.stodir.is.
Umsjónara›ili skráningarinnar er Kaupfling banki hf.
Reykjavík 30. mars 2007
Verði Jón Ásgeir Jó-
hannesson eða Tryggvi Jónsson
sakfelldir fyrir eitthvert af þeim
brotum sem þeir eru ákærðir
fyrir í Baugsmálinu mega þeir
ekki sitja í stjórnum fyrir-
tækja eða stýra þeim næstu
þrjú árin. Jón Ásgeir yrði
því að hætta störfum sem
forstjóri Baugs Group.
Þetta kom fram í máli
Gests Jónssonar, verjanda Jóns
Ásgeirs, og Jakobs R. Möller, verj-
anda Tryggva, í munnlegum mál-
flutningi í málinu í gær.
Þeir vísuðu í 66. grein hlutafé-
lagalaga, þar sem segir: „Stjórn-
armenn eða framkvæmdastjórar
skulu vera lögráða, fjár síns ráð-
andi og mega ekki á síðustu þrem-
ur árum hafa í tengslum við at-
vinnurekstur hlotið dóm fyrir
refsiverðan verknað samkvæmt
almennum hegningarlögum eða
lögum um hlutafélög, einkahluta-
félög, bókhald, ársreikninga,
gjaldþrot eða opinber gjöld.“
Vegna þessa ákvæðis er í raun
verið að svipta sakborninga at-
vinnu sinni, verði þeir fundnir
sekir, sagði Jakob. Slík óbein refs-
ing hljóti að vega þungt í huga
dómenda.
Sigurður Tómas Magnússon,
settur ríkissaksóknari í Baugs-
málinu, sagði ekki duga að benda
á þessar afleiðingar. Hægt sé að
líkja þessu við leigubílstjóra sem
sé sakfelldur fyrir umferðarlaga-
brot og sviptur ökuréttindum. Þó
refsingin hafi áhrif á atvinnu-
starfsemi hans eigi það ekki að
verða til þess að honum sé ekki
gerð refsing.
Jakob dró í gær enga dul á það
að Tryggvi hefði gert mistök þegar
hann færði andvirði kredityfirlýs-
ingar frá færeyska fyrirtækinu
SMS sem tekjur í hálfsársuppgjöri
Baugs sumarið 2001. Mistökin eigi
sér þó skýringar, Tryggvi hafi
þurft að gera margt á stuttum
tíma þegar hann kom til lands-
ins þegar verið var að ljúka
uppgjörinu.
„Þarna var að sjálf-
sögðu enginn ásetning-
ur um að blekkja eða færa bók-
haldið í sjálfu sér á rangan hátt,
enda ekki Tryggvi sjálfur sem
færði bókhaldið. Þetta var ekki
ásetningur heldur afsakanlegt gá-
leysi mjög önnum kafins manns,“
sagði Jakob.
Gestur Jónsson sagði skýring-
ar Jóns Ásgeirs og Tryggva um
mánaðarlegar greiðslur Baugs til
Nordica, félags Jóns Geralds Sul-
lenberger, ekki hafa tekið breyt-
ingum. Tryggvi og Jón Ásgeir eru
ákærðir fyrir að draga fé úr Baugi
til að fjármagna hlut Fjárfestinga-
félagsins Gaums í skemmtibátn-
um Thee Viking, en Gaumur er
fjölskyldufyrirtæki Jóns Ásgeirs.
Gestur sagði rannsókn lögreglu
vegna þessa ákæruliðar gagnrýni-
verða. Í fyrsta lagi hafi ekki verið
kannað í hvað Jón Gerald hafi eytt
peningunum sem Baugur greiddi
til Nordica. Endurskoðendur verj-
enda hafi ekki séð samhengi milli
mánaðarlegra greiðslna frá Baugi
og greiðslna vegna Thee Viking.
Í öðru lagi hafi Jón Ásgeir og
fleiri bent á að greiðslurnar til
Nordica hafi átt sér hliðstæðu í
viðskiptum við danska fyrirtækið
Simon‘s Agentur, sem hafi gegnt
sama hlutverki fyrir Baug og
Nordica. Það hafi ekki verið rann-
sakað.
Yrði að hætta
sem forstjóri
Verði sakborningar í Baugsmálinu sakfelldir mega
þeir ekki stýra fyrirtækjum í þrjú ár. Hlýtur að vega
þungt í huga dómenda segir verjandi. Eins og leigu-
bílstjóri sem brýtur umferðarlög segir sækjandi.
BAUGS M Á L I Ð
Vísa á ákæru á hendur
Jóni Gerald Sullenberger, einum
hinna ákærðu í Baugsmálinu, frá
dómi á grundvelli sömu sjónarmiða
og urðu til þess að ákæru gegn olíu-
forstjórunum var vísað frá dómi
nýverið. Þessa krafðist Brynjar
Níelsson, verjandi Jóns Geralds,
þegar hann flutti málið fyrir hönd
skjólstæðings síns í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Með þessu vísaði Brynjar til þess
að Jón Gerald hafði stöðu vitnis í
málinu við rannsókn þess, og veitti
lögreglu upplýsingar um viðskipti
sín við Baug. Þegar settur ríkissak-
sóknari hafi tekið við málinu hafi
Jón Gerald verið kallaður til yfir-
heyrslu, en þá með stöðu sakborn-
ings. Honum hafi verið rétt skýrsla
sem hann gaf lögreglu sem vitni,
og spurður hvort hann stæði við
það sem þar hafi komið fram. Hann
hafi svarað því játandi, og skömmu
síðar verið birt ákæra.
„Ég held að þetta sé það galnasta
sem ég hef nokkurn tímann heyrt,“
sagði Brynjar um þessi vinnubrögð
lögreglu. Vitni geti verið refsað
fyrir að greina rangt frá, en sak-
borningi ekki. Og ef Jón Gerald
hefði neitað því að staðfesta skýrsl-
una hefði hann trúlega verið ákærð-
ur fyrir ranga skýrslugjöf.
Ef ákæru á hendur Jóni Gerald
verður ekki vísað frá dómi sagði
Brynjar að sýkna ætti umbjóð-
anda sinn. Ekki væri rétt sem verj-
andi annars sakbornings, og raun-
ar sækjandi líka, hafi haldið fram
að Jón Gerald hafi játað saknæmt
brot. Hann er ákærður fyrir að að-
stoða hina ákærðu við bókhalds-
brot með því að útbúa tilhæfulaus-
an kreditreikning.
„Það er ekki refsivert að útbúa
tilhæfulausan reikning,“ sagði
Brynjar. Ekkert bendi til þess að
reikningurinn hafi verið til staðar
þegar færslan sem ákært er vegna
var færð í bókhald Baugs. Auk þess
hafi reikningurinn verið útbúinn
í Bandaríkjunum, og til að dæmt
verði fyrir það hér á landi verði
saksóknari að vera búinn að sýna
fram á að slíkt sé saknæmt í Banda-
ríkjunum líka, sem hann hafi ekki
gert.
Meðferðin á Jóni Gerald til skammar