Fréttablaðið - 30.03.2007, Qupperneq 22
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Gömul ljóðskáld víkja
fyrir þeim yngri
Óhreinir peningar?
Sunnudagurinn 1. apríl er
upprisudagur íslenskra
stangveiðimanna. Þá hefst
silungsveiðin í nokkrum ám
og vötnum. Jón Mýrdal er
klár í slaginn.
„Veturinn fór í að horfa á veiði-
myndbönd og plana næsta sumar,“
segir Jón Mýrdal, stangveiðimað-
ur og blaðamaður.
Löng bið fyrir Jón og aðra veiði-
menn er senn á enda. Á sunnudag
hefst stangveiði sumarins. Jón
verður þá mættur að vatnsbakk-
anum. „Ég get ekki sleppt því,“
segir hann þótt ákvörðunarstað-
urinn sé að vísu enn ekki fastá-
kveðinn. „Það er svo margt sem
kemur til greina. Kannski fer ég
í Vífilsstaðavatn.“
Jón er bjartsýnn á að stangveið-
in hefjist með glæsibrag þetta
árið. „Vorið er svo miklu betra
nú en það var í fyrra. Þá var allt
frosið og snjór yfir öllu,“ rifjar
hann upp með léttum hrolli – þótt
kuldinn hafi auðvitað ekki haldið
aftur af honum þá.
Stangveiðimenn þekkja Jón frá
vinsælli veiðiumfjöllun sem hann
annaðist í DV í fyrrasumar undir
nafninu Veiðimál Mýrdals. Flutti
Jón þar líflegar fréttir af gangi
mála við árbakka og veiðivötn.
Sjálfur hóf Jón sinn veiðmanns-
feril sem smástrákur uppi í Borg-
arfirði. „Þetta var einfaldlega í
blóðinu. Ég byrjaði á því að veiða
kola á Litlubryggju í Borgarnesi.
Síðan hef ég bara alls ekki getað
hætt,“ segir hann.
Fyrir utan að leggja drög að
veiðiferðum komandi sumars og
stúdera veiðimyndbönd þá hefur
Jón nýtt veturinn til að huga að
veiðigræjunum sínum. „Maður
byrjar að fara í veiðibúðirnar í
janúar að skoða og kaupa flugur
og endurnýja það sem þarf. Og
kannski bæta við einhverju nýju
dóti.“
Sumarið í heild er þó alls ekki
skipulagt í þaula hjá Jóni. „Mér
leiðist að vera með allt fast fyr-
irfram langt fram á sumar. En ég
fer alltaf á vissa staði, til dæmis í
Þingvallavatn og í Varmá og Þor-
leifslæk. Í sumar ætla ég í Vatns-
dalsá og Laxá í Kjós,“ upplýsir
Jón.
Spenntastur segist Jón í augna-
blikinu vera fyrir túr í Minnivalla-
læk upp úr miðjum apríl.
„Þar eru tíu punda urriðar á
sveimi. Ætli ég verði ekki and-
vaka næstu vikurnar,“ segir Jón
og heldur áfram að dytta að veiði-
græjunum.
Veiðimenn andvaka af spenningi
Skoppa og Skrítla í Ameríku
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
Sendu SMS JA HFF á
1900 og þú gætir unnið!
Vinningar eru HAPPY FEET á DVD,
DVD myndir, Fullt af Pepsi og margt fleira!
„Mig langar til að hjálpa fá-
tæku fólk á Filippseyjum. Marg-
ir eiga enn um sárt að binda eftir
flóð, auk þess sem mikill skort-
ur á nauðsynjum ríkir á sumum
stöðu,“ segir María Priscilla Za-
noria, ræðismaður Filippseyinga
á Íslandi. Hún stendur ein fyrir
fatasöfnun þessa dagana. Afrakst-
urinn ætlar hún svo að senda til
Filippseyja.
María stendur sjálf straum
að flutningi söfnunargámsins
og mun fylgja honum til Filipp-
seyja og sjá til þess að varning-
urinn komist í réttar hendur. „Ég
hvet fólk til að láta eitthvað sem
það er hætt að nota í söfnunina.
Það þurfa ekki endilega að vera
föt heldur bara eitthvað sem fólk
sér fram á að geti komið öðrum
að notum. Til dæmis gömul barna-
leikföng,“ segir María sem telur
mun ánægjulegra að gefa öðrum
en safna munum upp í skápa.
Annir Maríu eru miklar þessa
daganna enda virðist hún láta flest
mál sig varða. „Nú er ég með fjóra
Pólverja heima hjá mér. Einn
þeirra hafði lent í erfiðum veik-
indum. Það kostaði fjölskylduna
mikið og því misstu þau húsnæð-
ið,“ segir filippseyski ræðismað-
ur sem þótti sjálfsagt að skjóta
skjólshúsi yfir fólkið í vandræð-
um þeirra á Íslandi.
Þeim sem vilja leggja Maríu lið
við söfnunina er bent á að hægt er
að skilja föt eða aðra muni eftir
við Auðbrekku 18 í Kópavogi.
Safnar fyrir Filippseyinga og
skýtur skjólshúsi yfir Pólverja
Gott mál og
punktur