Fréttablaðið - 30.03.2007, Qupperneq 24
fréttir og fróðleikur
Aðaluppistaðan í framleiðslu á áli
Þarft nám
Ný lög um fjármál stjórn-
málaflokka tóku gildi um
síðustu áramót. Við gildis-
tökuna jukust framlög til
þeirra stjórnmálaflokka
sem þegar sitja á þingi um
rúmlega 50 prósent og tak-
mörk voru sett á þau fram-
lög sem einstaklingar og
aðrir lögaðilar mega veita
til stjórnmálasamtaka. Í
rökstuðningi laganna segir
að markmið þeirra sé „að
auka traust á stjórnmála-
starfsemi og efla lýðræði“.
Eftir gildistöku laganna jukust
bein framlög til starfsemi stjórn-
málaflokkanna fimm úr 200 millj-
ónum á ári í 310 milljónir. Fram-
lögunum er skipt milli þeirra
stjórnmálasamtaka sem fengu að
minnsta kosti einn mann kjörinn
eða 2,5 prósent atkvæða í síðustu
kosningum. Fimm stjórnmála-
samtök uppfylla þau skilyrði:
Sjálfstæðisflokkur, Framsókn-
arflokkur, Samfylking, Vinstri-
hreyfingin og Fjálslyndi flokk-
urinn.
Þegar atkvæðagreiðsla um
lögin fór fram 9. desember síð-
astliðinn voru það fulltrúar þess-
ara fimm stjórnmálasamtaka
sem samþykktu þau. 42 sögðu
já, átján voru fjarstaddir en þrír
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
sátu hjá. Enginn þingmaður sagði
nei.
Flokkarnir fimm hafa frá árinu
2001 einnig fengið greidd fram-
lög vegna nýrrar kjördæmaskip-
unar og breyttum aðstæðum þing-
manna af þeim sökum. Í ár skiptast
50 milljónir króna milli flokkanna
vegna þessa. Því renna samtals
360 milljónir úr ríkissjóði til fimm-
flokkanna á þessu ári, eða um 5,3
milljónir vegna hvers þingmanns
þeirra. Þar er ekki innifalinn neinn
sá kostnaður sem hlýst af störfum
Alþingis, en sú upphæð nemur tæp-
lega 2,3 milljörðum árlega.
Háværar gagnrýnisraddir hafa
heyrst vegna laganna úr röðum
þeirra framboða sem hyggjast
bjóða fram til Alþingis í fyrsta
sinn í vor. Þau halda því fram að
lögin geri lítið annað gagn en að
festa núverandi stjórnmálaflokka
í sessi og koma á sama tíma í veg
fyrir að ný öfl komist að kjötkötl-
unum.
Arndís Björnsdóttir, formað-
ur Baráttusamtaka eldri borgara
og örykja, sagði nýverið að lögin
gerðu það að verkum að „það er
verið að festa samtryggingarspill-
inguna, sem er hjá öllum núver-
andi þingflokkum, í sessi. Alþing-
ismenn eiga svo öruggt líf og hafa
það svo gott að þeir vilja ekki fá
neina fleiri í hópinn. Það er svo
mikil spilling og rotnunarhugar-
far hjá því fólki sem kemst á þing
núorðið að það er varla hægt að
greina á milli flokkanna. Þessi lög
minnka traust á stjórnnmálahreyf-
ingum og draga úr lýðræðinu.“
Ómar Ragnarsson, formaður Ís-
landshreyfingarinnar – lifandi
lands, hefur talað á svipuðum
nótum og sagt að flokkur hans
hafi ekki bolmagn til að auglýsa
eins mikið og flokkarnir fimm
sem eiga þegar fulltrúa á Alþingi.
„Hinir flokkarnir hafa sjálfir
skammtað sér 360 milljónir króna
úr ríkissjóði með nýjum lögum um
fjármál flokkanna, á sama tíma og
við fáum ekki krónu.“
Fimmflokkarnir gerðu á þriðju-
dag með sér samkomulag um að
takmarka auglýsingakostnað í að-
draganda komandi kosninga við
28 milljónir króna á hvern flokk.
Var það kynnt sem „leið til að
koma böndum á útgjöld vegna
kosningabaráttunnar“.
Ómar sagði í Fréttablaðinu
í vikunni að Íslandshreyfing-
in myndi alveg örugglega eyða
mun minni fjárhæð í auglýsing-
ar en samkomulag flokkanna mið-
aði við. „Það er engin hætta á því
að við munum nálgast nokkurn af
þessum flokkum í auglýsingum
og því hefur takmark á auglýsing-
um lítið að segja fyrir okkur. Það
er ekkert víst að við munum geta
auglýst neitt í sjónvarpi, nema
með því að skrapa saman pening-
um.“
Tilgangur laganna var sagður sá að
tryggja gagnsæi og draga úr hags-
munaárekstrum. Einu hagsmuna-
árekstrarnir sem þau virðast þó
draga úr eru á milli þeirra flokka
sem þegar sitja á þingi og gagn-
sæið er tryggt með því að setja þá á
fjárlög líkt og opinberar stofnanir.
Markmið laganna er sagt vera
það að „auka traust á stjórnmála-
starfsemi og efla lýðræðið“. Lögin
horfa þó ekki þannig við þeim
stjórnnmálaöflum utan þings sem
hyggjast bjóða fram. Þau sjá lögin
mun fremur sem fjárhagslegan lýð-
ræðisþröskuld sem hefti aðgengi
þeirra að stjórnmálaþátttöku. Við-
brögðin bera þess heldur ekki
merki að traust á stjórnmálastarf-
semi hafi aukist mikið við lagasetn-
inguna heldur mun fremur festa
fimmflokkana á Alþingi í sessi.
Útilokunaraðferð fimmflokkanna
SMSLEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
Kó
pa
vo
gi
. M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
Kó
pa
vo
gi
. M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
SENDU SMS JA FHF Á 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, DVD MYNDIR
FULLT AF PEPSI OG MARGT FLEIRA!
FYNDNASTA SPENNUMYND ÁRSINS!
FRUMSÝND 30. MARS
NÝ GRÍNMYND FRÁ ÞEIM SEM GERÐU „SHAUN OF THE DEAD“
9
HVER
VINNUR!