Fréttablaðið - 30.03.2007, Side 42
BLS. 2 | sirkus | 30. MARS 2007
Heyrst hefur
Lýður á nýjum bíl
Lýður Guðmundsson, starfandi
stjórnarformaður Existu og annar
Bakkabræðra, er kominn á nýjan Range
Rover. Sá er
svartur og af
gerðinni Vogue,
sem er lúxustýpan
í Range Rover-
línunni. Lýður fer
sömu leiðir og
áður, en hann
leigir bílinn af
Bílaleigunni Geysi
í Reykjanesbæ. Í
fyrra var Lýður
með þrjá
silfurlitaða bíla á leigu frá bílaleigunni,
einn Range Rover, einn Porsche Cayenne
og einn Mercedes Benz-sportbíl, en svo
virðist sem hann hafi skilað Range
Rovernum og Benzinum. Það er sagt að
þegar ökumenn skipta úr gráum yfir í
svartan bíl þá sé nokkuð öruggt að þeir
leiti eftir meiri spennu í tilverunni. Á það
við um Lýð?
Unnur Birna bíður eftir
handriti
Fegurðardrottningin Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir bíður nú eftir því að fá
sent handritið að Hollywood-mynd sem
henni hefur verið boðið að leika í.
Tilboðið fékk Unnur Birna þegar hún
dvaldi á Indlandi við módelstörf í byrjun
þessa árs en það kom frá kvikmynda-
framleiðendum sem eru með þeim
stærstu í indverska Bollywood-heiminum
og ætla að hasla sér völl í Hollywood.
Heimildir Sirkuss herma að Unnur Birna
ætli ekki að taka ákvörðun um hvort hún
reyni fyrir sér í Hollywood fyrr en
handritið að myndinni kemur til hennar.
Metsöluhöfundurinn Arnaldur
Indriðason hefur gert það gott með
glæpasögum sínum undanfarin ár og
er án nokkurs vafa sá íslenski
rithöfundur sem þénað hefur mest á
vinnu sinni, bæði hér heima og á
erlendum vettvangi, þó sérstaklega í
Þýskalandi og Bandaríkjunum.
Arnaldur gaf út bókina Konungsbók
fyrir síðustu jól og var hún, líkt og
fyrri bækur hans,
vinsælasta
skáldverk ársins.
Krimmakóngur-
inn hefur undanfarin ár ekið um á dökkbláum
Mitsubishi Pajero Sport en ákvað að
bæta við bílaflotann í síðustu viku og
fjárfesta í glænýjum BMW 520d.
Bíllinn er skjannahvítur og óhætt að
segja að Arnaldur taki sig vel út við
stýrið á glæsikerrunni. Slíkur bíll
kostar um fimm milljónir frá
umboðsaðila. Þeir þykja afar liprir og
eyða mjög litlu.
Arnaldur býr á Seltjarnarnesi en
hann er ekki sá eini sem ekur um á
slíkum BMW á Nesinu. Fegurðar-
drottningin fyrrverandi Hrafnhildur
Hafsteinsdóttir ekur einnig um á
einum slíkum en hún fékk hann að
gjöf frá unnusta sínum, Bubba
Morthens, síðastliðið sumar.
Krimmakóngur kaupir sér Bimma
FLOTTUR Eins og sjá má á þessum bíl Hrafnhildar Hafsteinsdóttur er BMW-inn ekkert
slor.
BÆTIR VIÐ
BÍLAFLOTANN
Krimmakóngur-
inn Arnaldur
Indriðason hefur
keypt sér
hvítan BMW.
N ei, nei, nei, nei, það er ekki rétt að við Jógvan séum byrjuð
saman,“ segir söngkonan Guðný Pála
Rögnvaldsdóttir um sögusagnir þess
efnis að hún og færeyski folinn
Jógvan Hansen séu byrjuð saman.
„Við erum bara vinir,“ segir Guðný
Pála en hún og Íris Hólm skipuðu
dúettinn GÍS sem féll úr leik í
fjögurra liða úrslitum X-Faktor
keppninnar síðastliðinn
föstudag eftir frækilega
frammistöðu.
Guðný Pála, sem er
nýskilin við athafnamann-
inn Baldvin Arnar
Samúelsson og á með
honum þriggja ára dóttur,
segist líka hafa heyrt að samband
hennar við Jógvan hafi verið ástæða
skilnaðarins. „Þetta er algjört
kjaftæði. Við erum ekki einu sinni
saman, höfum aldrei verið saman
heldur erum bara góðir vinir. Og
ekkert annað. Skilnaðurinn hafði
ekkert að gera með eitthvað ímyndað
samband mitt og Jógvans,“ segir
Guðný Pála og er auðsjánlega mikið
í mun að leiðrétta þessa hvim-
leiðu kjaftasögu.
FÆREYSKI FOLINN JÓGVAN OG GUÐNÝ Í GÍS ERU EKKI NÝJASTA PAR BÆJARINS
„VIÐ ERUM BARA VINIR“
GLÆSILEG Guðný Pála þykir afar
myndarleg ung kona.
SIRKUSMYND/SIGURJÓN RAGNAR
FÆREYSKUR FOLI Það er mat flestra
að Jógvan sé ekki bara frábær söngvari
heldur einnig löðrandi í kynþokka.
SIRKUSMYND/SIGURJÓN RAGNAR
GJÖF FRÁ BUBBA Hrafnhildur fékk
bílinn síðasta sumar sem gjöf frá
unnusta sínum, Bubba Morthens..
Mikið hefur verið rætt og ritað um
kynþokka og heillandi yfirbragð Jógvans
Hansen í X-Faktor þáttunum. Þessi 28 ára
gamli færeyski hárgreiðslumaður hefur
verið helsta umtalsefni kvenna á landinu
frá því að keppnin hófst og meðal annars
nælt sér í viðurnefnið „Færeyski folinn“.
Og hann er ekki bara vinsæll hjá
konunum því Páli Óskari X-Faktor
dómara hefur verið tíðrætt um
fegurð og útgeislun kappans, svo
mikið reyndar að það hefur farið
fyrir brjóstið á samdómara
hans Einari Bárðarsyni sem
er með Jógvan í sínum hópi.
Annars er það að frétta
af X-Faktor að þriggja liða
úrslit fara fram í kvöld,
föstudagskvöld, og
kemur þá í ljós hvaða
tvö atriði komast í
úrslitaþáttinn eftir viku.
Færeyingurinn Jógvan,
Hara-systurnar úr
Hveragerði og hin
sextán ára gamla
Guðbjörg berjast um
sætin tvö sem í boði
eru.
oskar@frettabladid.is
„BARA GÓÐIR VINIR“ Það fór
vel á með Jógvan og GÍS-
stelpunum Guðnýju Pálu og
Írisi Hólm í 35 ára afmæli
Einars Bárðarsonar í
Smáralindinni á laugardag.
SIRKUSMYND/DANÍEL
Afmælisboð hjá Jónínu Ben á
morgun
Athafnakonan og detox-mógúllinn Jónína
Benediktsdóttir heldur upp á fimmtugsaf-
mæli sitt á morgun. Jónína býður til
stórveislu á heimili sínu að Stigahlíð 70.
Búist er við fjölmenni í
afmælið enda Jónína
vinsæl og vinamörg með
eindæmum. Veislan
byrjar klukkan 19 og
verður væntanlega
boðið upp á
heilsurétti að hætti
hússins.
Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás
Borgarnes - Stykkishólmur - Grundarfjörður - Búðardalur - Ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur
Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður
Fáskrúðsfjörður - Höfn - Neskaupstaður - Reyðarfjörður - Eskifjörður
www.lyfja.is - Lifið heil
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/L
YF
3
68
12
0
3/
07
FÁÐU REYKLAUSA BÓK
Í NÆSTU VERSLUN
LYFJU
BETRI LEIÐ TIL
AÐ HÆTTA
FRÍ BÓK