Fréttablaðið - 30.03.2007, Qupperneq 46
BLS. 6 | sirkus | 30. MARS 2007
U mboðsmaðurinn og X-faktor-dómarinn Einar Bárðarson hélt upp á
35 ára afmæli sitt með pomp
og prakt í Vetrargarðinum í
Smáralindinni á laugardag-
inn, nánar tiltekið á X-faktor-
sviðinu sjálfu. Mikill fjöldi
listamanna mætti og söng til
heiðurs afmælisbarninu og
minnti samkvæmið um tíma
frekar á dúndurtónleika en afmæli.
Einar segir frá sinni upplifun á
bloggi sínu og er ekki að sjá annað en
að hann hafi verið afar sáttur við
veisluna. „Mikið lifandis skelfing
skemmtum við okkur vel í Smáralind-
inni á laugardagskvöldið. Ég bauð þar
vinum og vandamönnum í létta
afmælisveislu. Eða létta? Þannig lagað.
Mér sýndist við vera með eitthvað um
300 manns þegar mest var.
Ég vinn með svo góðu fólki að þau
lánuðu mér Vetrargarðinn í Smára-
lindinni með öllum tækjum og
tólum. Skemmtiatriðin ekki af verri
endanum, Bubbi, X-faktor-krakkarn-
ir, Nylon, Páll Óskar og svo Sumar-
gleðin sem dró mig upp á svið og við
gerðum allt vitlaust. Litla systir
konunnar minnar, Guðrún Lísa
Einarsdóttir, sló svo allt út í endann
þegar hún fór upp og skemmti með
X-factor bandinu en þegar vel er að
gáð þá er það bandið hennar Ísafold
sem þar er á ferð,“ skrifar Einar.
GLÆSILEG AFMÆLIS-
VEISLA EINARS BÁRÐAR
ÓLÉTT OG ALSÆL Kastljósdrottningin
Jóhanna Vilhjálmsdóttir tekur sig
glæsilega út ólétt og mætti með manni
sínum Geir Sveinssyni til að samfagna
Einari. Við hlið Geirs sést einnig önnur
sjónvarpsstjarna, Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir. SIRKUSMYND/DANÍEL
GLÆSILEG Skötuhjúin Þórhallur
Gunnarsson og Brynja Nordquist voru að
vanda elegant í Smáralindinni.
SIRKUSMYND/DANÍEL
TÓNELSKUR MAÐUR Athafnamaðurinn
Tryggvi Jónsson hefur stutt vel við bakið
á útrás Einars Bárðarsonar. Hann sést
hér ásamt eiginkonu sinni Ástu
Ágústsdóttur og heiðurshjónunum
Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Ágústu
Johnson. SIRKUSMYND/DANÍEL
RÖMM ER SÚ TAUG Nylon-flokkurinn og
Einar Bárðarson eru tengd órofa
böndum og tróðu stúlkurnar fjórar upp í
afmælinu. SIRKUSMYND/DANÍEL
HANN Á AFMÆLI Afmælisbarnið
Einar Bárðarson sést hér ásamt hinni
stórglæsilegu eiginkonu sinni Áslaugu
Telmu Einarsdóttur. SIRKUSMYND/DANÍEL
Ljósmyndarinn Ari
Magg hélt upp á
þrítugsafmæli sitt á
laugardaginn í
stúdíói sínu við
Hverfisgötu. Margt
var um manninn
enda Ari vinamargur
og vinsæll. Meðal þeirra sem heiðruðu
ljósmyndarann þegar hann hélt inn á
fertugsaldurinn voru systir hans Silja
Magg og blaðakonan knáa Anna Margrét
Björnsson.
Sirkusstjórinn
fyrrverandi Árni Þór
Vigfússon mætti
auk konu sinnar
Maríkó Margrétar
Ragnarsdóttur.
Auk þess mættu á svæðið tónlistarmenn-
irnir Pétur Ben, Jóhann Jóhannsson úr
Apparat Organ Quartet, Henrik Björnsson
úr Singapore Sling,
Stefán Stephensen
úr GusGus og Barði
Jóhannsson úr
BangGang ásamt
eiginkonu sinni
stílistanum Agnieszku Moniku Baranow-
sku. Markaðsstjórinn
Eva Dögg
Sigurgeirsdóttir
lét sig að
sjálfsögðu ekki
vanta í afmælið né
heldur Andrea
Brabin hjá Eskimo
Model.
r
Hverjir voru hvar