Fréttablaðið - 30.03.2007, Síða 52
hús&heimili
„Ég er með einhverja áráttukennda
ástríðu fyrir keramiki,“ segir Ólöf
Erla Bjarnadóttir leirlistarkona,
sem hefur um margra ára skeið
mótað nytjahluti úr leir og selur þá
nú í Kirsuberjatrénu þar sem hún
einnig starfar.
„Ég var alltaf ákveðin í að verða
einhvers konar myndlistarmað-
ur, hafði mjög gaman af að teikna
og leira sem barn og á allar mínar
bestu minningar um þær athafnir,“
segir Ólöf, sem fór í Myndlista- og
handíðaskólann eftir stúdentspróf
og útskrifaðist úr keramikdeild
árið 1982.
„Þá gerðist ég fjárbóndi á Gríms-
stöðum á Fjöllum í nokkur ár og
gerði lítið í listinni á meðan,“ segir
Ólöf. Hún endurnýjaði kynni sín
við listagyðjuna þegar hún flutti á
Hvanneyri og hitti þar fyrir gamlan
kennara sinn úr keramikdeildinni,
Elísabetu Haraldsdóttur. „Við sett-
um upp vinnustofu og það hjálpaði
mér að ná upp því sem setið hafði
á hakanum,“ segir Ólöf. Síðar flutti
hún í bæinn þegar henni bauðst að
taka við keramikdeild Myndlista-
og handíðaskólans og þar starfaði
hún til ársins 2002.
Ólöf mótar helst notadrjúga
hluti úr leirnum og vinnur mest
með hvítt og hábrennt postulín.
„Það er eitthvað pínulítið himneskt
og loftkennt við postulínið,“ út-
skýrir Ólöf, sem segir hvíta litinn
einnig góðan grunn fyrir liti sem
hún notar mikið.
En hvað er svona heillandi við
leirinn? „Þetta er ögrandi fag og
maður er alltaf að glíma við efnið
því það er óútreiknanlegt og kemur
manni ávallt á óvart.“
solveig@frettabladid.is
Glíman við efnið
Leirlistarkonan Ólöf Erla Bjarnadóttir vinnur mest með postulín, sem hún segir bæði
himneskt og loftkennt efni.
„Það er eitthvað himneskt og loftkennt
við postulínið.“
Þjóðarblómið er vinsælt, það er lítill
hvítlauks- og engiferraspur úr postulíni
sem er í laginu eins og blóm. Þegar ekki
er verið að nota hann má hengja hann
til skrauts í eldhúsinu.
Þó nokkrir eru farnir að safna stelli úr
hönnunarlínum Ólafar.
Ólöf gerir marga hluti fyrir heimilið, til
dæmis bolla, kökudiska og diska.
„Þetta er ögrandi fag og maður er alltaf í baráttu við efnið, sem er óútreiknanlegt og kemur manni sífellt á óvart,“ segir Ólöf.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
LE KLINT er rót-
gróið danskt fyrirtæki,
leiðandi í hönnun ljósa.
Árið 1943 ákvað Tage
Klint að stofna fyrir-
tæki í kringum listilega
hannaða ljósaskerma
sem fjölskylda hans
gerði. Lamparnir frá LE KLINT eru marg-
slungnir og höfða til breiðs hóps.
LAURA ASHLEY
Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 551-6646
30. MARS 2007 FÖSTUDAGUR4