Fréttablaðið - 22.04.2007, Síða 87

Fréttablaðið - 22.04.2007, Síða 87
 Það var létt hljóðið í þjálfara Vals, Óskari Bjarna Ósk- arssyni, í gær og var á honum að heyra að það væri meiri tilhlökk- un en spenna fyrir átök dagsins. „Við erum tiltölulega afslapp- aðir og spennustigið hjá okkur er ágætt held ég. Ég held að það sé kominn tími á okkur núna. Allur undirbúningur hefur verið hefð- bundinn,“ sagði Óskar Bjarni en eðlilega hefur fólk mikið talað um slakan árangur Vals á Ásvöll- um síðustu ár. Hefði hann ekki viljað spila lokaleikinn annars staðar? „Ég held að við höfum brotið regluna í deildarbikarnum í fyrra og svo fyrir jól núna. Töpuðum reyndar svo í bikarnum á Ás- völlum. Ég veit að mörgum Vals- mönnum hugnast ekki að fara þangað og tölfræðin segir okkur að þetta verður mjög erfitt enda Haukarnir með gott lið.“ Óskar Bjarni hefur aðeins unnið Hauka tvisvar síðan hann tók við Valsliðinu en hann vill meina að tölfræðin segi ekki alla söguna. „Ég velti mér ekkert upp úr þessu. Haukarnir voru sterkasta liðið á sínum tíma og aðstæður öðruvísi,“ sagði Óskar. Baldvin Þorsteinsson, leikmaður Vals, sagði Val hafa verið með mann- skap áður til að fara alla leið en það hafi vantað upp á karakter- inn. Hann væri til staðar núna sagði Baldvin. „Ég vil meina að við höfum heldur aldrei haft 100 prósent mannskap í lokabaráttu og við misstum alltaf menn í meiðsli. Ég tel að það sé meiri breidd af sterkum karakterum núna og ég tel að þetta sé sterkasta Valsliðið síðan 1996,“ sagði Óskar. Kominn tími á okkur Gunnar Magnússon, að- stoðarþjálfari HK, segir að góð stemning sé í herbúðum Kópa- vogsliðsins fyrir daginn í dag og menn gangi inn í daginn með hóf- legar væntingar. „Við fljúgum til Akureyrar í há- deginu og byrjum svo að undir- búa leikinn, sem verður alls ekki auðveldur fyrir okkur. Því má ekki gleyma í umræðunni að við erum að fara á einn erfiðasta úti- völl landsins,“ sagði Gunnar. „Við ætlum að klára tímabilið með stæl og þar með okkar verkefni. Við lifum svo í voninni þó svo að maður sé ekkert að springa úr ein- hverju bjartsýniskasti.“ Eins og fram kemur hér til hlið- ar hefur Valsmönnum ekki gengið vel með Haukana í gegnum tíðina og Gunnar gleðst yfir því að það séu Haukar sem eru andstæðing- ar Vals í dag. „Ég sagði það við mína menn að ef ég mætti velja eitt lið til að spila á móti Val þá væru það Haukar. Ef ég mætti síðan velja einhverja þjálfara gegn Val í svona leik þá eru það Páll og Viggó. Ef ég ætti síðan að velja húsið þá myndi ég velja Ásvelli enda er það ekki uppáhaldsstaður Valsaranna. Ég trúi ekki öðru en Haukarnir vilji klára tímabilið með reisn,“ sagði Gunnar. Við lifum í voninni Leggðu góðu málefni lið Leggðu góðu málefni lið er heiti á þjónustu í Einkabanka og Fyrirtækjabanka Landsbankans sem auðveldar þér að hefja mánaðarlegan stuðning við góð málefni. Það þekkja það flestir að greiða mánaðarlega af húsinu og bílnum og fyrir rafmagn og hita. Nú er auðvelt að bæta góðum málefnum við þann lista og gerast áskrifandi að þeim. Þú getur styrkt eitthvert af 75 góðgerðarmálefnum; velur einfaldlega styrkupphæðina og hversu lengi þú vilt styrkja. Hver króna skilar sér til góðgerðar- félaganna og notendur bera engan kostnað við stuðning sinn. Með einfaldri aðgerð er svo hægt að hætta stuðningi. Landsbankinn hefur boðið þessa þjónustu síðan 1. júlí sl. og síðan þá hafa hundruð Íslendinga gerst áskrifendur að góðu málefni. Það er auðvelt að skipta máli gottmalefni.is Ríkiskaup, fyrir hönd Fjarskiptasjóðs, efna ti l kynningarfundar þriðjudaginn 24. apríl kl. 14.00-15.00 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, vegna fyrirhugaðs útboðs sjóðs ins á háhraðatengingingum í dre i fbý l i . Fundurinn er fyrst og fremst ætlaður fjarskiptaaðilum sem veita háhraðaþjónustu yfir aðgangsnet í dreifbýli og/eða áforma uppbyggingu slíkra neta. Tilgangur fundarins er að fylgja eftir auglýsingu frá Ríkiskaupum sem birtist nýverið þar sem óskað var eftir upplýsingum frá fjarskiptaaðilum um útbreiðslusvæði. Auglýsinguna og nánari upplýsingar er að finna á vef Ríkiskaupa. www.rikiskaup.is Á fundinum verður auk þess farið yfir forsendur og markmið Fjarskiptasjóðs, ásamt tilhögun fyrirhugaðs útboðs. Fundarmönnum mun gefast kostur á að bera fram spurningar á fundinum. Fjarskiptasjóður var stofnaður með lögum um fjarskiptasjóð, nr.132/2005. Hlutverk hans er meðal annars að styðja við uppbyggingu fjarskiptakerfa á svæðum þar sem fjarskiptafyrirtæki hafa ekki treyst sér í uppbyggingu á markaðslegum forsendum. Í sjóðnum eru til ráðstöfunar 2,5 milljarðar króna af söluandvirði Landssíma Íslands hf. Háhraða- tengingar til allra landsmanna Kynningarfundur fyrir fjarskiptaaðila F J A R S K I P T A S J Ó Ð U R SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.