Fréttablaðið - 08.05.2007, Page 2
Ari, var skálað í kampavíni
eftir undirritunina?
„Þetta er stórkostlegur dagur,“ segir
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla
Íslands. Reykjavíkurborg gaf í gær skólanum lóð og
skrifað var undir viljayfirlýsingu um framtíðar
rekstrarframlög frá ríkinu.
Lóðin sem Listaháskólinn fær er við hlið náttúru-
fræðahússins Öskju í Vatnsmýri. Stjórn skólans
hefur hins vegar lengi leitað að lóð í miðbænum og
ekki er loku skotið fyrir að það rætist því stjórnend-
um hans er frjálst að ráðstafa lóðinni í Vatnsmýri að
vild.
„Við teljum þessa lóð vera frábæran byggingarkost.
Hins vegar er sá sveigjanleiki ef aðrir kostir bjóðast
að skipta þessari lóð inn í það,“ segir Hjálmar.
Meðal möguleika sem hafa verið nefndir fyrir
staðsetningu Listaháskólans í miðbænum er
svokallaður Vegasreitur neðan Laugavegar. Einnig
hefur verið nefnt að byggja yfir skólann í nágrenni
Háskólans í Reykjavík við Öskjuhlíð.
„Það hafa margir haft samband í gegn um tíðina
og þeir geta óskað eftir viðræðum,“ segir Hjálmar
sem kveður að í allra síðasta lagi um næstu áramót
verði auglýst samkeppni um hönnun skólans.
Fyrir Hjálmar sjálfan er þessi áfangi líka mikill
léttir. „Ég hét því í nóvember að skerða ekki hár á
höfði mínu fyrr en þessi samningur væri í höfn og
er orðinn ansi síðhærður. Nú fer ég í klippingu,“
segir rektor.
Vilja enn helst lóð í miðbænum
Íslensk fyrirtæki, meðal
annars Ferskar kjötvörur og
Aðföng, eru þegar byrjuð að skoða
möguleikann á því að flytja land-
búnaðarvörur til Færeyja, meðal
annars frá Danmörku, vinna þær
þar og pakka og flytja tollfrjálst til
Íslands. Þetta telja þau hugsanlega
vera hægt þar sem samningur
Íslands og Færeyja frá 1. nóvember
gerir ráð fyrir tollfrjálsum við-
skiptum.
Sérstakur samráðshópur um
samninginn fundar um efnisatriði
og möguleg áhrif hans um næstu
mánaðamót en margar fyrirspurn-
ir hafa borist frá fyrirtækjum um
möguleikana sem samningurinn
opnar fyrir.
Berglind Ásgeirsdóttir, skrif-
stofustjóri viðskiptaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins, segir ýmis álita-
mál uppi, meðal annars um hvenær
vörur teljist vera upprunnar á
Íslandi eða í Færeyjum samkvæmt
samningnum. „Þessi samningurinn
nær til vara sem eru upprunar í
Færeyjum og Íslandi. Það er grund-
vallaratriði samningsins. Hins
vegar er það ekkert launungarmál
að það eru ýmis álitamál í samn-
ingnum sem þarf að skoða betur.“
Grétar Már Sigurðsson, ráðu-
neytisstjóri í utanríkisráðuneyt-
inu, segir alveg ljóst að samningur-
inn gildi aðeins um færeyskar og
íslenskar vörur. „Ef að vara er ekki
upprunnin í Færeyjum þá kemur
hún ekki inn í landið á grundvelli
samningsins. Þetta er ekki neitt
álitamál. Við vorum að semja um
fríverslun með íslenskar og fær-
eyskar landbúnaðarafurðir og
aðrar ekki.“
Stefán Bjargmundsson, deildar-
stjóri tollgæslunnar hjá sýslu-
manninum á Eskifirði og einn
helsti sérfræðingur landsins í
samningum af þessu tagi, segir
samninginn einstakan hvað varð-
ar vítt gildissvið hans. „Það er sér-
stakt með samninginn við Færeyj-
ar að hann gildir um allar vörur.
Þar er ekki að finna undanþágur
líkt og í öðrum fríverslunarsamn-
ingum. Þetta gæti þýtt að auðveld-
ara væri að flytja tollfrjálst inn
varning í gegnum Færeyjar en
það er þó ekkert ljóst í þeim
efnum.“
Sigurgeir Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Bændasamtak-
anna, segir það ekki ákjósanlegt
fyrir bændur og íslenskan land-
búnað ef samn-
ingurinn fyrir
Færeyjar opnar
fyrir stórfelld-
an innflutning.
„Það liggur í
augum uppi að
það yrði skað-
legt fyrir
íslenskan land-
búnað ef þetta
væri hægt. Ég
þekki ekki upprunareglurnar
nógu vel í þessum nýja samningi
en við vorum ekki varaðir við
þessu á sínum tíma. Þvert á móti
var þessi samningur kynntur
þannig fyrir okkur að hann opn-
aði fyrst og fremst leið inn nýjan
markað.“
Fríverslun nær bara
til færeyskra vara
Íslensk fyrirtæki skoða möguleikann á því að flytja landbúnaðarvörur í gegnum
Færeyjar til Íslands. Fyrirtækin horfa til þess að flytja vörur til Færeyja, vinna þær
þar og pakka og flytja síðan hingað til lands. Skaðlegt, segir Sigurgeir Þorgeirsson.
Rannsókn á upptökum
eldsins í húsinu við Lundargötu
17 á Akureyri á sunnudag hefur
ekki leitt neitt nýtt í ljós. Grunur
leikur á að um íkveikju sé að
ræða. Enginn hefur verið
yfirheyrður vegna málsins.
„Það er ljóst að það var farið
inn í kjallarann utan frá en að svo
stöddu er of snemmt að fullyrða
nokkuð um upptök eldsins þótt
ýmislegt bendi til þess að kveikt
hafi verið í,“ segir Daníel
Guðmundsson, yfirlögregluþjónn
á Akureyri.
Lögreglan á Akureyri óskar
eftir upplýsingum frá þeim sem
kunna að hafa orðið varir við
mannaferðir í kringum húsið á
sunnudagsmorgun.
Húsið er stórskemmt eftir
brunann og óíbúðarhæft.
Grunur um
íkveikju
Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, var útskrifað-
ur af Landspít-
ala – háskóla-
sjúkrahúsi
síðdegis í gær.
Forsetinn
gekkst undir
fjölda rann-
sókna en er að
sögn lækna við
góða heilsu.
Forsetanum var
ráðlagt að hvíla sig næstu daga.
„Þetta voru viðamiklar
rannsóknir en niðurstöðurnar
leiddu ekkert alvarlegt í ljós og
heilsufar forsetans er gott.
Forsetinn mun hvíla sig næstu
daga samkvæmt læknisráði en ég
býst við að hann komi til starfa á
ný síðar í vikunni,“ segir Örnólf-
ur Thorsson forsetaritari.
Forsetinn var staddur á Hótel
Búðum á Snæfellsnesi þegar hann
kenndi sér meins. Læknir frá
Ólafsvík skoðaði forsetann og
óskaði eftir því að hann yrði
fluttur á Landspítalann.
Útskrifaður af
spítala í gær
George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, tók á móti
Elísabetu Englandsdrottningu í
gær með mikilli viðhöfn við Hvíta
húsið í Washington.
Yfir sjö þúsund gestum var
boðið til athafnarinnar sem haldin
var á suðurlóðinni. Í ávarpi sínu til
drottningarinnar lagði forsetinn
áherslu á mikilvægi bandalags
Bretlands og Bandaríkjanna í
stríðinu gegn hryðjuverkum og þá
sérstaklega samstarf þjóðanna í
Afganistan og Írak. Hann þakkaði
drottningunni fyrir stuðninginn
og sagði að samstarf þeirra væri
vænlegast til að ná fram friði í
heiminum. Elísabet drottning
sagði að nú væri kominn tími til að
horfa fram á veginn og halda
áfram að leggja áherslu á að gera
heiminn öruggari og rækta vin-
skapinn á milli þjóðanna.
Öll umgjörð heimsóknarinnar
var mjög formleg og í fyrsta sinn í
forsetatíð George W. Bush var
haldinn kvöldverður fyrir 134
gesti þar sem karlar voru klæddir
í kjól og hvítt.
Þetta er í fimmta skipti sem
drottningin heimsækir Bandarík-
in en síðast kom hún 1991 þegar
George Bush eldri var forseti.
Aðaltilefnið að þessu sinni er 400
ára afmæli landnáms Englendinga
í Virginíu.
Þakkaði stuðninginn
Sala á áfengi hefur
dregist saman um ellefu prósent
síðan reykingabann var sett á
skoskum krám fyrir tæpu ári.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
könnunar þarlends sambands
vínveitingamanna. Starfsfólki
hefur verið fækkað á þriðjungi
kránna á sama tíma.
Andy Kerr, heilbrigðisráðherra
Skota, er ötull talsmaður reyk-
ingalaganna. Hann gagnrýnir
könnun veitingamanna og segir
hana ekki sýna fram á tengsl
bannsins við fækkun starfsfólks.
Einnig væri úrtak könnunarinnar
takmarkað, en henni svöruðu 530
krár. BBC greinir frá þessu.
Krárnar finna
fyrir samdrætti