Fréttablaðið - 08.05.2007, Side 16
Stjórnarmenn í Nýsköp-
unarsjóði atvinnulífsins má aðeins
skipa fimm sinnum, samkvæmt
breytingum á lögum um sjóðinn
sem Alþingi samþykkti 17. mars.
Eftir því sem næst verður kom-
ist er Nýsköpunarsjóður eina stofn-
unin sem slíkt ákvæði nær til.
Alþýðusam-
bandið, Lands-
samband
útvegsmanna,
Samtök atvinnu-
lífsins, Samtök
fiskvinnslu-
stöðva og Sam-
tök iðnaðarins
lögðust í
umsögn ein-
dregið gegn
takmörkun á
skipunartíma stjórnarmanna og
sögðu óheppilegt að skipa stjórn
til svo skamms tíma í senn.
Í minnisblaði viðskiptaráðuneyt-
isins um málið segir að sjóðir sem
fjárfesti í sprotafyrirtækjum þurfi
að hafa framsýna og skapandi
stjórn. Því sé lagt til að menn verði
ekki skipaðir til stjórnarsetu oftar
en fimm sinnum. Jafnframt segir
að stjórnarmenn Nýsköpunarsjóðs
hafi flestir setið skemur en sem
þessu nemur og ekki séð að það
breyti miklu fyrir skipunartíma
núverandi stjórnarmanna. „Hér er
því fyrst og fremst um að ræða
varúðarreglu, sem er í anda góðs
verklags,“ segir í minnisblaðinu.
Viðskiptaráðherra skipar alla
fimm stjórnarmenn Nýsköpunar-
sjóðs til eins árs í senn. Iðnaðar-
ráðherra og sjávarútvegsráðherra
tilnefna hvor sinn stjórnarmann-
inn, einn er skipaður samkvæmt
tilnefningu Alþýðusambandsins,
einn eftir ábendingu samtaka fyr-
irtækja í iðnaði og einn eftir ábend-
ingu samtaka fyrirtækja í sjávar-
útvegi.
Sveinn Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
er óánægður með breytinguna og
kveðst ekkert skilja í henni. „Þetta
er óskiljanlegt og óþarft,“ segir
Sveinn. „Meirihluti stjórnarmanna
er tilnefndur af atvinnulífinu; ASÍ,
iðnaðinum og sjávarútveginum og
þessir aðilar ættu að geta sett sér
reglur ef þeir vilja hafa einhverjar
reglur. Ráðherrarnir geta svo auð-
vitað skipt um sína fulltrúa eins oft
og þeir vilja en þeir þurfa ekki að
setja um það lög.“ Að auki telur
Sveinn aðrar breytingar laganna
til þess eins fallnar að auka afskipti
og inngrip ráðherra í starfsemi
sjóðsins. „Ráðherra ákveður og
ráðherra samþykkir. Þarna gætir
tilhneigingar til að auka áhrif ráð-
herra á sjóðinn sem við teljum ekki
til bóta,“ segir Sveinn Hannesson.
Óþarfar og óskiljan-
legar lagabreytingar
Stjórnarseta í Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins er takmörkuð við fimm ár, sam-
kvæmt nýjum lögum um sjóðinn. Hagsmunaaðilar lögðust gegn lagaákvæðinu
sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir óþarft og óskiljanlegt.
Viðbragðstími
lögreglunnar á Vesturlandi mun
styttast og löggæslan verða mun
sýnilegri og öflugri en verið
hefur. Þetta er innihald samnings
sem hefur verið undirritaður af
yfirlögregluþjónunum á Vestur-
landi.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri segir samninginn
gerðan í kjölfar nýlegra breyt-
inga á lögreglulögum.
„Með honum verður leitast við
að stytta viðbragðstíma lögregl-
unnar á Vesturlandi og auka
þjónustu hennar við íbúa og
vegfarendur í fjórðungnum.
Lögregluliðin munu sjá
sameiginlega um allt eftirlit á
svæðinu án tillits til umdæma-
marka. Þetta verður til þess að
hægt verður að stytta viðbragðs-
tímann verulega frá því sem nú
er. Þeir lögreglumenn sem næstir
eru vettvangi sinna þeim
verkefnum sem upp koma og
ljúka vettvangsvinnunni,“ segir
ríkislögreglustjóri.
Þetta verður meðal annars gert
mögulegt með því að nýta betur
fjármagn, mannafla og tæki sem
tiltæk er á svæðinu. Einnig er
stefnt að því að samræma
vaktakerfi lögregluembættanna
og fjölga sólarhringsvöktum.
Löggæsla stórefld
Horst Köhler, forseti
Þýskalands, hefur synjað
náðunarbeiðni Christians Klar,
fyrrverandi forsprakka hryðju-
verkahópsins Rauðu herdeildar-
innar. Klar er 54 ára og hefur
setið í fangelsi í 24 ár. Hann var
dæmdur í sexfalt lífstíðarfangelsi
fyrir aðild að mörgum alræmd-
ustu morðum samtakanna.
Fyrr á árinu var öðrum
liðsmanni Rauðu herdeildarinnar,
Birgitte Mohnhaupt, sleppt úr
fangelsi. Köhler átti fund með
Klar í síðustu viku og þótti það
benda til þess að líklegt væri að
hann fengi einnig náðun, en
andstaða við það var hins vegar
mikil. Köhler gaf ekki upp
forsendu ákvörðunar sinnar.
Christian Klar
ekki náðaður
Fullt var út úr dyrum
í ráðhúsinu í Bolungarvík í
fyrrakvöld
þegar efnt var
til íbúafundar
vegna atvinnu-
ástands í bæjar-
félaginu. Hátt í
70 Bolvíkingar
hafa misst vinn-
una á síðustu
misserum.
Guðmundur
Halldórsson, fyrrverandi
skipstjóri og skipuleggjandi
fundarins, segir að mikil ánægja
hefði verið með fundinn.
Frambjóðendur stjórnmála-
flokkanna sátu fundinn og að
sögn Guðmundar brunnu
sjávarútvegsmálin heitast á
bæjarbúum.
„Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra var meðal annars
spurður út í breytingar á slæging-
arstuðlinum. Verði af þessum
breytingum er um að ræða
kvótarýrnun upp á 800 milljónir
hér í plássinu,“ segir Guðmundur.
Kvótamálin
efst á baugi
SKRÁÐU
ÞIG NÚNA
ÞEIR SEM SKRÁ SIG FYRIR
17. JÚNÍ FÁ 10.000
GLITNISPUNKTA!