Fréttablaðið - 08.05.2007, Page 29
Læknum hefur tekist að gera
við skaddaða mænu í músum
með hjálp nanótækni. Tæknin
getur mögulega læknað Park-
insons og Alzheimer.
Nanótækni felst í mótun smæstu
eininga lífsins, sjálfum sameind-
unum sem liggja að grunni allra
efnasambanda. Þessi tækni hefur
nú þegar gert vísindamönnum
kleift að búa til efni sem ekkert
festist við og föt sem ekki verða
óhrein. Nú er farið að beita tækn-
inni til að örva líkamann til að
lækna sig sjálfur.
Læknateymi dr. Samuels
I. Stupp, stjórnanda Lífnanó-
tæknistofnunar Northwestern-
háskólans í Bandaríkjunum, hefur
tekist að gera við skaddaða mænu
í tilraunamúsum. Mýsnar höfðu
misst hreyfimátt afturlima, en sex
vikum eftir nanómeðferð gátu þær
notað limina á eðlilegan hátt. Þetta
vekur vonir um að hægt verði að
nota aðferðina til að laga skadd-
aða mænu, hjörtu, lifur og jafnvel
heila í mönnum.
Aðferðin felst í notkun örþunnra
nanótrefja sem sprautað er á
þann stað sem hefur orðið fyrir
skemmdum. Trefjarnar hindra
bæði myndun örvefjar og örva
nærliggjandi frumur til að hefja
uppbyggingu og endurnýjun. Sam-
kvæmt dr. Stupp væri hægt að búa
til mismunandi trefjar fyrir hvern
og einn sjúkling sem myndu taka
mið af þörfum viðkomandi sjúk-
lings.
Ef svo fer sem horfir gæti þarna
verið komin lækning við mörg-
um hrörnunarsjúkdómum, þar á
meðal Parkinsons og Alzheimer,
en trefjarnar gætu hugsanlega
bætt skaða á mikilvægum tauga-
frumum í heila, rétt eins og þeir
virðast gera í mænu.
Sködduð mæna lög-
uð með nanótækni
} Heilsa YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103
YOGA YOGA YOGA
Líkamsæfingar, öndunaræfingar
slökun og hugleiðsla
Sértímar fyrir barnshafandi
og kraftyoga
Allir yoga unnendur velkomnir
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Í boði eru morgun-,
hádegis- og síðdegisnámskeið
Barnagæsla – Leikland JSB
Vertu velkomin í okkar hóp!
Ný námskeið hefjast 29. maí
Þú léttist og styrkist andlega og líkamlega!
Átaksnámskeiðin sívinsælu fyrir konur á öllum aldri.
TT-1
• Lokuð 5 vikna námskeið 3 x í viku
• Fræðslufundir 1x í viku, vigtun og mælingar
• Líkamsrækt
• Persónuleg þjónusta í notalegu umhverfi þar
sem alger trúnaður ríkir
• Frjáls aðgangur að tímum í opna kerfinu
og tækjasal
Innritun í síma 581 3730
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Sumar-TT!
5 vikna námskeið á kr. 18.500.-
7 vikur í opna kerfinu í bónus!
Stelpur - Konur / Staðurinn - Ræktin
Vertu ígó ummálum!