Fréttablaðið - 08.05.2007, Síða 36
þá 12,8 stig að meðaltali í sinni fyrstu
úrslitakeppni. Jackson elti betri samning
til Atlanta og var síðan skipt yfir til
Indiana. Það var ekki langt liðið á hans
fyrsta tímabil með Pacers þegar allt
varð vitlaust í leik gegn Detroit. Jack-
son var dæmdur í 30 leikja bann fyrir
sinn þátt í slagsmálunum. Jackson var
handtekinn rétt fyrir tímabilið fyrir
að hafa lent í ólátum fyrir utan súlu-
dansstað í Indianapolis. Jackson var
síðan á endanum skipt til Golden State í
janúar þar sem átta menn skiptu um lið.
Hann skoraði 29 stig í sínum fyrsta leik og
var frábær þann tíma sem Baron Davis
var frá vegna meiðsla.
HINN FULLKOMNI LIÐSFÉLAGI
Jackson hefur slæmt orð á sér en
margir hafa komið honum til varnar.
Hann er skapbráður og fljótfær en
þykir jafnframt trúr og tryggur félagi.
Tim Duncan kallaði hann á sínum tíma
hinn fullkomna liðsfélaga.
Frammistaða Jacksons í einvíginu
gegn Dallas var mögnuð og ekki síst
varnarlega þar sem hann komst inn í
kollinn á Dirk Nowitzki og átti mikinn
þátt í að Þjóðverjinn var nánast óþekkj-
anlegur í einvíginu. Í lokaleiknum setti
Jackson niður sjö fyrstu þriggja
stiga skotin sín og skoraði alls 33
stig. Þar af setti hann niður fjóra þrista
og alls 15 stig þegar Golden State gerði
út um leikinn með því að vinna fimm
mínútna kafla 19-3.
GETUR BARA STOPPAÐ SIG SJÁLFUR
„Sá eini sem getur stoppað Stephen
Jackson er hann sjálfur. Þegar hann
missir stjórn á skapi sínu verður henn
einskis verður leikmaður en þegar
hann heldur haus getur enginn stoppað
hann á vellinum,“ sagði Don Nelson
um Stephen. Jackson var rekinn út úr
húsi í tveimur leikjanna og fékk alls
þrjár tæknivillur í einvíginu en þegar
betur var skoðað var eins og orðspor
hans hefði mikið um það að segja.
Baron Davis talaði um það eftir leikinn
að hann biðlaði til Jackson þegar hann
fann að meiðslin myndu hamla hans
leik. Þó að Davis hafi gert Dallas grikk
á annarri löppinni var það framganga
Jackson sem sló Dallas-liðið algjörlega
út af laginu.
Golden State Warriors mætir Utah
Jazz í næstu umferð og fór fyrsti leikur
liðanna fram í nótt. Það verður fróð-
legt að sjá hvort ævintýri þeirra Baron
Davis og Stephen Jackson haldi áfram
eða hvort Jerry Sloan og lærisveinar
hans komi Warriors-liðinu aftur niður
á jörðina.
6 sport
Þegar Don Nelson setti
Baron Davis og Stephen
Jackson hlið við hlið í
bakvarðarsveit Golden
State uppgötvaði hann
hinsvegar tvíeyki sem
hreinlega keyrði yfir
besta lið deildarkeppn-
innar, Dallas Mavericks. Saman skoruðu
þeir félagar tæp 48 stig að meðaltali í
einvíginu, Davis var með 25,0 stig í leik
en Jackson skoraði 22,8 stig í leik.
JACKSON HJARTAÐ OG SÁLIN
Baron Davis segir Jackson vera hjarta
og sál liðsins og ekki að ástæðulausu.
Jackson hefur fundið nýja lífdaga í
Golden State eftir erfitt ár þar sem
hann lenti bæði í slagsmálunum í leik
Detroit og Indiana sem og handtöku
fyrir utan strippstað á síðasta ári.
Snilli Chris Mullin nær nú út fyrir
körfuboltavöllinn því hann hefur
komið öllum þessum mönnum saman.
Það var hann sem fékk Baron Davis í
skiptum fyrir Speedy Claxton og Dale
Davis í febrúar 2005, það var hann sem
hringdi í Don Nelson og sannfærði
hann um að fara að þjálfa aftur og það
var hann sem nældi í Stephen Jackson
í átta manna skiptum við Indiana
Pacers. Framhaldið er orðið hluti af
sögunni, Indiana Pacers komst ekki í
úrslitakeppnina en Golden State er
búið að vinna 13 af síðustu 16 leikjum
sínum og er komið inn í undanúrslitin í
úrslitakeppni Vesturdeildar.
ÞURFTI AÐ VERA LEIÐTOGI
„Frá mínum sjónarhóli séð hefur þetta
verið tækifæri fyrir mig að sýna hvað
ég get,“ sagði Baron Davis um skiptin
frá New Orleans til Golden State. Tími
Davis með Hornets-liðinu, bæði í Char-
lotte og New Orleans, var allt annað en
dans á rósum. Davis var kominn með
slæmt orð á sér, stóð í sífellum illdeil-
um við þjálfara sína á milli þess að
hann glímdi við erfið meiðsli. Lykillinn
að velgengninni var koma Don Nelson
til Golden State. „Hann sagði mér að
ég þyrfti að verða leiðtogi þegar hann
hringdi í mig. Ég vissi að allt sem
þurfti til var að ég fengi rétta leik-
menn í kringum mig,“ sagði Davis og
leikstíll Nelson hentar honum líka
betur en nokkuð annar. Davis hefur
líka fórnað ýmsu til þess að vera klár í
þessa úrslitakeppni. Hann var til
dæmis aðeins frá í tíu daga eftir að
hafa farið í hnéaðgerð í febrúar.
Golden State þurfti á öllu sínu að halda
til þess að komast í úrslitakeppnina og
komst þangað loksins á síðasta degi
eftir að hafa unnið 9 af síðustu 10 leikj-
um sínum.
SÁ HÆFILEIKARÍKASTI
Nelson hefur lýst Davis sem hæfileika-
ríkasta körfuboltamanni sem hann
hefur þjálfað, sem eru stór orð frá
manni sem hefur þjálfað menn
eins og Chris Mullin, Tim
Hardaway, Dirk Nowitzki
og Mitch Richmond. Þeir
sem hafa orðið vitni að
frammistöðu Barons Davis
í úrslitakeppninni eru farnir
að sjá af hverju. Stephen
Jackson kom til Golden State í
janúar og hafði meðal annars
afrekað það að tryggja Indiana
sigur á Golden State fyrr á
tímabilinu, sigur sem hefði
hugsanlega getað þýtt að
Warriors kæmist ekki í úrslitakeppn-
ina. Það var svo tæpt að Golden State-
liðið væri í þeirri stöðu og að geta
slegið Dallas Mavericks út úr fyrstu
umferð úrslitakeppninnar.
OFT VERIÐ AFSKRIFAÐUR
Stephen Jackson hefur oft verið afskrif-
aður en alltaf risið upp aftur. Hann var
valinn af Phoenix Suns í nýliðavalinu
1997 en var látinn fara áður en tímabilið
byrjaði. Hann spilaði ekki sinn fyrsta leik
fyrr en 2000 og þá með New Jersey Nets.
Jackson átti mikinn þátt í að San Antonio
Spurs varð meistari 2003 en hann skoraði
SKIPTIMYNTIN ORÐIN AÐ GULLI
Tveir leikmenn, BARON DAVIS og STEPHEN JACKSON, eiga stærstan
þátt í óvæntri og sögulegri velgengi Golden State Warriors í
úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Þeir fara báðir
sínar eigin leiðir, geta tekið upp á hverju sem er inni á vellinum
en hafa það sameiginlegt að búa yfir einstökum hæfileikum. Þeir
höfðu verið afskrifaðir af mörgum þegar þeir komu til Golden
State. EFTIR ÓSKAR ÓFEIG JÓNSSON
Baron Davis og Stephen Jackson hafa fundið fjölina sína sína hjá Golden State Warriors eftir að
hafa verið afskrifaðir af restinni af NBA-deildinni.
TÍMABIL sem
Don Nelson,
þjálfari Golden
State Warriors,
hefur þjálfað í
NBA-deildinni í
körfubolta.
28
VEXTIR FRÁ
AÐEINS
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 23.4.2007.
3,4%
Þannig er mál
með vexti ...
... að það er hægt að létta greiðslubyrðina.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
SAMANBURÐUR Á LÁNUM
MYNTKÖRFULÁN *** BLANDAÐ LÁN ** ÍBÚÐARLÁN
LÁNSUPPHÆÐ 20.000.000 20.000.000 20.000.000
VEXTIR 4,0% * 4,4% * 5,0%
GREIÐSLUBYRÐI**** 66.500 100.800 96.600
* M.v. 1. mánaða Libor vexti 23.04.2007. ** 50% íbúðarlán/50% erlent lán í CHF og JPY.
*** Vextir á erlendri myntkörfu ráðast af veðsetningu og myntsamsetningu og eru á bilinu 3,4% til 4,5% m.v. myntkörfu 4.
**** Mánaðarlegar afborganir fyrsta árið, lánstími 40 ár, einungis greiddir vextir af myntkörfuláninu fyrstu þrjú árin, án verðbóta eða gengisbreytinga.
Reiknaðu út hvernig
greiðslubyrði þín lækkar á
www.frjalsi.is eða hafðu
samband í síma 540 5000.