Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 58
Náhirðin gerði örvæntingarfulla tilraun til að hafa áhrif á gang Baugsmálsins þegar það var til meðferðar í Héraðsdómi Reykja- víkur á dögunum. Dreift var nafn- lausu bréfi til dómara málsins, lög- manna og valinna áhrifamanna, með níði um ákveðna einstaklinga, einkum dómara, sem komið hafa að málinu á ýmsum stigum þess. Með bréfinu var klárlega gerð til- raun til að vekja ugg og ótta hjá dómendum. Þið skulið passa ykkur eða hafa verra af! Ólyktin var svo stæk af bréfinu að það gat aðeins komið úr einni átt. Sú staðreynd dró reyndar úr áhrifamætti bréfs- ins þar sem bréfritararnir hafa átt sína frægðartíð og hún er að líða hjá sem betur fer. Á síðasta degi réttarhaldanna lét Jón Steinar Gunnlaugsson, hæsta- réttardómari, sér sæma að ryðj- ast fram í fjölmiðlum og ráðast að Ingibjörgu S. Pálmadóttur í þeim tilgangi að kasta rýrð á framburð hennar í málinu. Hann hafði áður gegnt lögmannsstörfum fyrir hana. Þetta þótti ýmsum ósæmileg hegð- un og óheiðarleg og var hann gagn- rýndur fyrir, m.a. af Sigurði Lín- dal, prófessor. Sigurður uppskar ærumeiðingar frá höfundi Reykja- víkurbréfs Morgunblaðsins fyrir þessa gagnrýni sína. Þegar nú úrslit málsins í Héraðs- dómi Reykjavíkur liggja fyrir má spyrja hvort nafnlausa bréfið hafi haft einhver áhrif á dómarana? Ég leyfi mér að svara því neitandi. Óþægilegur vafi hefur þó læðst að fólki líkt og fram hefur komið op- inberlega, einkum varðandi þann lið er lýtur að sakfellingu Jóns Ás- geirs Jóhannessonar. Sú sakfell- ing hvílir á framburði Jóns Ger- alds Sullenberger og starfsmanns í fyrirtæki hans Nordica Inc. í Flór- ída. Spurt er hvort verið geti að dómurinn hafi hent þessu beini í hundskjafta náhirðarinnar til að þagga niður í henni? Ég leyfi mér að halda því fram að svo hafi ekki verið. Eigi að síður þykja mér for- sendur sakfellingarinnar hvíla á veikum grunni, þ. á m. framburði Jóns Geralds Sullenberger sem fyrir dómi lýsti í smáatriðum per- sónulegri óvild sinni í garð Jóns Ásgeirs. Varðandi frávísun málsins gegn Jóni Ger- aldi Sullenber- ger kom auðvit- að aldrei neitt annað til greina. Fyrir liggur bréf frá upphaf- legum saksókn- ara málsins með rökstuðningi um þá ákvörðun að ákæra hann ekki, hann var aldrei yfirheyrður sem sakborningur og ekki ákærð- ur í fyrra skiptið. Slíkum ákvörð- unum verður ekki breytt og ákæra í seinna skiptið var aðeins til mála- mynda. Jón Gerald Sullenberger sprangaði um ganga dómshússins í fullvissu þess að hann yrði aldrei sakfelldur og hegðaði sér þar eins og þetta væri hans prívat mál en ekki opinbert sakamál á hend- ur þeim Jóni Ásgeiri og Tryggva Jónssyni. Tók meira að segja að sér hlutverk gestgjafa þegar ritstjóri Morgunblaðsins, Styrmir Gunn- arsson, mætti á svæðið til að bera vitni, heilsaði honum og klappaði á bakið líkt og hann stýrði „prótók- ólnum“ fyrir ákæruvaldið. Morgunblaðið segir í leiðara föstudaginn 4. maí sl. að Baugs- málið snúist um hvað stjórnendur almenningshlutafélags mega gera með fjármuni slíks félags sem er skráð á opinberum markaði. Eftir niðurstöðu Héraðsdóms Reykja- víkur liggur fyrir að ekki hefur verið dæmt fyrir auðgunarbrot eða önnur slík brot þar sem misfar- ið er með fjármuni félagsins. Sýkn- að var í þeim lið er laut að slíkum þætti og liðum er lutu að viðskipta- lánum var vísað frá dómi. Alvar- legasta þætti ákærunnar varðandi fjársvik hafði áður verið vísað frá á báðum dómsstigum á þeirri for- sendu að ekki hafi verið um neitt afbrot að ræða heldur viðskipti! Þá er athyglisverð sú yfirlýs- ing leiðarahöfundar Morgunblaðs- ins, að fyrirfram hafi enginn getað fullyrt að um lögbrot hafi verið að ræða. En þá hefði ekki átt að fara af stað með málið samkvæmt þeim reglum sem hér gilda! Morgunblaðið heldur í leiðaran- um uppteknum hætti og nefnir Baugsmál í sömu andrá og risa- stór efnahagsbrot vestan hafs og austan þar sem stórir hópar starfs- manna, hluthafa og viðskiptaað- ila biðu mikið tjón af framferði stjórnenda. Baugsmálið á ekkert sameiginlegt með slíkum málum. Öðru nær. Enginn hefur orðið fyrir tjóni. Stjórn, starfsmenn, hluthaf- ar, viðskiptaaðilar og endurskoð- endur hafa lýst yfir stuðningi við Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóra fyrirtækisins. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur má finna gagnrýni þess efnis að málið hafi verið blás- ið út langt umfram tilefni. Stað- reyndir tala sínu máli. Samtals hafa 59 ákæruliðir komið fram í tveimur ákærum, 43 verið vísað frá, 12 lyktað með sýknu og 4 með sakfellingu, þar af einum að því er laut að sakargiftum á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Fram kemur í dómnum að réttarhöld- in hafi verið of umfangsmikil og vitni leidd fyrir dóm af ákæruvald- inu, sem höfðu ekki frá neinu að segja. Áður hafa fjórir einstakling- ar verið sýknaðir af öllum sakar- giftum ákæruvaldsins í málinu, þ. e.a.s. tveir endurskoðendur félags- ins og þau Kristín Jóhannesdóttir, systir Jóns Ásgeirs, og Jóhannes Jónsson, faðir hans. Málatilbúnaður lögreglu og ákæruvalds er hruninn til grunna samkvæmt framansögðu ef sú nið- urstaða fær staðfestingu Hæsta- réttar Íslands, sem nú liggur fyrir eftir héraðsdóminn, hvað þá ef sýknað verður í þeim liðum, sem þó standa eftir. Um þetta þegir leiðarahöfundur Morgunblaðsins. Baugsmálið á rætur sínar í hatri, heift og öfund í garð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar vegna velgengni hans í viðskiptum. Allt frá árinu 1999 höfðu ákveðnir samkeppn- isaðilar og öfundarmenn Jóns Ás- geirs og Baugs dreift ósannind- um og óhróðri um starfshætti og framgöngu hans í viðskiptum og við uppbyggingu Baugs. Sumir þessara manna höfðu eyra áhrifa- mikilla stjórnmálamanna og í ljós hefur komið, að hina valdamestu meðal þeirra skorti þekkingu og dómgreind til að sjá í gegnum þann óhróður, sem borinn var á borð fyrir þá. Morgunblaðið hóf snemma að kyrja undir þennan söng og birti rangar og misvísandi fréttir, m.a. af álagningu í verslunum Baugs. Allar slíkar ásakanir voru hrakt- ar m.a. af opinberum stofnunum. Morgunblaðið hamraði einnig á því að fyrirtækið væri orðið of stórt og hvatti ritstjóri blaðsins, Styrm- ir Gunnarsson, eigendur Baugs í einkasamtölum til að koma sér úr landi! Smám saman varð til eitrað and- rúmsloft í kringum Baug sem náði hættumarki í ársbyrjun 2002. Sam- keppnisstofnun hafði ráðist til at- lögu gegn „röngum“ aðilum þegar húsleit var gerð hjá olíufélög- unum í desember 2001 og verð- bólgan lét á sér kræla um líkt leyti. Hatrið blossaði upp. Baug- ur var ákjósanlegur blóraböggull og hentugur sameiginlegur and- stæðingur Morgunblaðsins og stjórnmálamanna úr liði stjórn- ar og stjórnarandstæðinga, svo ekki sé minnst á samkeppnisaðila á markaði og í viðskiptum. Ráðist var til atlögu gegn Baugi, Jóni Ás- geiri og viðskiptafélögum hans á mörgum vígstöðvum, t.d. í Trygg- ingamiðstöðinni og Íslandsbanka, og íslenskir bankar drógu skyndi- lega til baka vilyrði fyrir stuðningi við yfirtöku á Arcadia í ársbyrjun 2002, svo dæmi séu nefnd. Inn í þetta eitraða andrúms- loft gekk Jónína Benediktsdóttir með ásakanir sínar og náði þeim tökum á Styrmi Gunnarssyni, rit- stjóra Morgunblaðsins, í ársbyrjun 2002 að hann afréð að veita henni og Jóni Geraldi Sullenberger lið- sinni sitt og Morgunblaðsins við að koma málinu til lögreglunnar. Það munaði um minna. Lögmað- ur Morgunblaðsins var fenginn til starfans í áheyrn framkvæmda- stjóra Sjálfstæðisflokksins. Ekki sakaði hve innmúraður og innvígð- ur lögmaðurinn var að sögn rit- stjórans. Um allt þetta voru grun- semdir í upphafi sem síðar fengust staðfestar með tölvupóstum milli Jónínu og Styrmis, sem Frétta- blaðið birti haustið 2005. Þar er rit- stjóri Morgunblaðsins afhjúpaður sem gerandi í málinu og trúverð- ugleiki blaðsins því enginn í allri umfjöllun um Baug og/eða eigend- ur fyrirtækisins. Á grundvelli ásakana Jóns Geralds um stórfelldan fjárdrátt fékk lög- reglan heimild til húsleitar í höfuð- stöðvum Baugs hinn 28. ágúst 2002. Á fyrsta degi kom þó í ljós að ásök- un um fjárdrátt upp á 62 milljónir króna reyndist ósönn þar sem um- ræddur reikningur fól í sér skulda- viðurkenningu fyrirtækis Jóns Geralds Sullenbergers gagnvart Baugi en hafði ekki verið gjald- færður. Jón Gerald hafði þóst ekki eiga eintak af reikningnum áður en ruðst var inn í Baug. Seinna fannst þó reikningurinn í fórum hans í Flórída. Í stað þess að snúa þá mál- inu upp á Jón Gerald fyrir rangar sakargiftir var ásökuninni á hend- ur þeim Jóni Ásgeiri og Tryggva Jónssonar snúið í bókhaldsbrot. Það er því rangt sem haft er eftir Sigurði Tómasi Magnússyni, sett- um ríkissaksóknara, í Morgunblað- inu 4. maí, að héraðsdómur hafi „fallist á mjög alvarlegt brot sem var hluti af upphaflegri kæru frá Jóni Gerald“. Þarna er viljandi eða óviljandi verið að breiða yfir mis- tök lögreglunnar. Varðandi hinn þátt upphaflegr- ar ásökunar Jóns Geralds um mis- ferli með fjármuni Baugs vegna skemmtibáts í Flórida liggur fyrir að lögreglan skoðaði aldrei af al- vöru sönnunargögn, sem studdu framburð og skýringar Jóns Ás- geirs og Tryggva. Þeir hafa nú verið sýknaðir vegna þessa áburð- ar Jóns Geralds Sullenberger í Héraðsdómi Reykjavíkur. Á upphafsstigum málsins mátti þeim vera ljóst sem stýrðu rann- sókninni að eitthvað meira en lítið var bogið við þessar ásakanir Jóns Geralds Sullenberger. Viðbrögð lögreglunnar voru þau að halda áfram að leita og grafa upp önnur mál innan fyrirtækisins. Þessi leit stóð yfir árum saman og þurfti fé- lagið ítrekað að leiðrétta og upp- lýsa um atriði, sem fullyrt var að fælu í sér alvarleg lögbrot. Vorið 2004 var félaginu t.d. afhent bréf í fjórum liðum af lögreglunni, sem fól í sér ásakanir um hundruð milljóna króna fjárdrátt í gegnum reikninga félagsins í Lúxemborg. Lögreglan óskaði eftir heimild fé- lagsins til húsleitar til að rannsaka þau mál! Miklum þrýstingi var beitt og haft í hótunum um alvar- legar aðgerðir ef ekki yrði orðið við beiðni lögreglunnar. Félagið neitaði lögreglunni um óheftan að- gang að bókhaldi fyrirtækisins, en afhenti nauðsynleg gögn og skýr- ingar. Í ljós kom að ásakanir þess- ar voru á misskilningi byggðar og rötuðu því ekki inn í ákærur máls- ins í upphaflegri mynd. Vorið og sumarið 2004 varð þess vart að valdamiklir stjórnmála- menn gengu á milli manna og báru út sögur um að í uppsiglingu væri ákæra um stórfelld auðgunarbrot Baugsmanna. Sama vor var skatt- rannsókn á fyrirtækinu í fullum gangi og það fylgdi sögu þessara sömu stjórnmálamanna að stærsta skattsvikamál sögunnar væri á lokastigi rannsóknar. Glæpamenn- irnir væru á leið í fangelsi. Þessar sögusagnir voru notaðar á bakvið tjöldin til að hafa áhrif á afstöðu manna í fjölmiðlamálinu, en því lauk með eftirminnilegum hætti snemma sumars 2004. Kjarni Baugsmálsins er ekki eins sakleysislegur og Morgunblað- ið vill vera láta. Málið snýst eins og áður segir um heift, hatur og öfund. En það snýst líka um annað. Baugsmálið er birtingarmynd alls hins versta sem fylgir því að fjöl- miðill á borð við Morgunblaðið hættir að segja fréttir en fer að búa þær til, skiptir sér af atburða- rás og flækir sér inn í samskipti við lögreglu og önnur stjórnvöld í þeim tilgangi að ná fram niður- stöðu, sem er blaðinu eða ritstjórn þess að skapi. Tekur sér vald til að knýja mál áfram eins og það sé hluti stjórnkerfisins. Slíkt kann aldrei góðri lukku að stýra. Höfundur er formaður stjórnar Baugs Group hf. Um grundvallaratriði Baugsmálsins Baugsmálið á rætur sínar í hatri, heift og öfund í garð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar vegna velgengni hans í viðskiptum. Allt frá árinu 1999 höfðu ákveðnir samkeppnisaðilar og öfundarmenn Jóns Ásgeirs og Baugs dreift ósannindum og óhróðri um starfshætti og framgöngu hans í viðskiptum og við uppbyggingu Baugs. ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is Rafstöðvar Bensín- og díselrafstöðvar í stærðum 2,5 kW -4,2 kW. HAGSTÆTT VERÐ À la carte postulín Nú fæst nýja Alizée-stellið frá Pullivuyt líka á Íslandi R V 62 35 Rekstrarvörur 1982–200725ára Halldór Sigdórsson Þjónn, aðstoðarverslunarstjóri hjá RV Óhefðbundin hönnun Skemmtilegt í framreiðslu Nýi pillenium-leirinn gefur postulíninu aukið högg- og hitaþol Opnar nýjar víddir í veitingaþjónustu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.