Fréttablaðið - 08.05.2007, Side 60

Fréttablaðið - 08.05.2007, Side 60
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab- ladid.is eða hringja í síma 550 5000. Coca-Cola fundið upp „Það er alltaf rosalega gaman að koma til Stutt- gart. Þetta er eins og að koma heim.“ Móðir okkar, Guðrún Jónasdóttir frá Öxney, lést 4. maí á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi. Hreinn Jóhannsson Sigríður Jóhannsdóttir Brynja Jóhannsdóttir Ástkær móðir okkar, Una Bára Ólafsdóttir, sem lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 26. apríl verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn 10. maí kl. 13.00. Fyrir hönd ættingja, Edda Guðmundsdóttir Magnús Guðmundsson Lára G. Nielsen. Eiginmaður minn, faðir okkar, tegndafaðir, afi og langafi, Kristján Guðlaugsson málarameistari, Goðheimum 26, Reykjavík, lést föstudaginn 4. maí. Útför auglýst síðar. Ástríður Ólafsdóttir Fríða Kristjánsdóttir Helga Kristjánsdóttir Ólafur Hreiðarsson barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Gylfi Felixson tannlæknir, Vesturási 4, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju miðvikudaginn 9. maí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð líknardeildar LSH í Kópavogi, sími 543-1159. Jóhanna Oddgeirsdóttir Oddgeir Gylfason Stefanía Arnardóttir Kjartan Gylfason Anna Guðbjartsdóttir Unnur Gylfadóttir Tryggvi Þorvaldsson Felix Gylfason Klara Ósk Hallgrímsdóttir og barnabörn. Ástvinur minn, Friðjón Pálsson, er látinn. Útför hefur farið fram. Þeir sem vilja minnast hans láti Parkinsons-samtökin njóta þess. Jóhanna Eggerz. Friðrik Jónsson, sendiráðunautur í utanríkisráðuneyt- inu, er fertugur í dag. Friðrik er liðtækur tónlistarmaður og réttur höfundur framsóknarlagsins svokallaða. Marg- ir hafa gengið út frá því að lag og texti væri eftir Magn- ús Stefánsson félagsmálaráðherra en Friðrik sagðist ekki taka slíkan misskilning nærri sér. „Magnús á frumkvæðið að því að lagið var tekið upp, útsett og gefið út, þannig að hann á jafn mikið í því og ég. Sjálfur er ég reyndar enn þá að velta því fyrir mér hvaðan lagið er stolið,“ sagði hann og hló við. Friðrik er búsettur á Akranesi og tekur iðulega strætó til vinnu í höfuðborginni. Framsóknarlaginu skaut upp í kolli hans í slíkri strætóferð að morgni síðasta dags vetr- ar. „Ég skrifaði textann að viðlaginu í lófatölvuna mína í strætó,“ útskýrði Friðrik. Lagið var svo frumflutt degi síðar, þegar kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins var opnuð á Akranesi. „Konan rak mig af stað með gítarinn að taka prufukeyrslu á laginu. Ég labbaði inn og taldi í og rest- in er bara orðin hluti af mannkynssögunni,“ sagði hann. Friðrik er framsóknarmaður í húð og hár. „Genetískur. En það hefur ekki brotist út í söng áður,“ sagði hann sposk- ur. „Reyndar kynntist ég konunni minni á framsóknartón- leikum á Hótel Borg fyrir kosningarnar 1987.“ Þessa dagana er Friðrik líka að rifja upp gamla takta með hljómsveitarbræðrum sínum úr menntaskóla, sem strengdu þess heit að koma aftur saman um fertugt. Bassaleikari hljómsveitarinnar reið á vaðið í júní. „Þá gáfum við honum bassa og bassamagnara. Gítarleikarinn varð fertugur í nóvember og fékk gítar og gítarmagnara. Við æfðum líka fyrir afmælið og tróðum upp í veislunni. Það var það vel heppnað að lögreglan mætti,“ sagði Frið- rik grafalvarlegur. Hann væntir þess því að fá annaðhvort gítar eða hljómborð að gjöf í dag. „Að minnsta kosti gull- sleginn hljóðnema,“ sagði hann og hló við. Friðrik kveðst enn vera að skipuleggja hina eiginlegu af- mælisveislu, en dagsetningin er ekki enn komin á hreint. „Í ljósi þessa lags geri ég ráð fyrir að ég sæki um að fá hús- næði Framsóknarflokksins á Hverfisgötunni lánað, svona í skiptum fyrir stefgjöldin,“ sagði hann kíminn. Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, Hörður Sævaldsson tannlæknir, Sefgörðum 10, Seltjarnarnesi, andaðist að heimili sínu 6. maí sl. Hann verður kvadd- ur í kyrrþey með nánustu ástvinum sínum. Ragnheiður Marteinsdóttir Helga Harðardóttir Sturla Jónsson Hildur Harðardóttir Óskar Einarsson Friðrika Þóra Harðardóttir Friðbjörn Sigurðsson Hjördís Edda Harðardóttir Arnór Halldórsson Ragnheiður Harðar Harðardóttir Lýður Þorgeirsson Sævaldur Hörður Harðarson Hörður Harðarson Sigríður Marta Harðardóttir barnabörn og langafabörn. Ástkær faðir okkar, bróðir og afi, Eymundur Kristjánsson, Bleikugróf 13, Rvík, áður til heimilis að Lundagötu 17B, Akureyri, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 5. maí sl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík laugardaginn 19. maí kl. 11.00. Börn, systkini og barnabörn. AFMÆLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.