Fréttablaðið - 08.05.2007, Page 68
Hótelerfinginn París Hilton
er afar ósátt við 45 daga
fangelsisdóm sem hún fékk
fyrir helgi. París var dæmd
fyrir að rjúfa skilorð sem
hún fékk þegar hún var tek-
in ölvuð undir stýri. Hilton
kennir blaðafulltrúa sínum
um fangelsisdóminn og hef-
ur látið hann róa.
„Ég skil ekki hvað gerðist því ég
gerði bara það sem mér var sagt.
Ég skrifa venjulega undir það sem
fólk segir mér að skrifa undir,“
segir hótelerfinginn París Hilton,
sem dæmd var til 45 daga fangels-
isvistar á föstudag. París er svo
brjáluð yfir dómnum að hún hefur
rekið fjölmiðlafulltrúann sinn og
kennir honum alfarið um ófarir
sínar.
Hin 26 ára París var dæmd til
fangelsisvistar eftir að hún var
fundin sek um að rjúfa skilorð og
keyra án ökuleyfis. París hélt því
statt og stöðugt fram fyrir rétti
að hún hefði aldrei sest upp í bif-
reiðina ef hún hefði vitað að öku-
leyfi hennar hefði verið afturkall-
að.
Blaðafulltrúi Parísar, Elliott
Mintz, bar vitni fyrir rétti og sagði
að hvorki hann né skjólstæðingur
sinn hefðu vitað að ökuleyfið hefði
verið afturkallað eftir að hún var
tekin ölvuð undir stýri í fyrra.
Dómarinn var afar ósáttur við
framburð Mintz, sagði hann „al-
gjört rugl“, þar eð pappírar hefðu
fundist í bíl Parísar þar sem fram
kæmi að hún hefði verið svipt öku-
leyfi.
París kenndi blaðafulltrúa
sínum alfarið um þessi mistök,
sagði að hann hefði tilkynnt henni
að ökuleyfið hefði aðeins verið
afturkallað í 30 daga og að henni
væri áfram frjálst að keyra til og
frá vinnu. Eftir að réttarhöldun-
um lauk og hún hafði verið dæmd
í fangelsi rak París blaðafulltrú-
ann Mintz.
„Ég á þetta ekki skilið,“ sagði
París um helgina. Hún hefur
ákveðið að áfrýja dóminum.
„Já, ég fann fyrir þau annan sal og
sá um veisluna fyrir þau. Ég sjálf-
ur er sjálfstæðismaður og skildi
þeirra sjónarmið,“ segir Stefán
Ingi, veitingamaður hjá Veislu-
haldi ehf.
Ungum brúðhjónum, sem
gengu í það heilaga um síðustu
helgi, brá heldur í brún þegar þau
óku framhjá samkomuhúsinu þar
sem til stóð að halda brúðkaups-
veislu þeirra: Ýmishúsinu svo-
nefnda sem er undir Öskjuhlíð.
Á þaki hússins er búið að koma
fyrir gríðarmiklum auglýsing-
um þar sem Framsóknarflokkur-
inn er auglýstur með risavöxn-
um myndum af frambjóðendum.
Fer þar Jón Sigurðsson formaður
fyrir sínu fólki. Hvorki hjá brúði
né brúðguma var hinn minnsti
áhugi fyrir því að halda brúð-
kaupsveisluna undir slíku þaki
og það þrátt fyrir að framsókn-
armaddaman hafi verið þaulset-
in í sínum hjónaböndum bæði í
landstjórn og borg. En kannski
ekki eins hamingjusöm og hún er
þaulsetin. Brúðguminn vildi ekki
tjá sig um þetta undir nafni í sam-
tali við Fréttablaðið en sagði þó
að þessi afstaða þeirra hefði notið
skilnings allra.
Ekki var við það komandi að
fá þessar auglýsingar fjarlægðar
fyrir veisluna og brást þá Stefán
Ingi skjótt við og fékk sal í Rúg-
brauðsgerðinni. Þar fór veislan
fram og skemmtu menn sér hið
besta.
Vildu ekki Framsókn í brúðkaupið
Kate Moss vill eignast barn með
kærasta sínum Pete Doherty.
Samkvæmt breska blaðinu Daily
Express sagði Kate vinkonu sinni
frá þessari ósk. „Allir eru heltekn-
ir af hugmyndinni um hjónaband
og hvar við stöndum gagnvart því.
Það skiptir engu máli af því að við
erum saman,“ sagði fyrirsætan.
Hún sagði þau hins vegar þurfa
þau tengsl sem hljótast af því að
eignast barn. „Pete væri skemmti-
legur pabbi.“
Kate á fyrir dótturina Lilu
Grace, en Pete Doherty á son-
inn Astile. „Við eigum tónlistina
okkar saman og við erum að gera
plötu, en barn myndi gera útslag-
ið fyrir Pete og mig,“ sagði fyrir-
sætan. Pete Doherty hefur verið
áberandi í fjölmiðlum fyrir eit-
urlyfjaneyslu sína, en það trufl-
ar Kate ekki. Hún segist telja að
barn myndi hjálpa honum að losa
sig við ósiðinn.
Kate Moss
langar í barn
Aðstandendur Óbeislaðrar fegurð-
ar, hinnar óhefðbundnu fegurð-
arsamkeppni sem fram fór á Ísa-
firði síðasta dag vetrar, söfnuðu
alls 497.000 krónum til handa Sól-
stöfum. Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu frá hópnum, en upp-
haflegt takmark var hálf milljón
króna. „Það er okkur mikill heiður
og ánægja að geta lagt Sólstöfum
lið, því mikið starf er óunnið hjá
þessum hetjum sem standa að Sól-
stöfum,“ segir í tilkynningu.
Hálf milljón
til Sólstafa
Helen Mirren hefur móðgað Elísa-
betu Bretlandsdrottningu með því
að afþakka persónulegt boð henn-
ar um kvöldverð í Buckingham-
höll. Leikkonan fékk Óskarsverð-
launin fyrir túlkun sína á Elísa-
betu í kvikmyndinni Drottningin
en taldi sig vera of upptekna fyrir
kvöldverðinn. Að sögn er Elísabet
sármóðguð yfir hegðun Mirren.
Hafnaði
drottningunni