Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 80
Ég man vel eftir langömmu minni. Hún var falleg gömul
kona sem gekk í stórrósóttum kjól-
um og mundi vel eftir því þegar hún
sá gúmmístígvél í fyrsta sinn. Þegar
hún var unglingur höfðu konur ekki
kosningarétt. Það höfðu vinnu-
menn, snauðir bændur og þurra-
búðarmenn ekki heldur. Fólk hafði
misjafna sýn á lýðræðið þá og nú.
var ekki
hluti mannréttinda heldur stjórn-
tæki sem veitti vitrum mönnum
rétt til þess að velja vitrustu menn-
ina á þing svo þeir gætu stjórnað.
Síðan eru liðin mörg ár.
mínu, sem
lengi hefur starfað með elstu borg-
urum landsins, þykir kjördagar
ávallt svolítið erfiðir. Á þeim dögum
fær jafnvel fólk sem starfsfólk
heldur að sé öllum löngu gleymt
heimsóknir. Gæskuríkir gestirn-
ir tilkynna starfsþýinu að blessuð
gamla konan eða maðurinn hafi nú
alltaf viljað nýta atkvæðisrétt sinn
í gegnum tíðina og engin breyting
sé nú á.
ég gat fyrst kosið voru
þúsaldarmót á næstunni. Skömmu
fyrir kosningar spurði enskukenn-
arinn minn bekkinn út í skoðanir
hans á því hvað hægt væri að gera
í þágu þriðja heimsins svokallaða.
Krúttkynslóðin var ekki fullmótuð
og fátt varð um svör. Flest vorum
við búin að hlusta yfir okkur á boð-
skap Smashing Pumpkins og Nir-
vana og það hafði fengið okkur til
að efast um tilgang alls. Depurð og
tortryggni voru aðalsmerki ungl-
inga þá, hugsjónir jafn hallærisleg-
ar og herðapúðar.
nokkra þögn svaraði töff-
ari bekkjarins því að í raun væri
ekkert hægt að gera. Til dæmis
myndu allir skógar eyðast upp ef
þjóðir þróunarríkjanna ætluðu að
fara að nota klósettpappír. Sárs-
aukaviprurnar sem fóru um and-
lit míns indæla og vinstrisinnaða
enskukennara við að heyra þetta
svar munu aldrei hverfa mér úr
minni. Skömmu síðar fór ég ásamt
sveitunga mínum og bekkjarbróð-
ur, sem svo umhugað var um skóga
veraldar, í félagsheimili Landeyja
til að kjósa til Alþingis.
gegnum árin hef ég reynt að telja
mér trú um að ekki sé til sá einstakl-
ingur sem ekki hefur eitthvað fram
að færa. Því hljóti atkvæði hans að
vera merkilegt og vel ígrundað. Ég
er ekki alveg sannfærð en vona hið
besta. Nóg hefur landinn æft sig að
kjósa yfir öllum Idol-þáttunum og
auðvitað lærði þjóðin að meta mik-
ilvægi hvers atkvæðis með því að
fylgjast með Rockstar Supernova
og koma Magna okkar áfram. Ég
segi bara x við Eirík Hauksson og
held af stað til Helsinki.
Þaulæfður
kosningaréttur
A
RG
U
S
/
07
-0
02
1
* skv. útlánareglum SPRON
Kreditheimild* með 0% vöxtum
og engum kostnaði í DMK!
Nýttu þér þessi einstöku kjör.
Sæktu um DMK á spron.is
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is