Fréttablaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 48
hús&heimili
Símaskráin 2007 er komin út og
forsíðu hennar að þessu sinni
prýðir verk eftir ungan listamann,
Kristin Gunnar Atlason, sem er
fyrsta árs nemi í grafískri hönnun
í Listaháskóla Íslands.
Kristinn Gunnar segist hafa
verið að teikna og hanna síðan
hann man eftir sér. Hann ákvað
því að fara í Myndlistaskólann í
Reykjavík þaðan sem leiðin lá í
Listaháskóla Íslands þar sem hann
er á fyrsta ári í grafískri hönnun.
Hefð er fyrir því að nemendur
á fyrsta ári í grafískri hönnun taki
þátt í samkeppninni um forsíðu
símaskrárinnar. „Þetta er hluti af
kúrs í skólanum svo allir fyrsta
árs nemar taka þátt og kennar-
inn gefur okkur einkunn fyrir
tillögurnar líka,“ segir Kristinn
Gunnar.
Þemað í keppninni í ár var um-
hverfisvænt og Kristinn segist að-
eins hafa haft það í huga við hönn-
un forsíðumyndarinnar. „Þetta er
allt eitthvað svona krúttlegt og
rómantískt, svona blóm og eitt-
hvað að gerast auk þess sem græni
liturinn er áberandi,“ segir hann.
Sigurinn í keppninni kom
Kristni ánægjulega á óvart. „Ég
var mjög sáttur með sigurinn en
samt kom það dálítið á óvart að
þessi tillaga hefði unnið,“ segir
hann.
Kristinn ætti þó ekki að vera
óvanur því að vinna samkeppni
því fyrsta árs nemarnir í grafísku
hönnuninni tóku þátt í annarri
hönnunarsamkeppni í vetur sem
Kristinn vann einnig. „Í þeirri
keppni áttum við að hanna lógó
fyrir Hringsjá sem er svona end-
urhæfingarstöð,“ segir hann.
Það er því augljóst að Krist-
inn er efnilegur en ekki er enn
komið á hreint hvað hann á eftir
að fást við í framtíðinni. „Þegar
ég byrjaði í grafísku hönnuninni
var ég svolítið að gæla við að
fara í arkitektúr eða myndlist
því ég er mikið að mála líka. Í
skólanum er ég líka búinn að kynn-
ast ýmsu nýju eins og vöruhönnun
og svoleiðis sem mér finnst mjög
áhugavert og eins húsgagnahönn-
un, þannig að það er allt mögulegt
í þessu. Ég er samt mjög sáttur þar
sem ég er núna. Þetta er rosalega
skemmtilegt nám og skemmtileg-
ir krakkar. Ég stefni því á að klára
grafísku hönnunina en eftir það
er allt óráðið, ég spila þetta bara
svona eftir eyranu eitthvað,“ segir
Kristinn.
Krúttlegt og rómantískt
og eitthvað að gerast
Kristinn hefur áhuga á ýmsu og segir að framtíðin sé enn óráðin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kristinn vann aðra hönnunarsam-
keppni sem fyrsta árs nemar í grafískri
hönnun tóku þátt í með þessu lógói fyrir
Hringsjá.
„Krúttlegt og rómantískt“ segir hönnuðurinn sjálfur um forsíðumyndina á nýju símaskránni.
Þessi mynd eftir Kristin er á sýningu
í versluninni Fígúru á Skólavörðu-
stíg sem verður opnuð í dag.
19. MAÍ 2007 LAUGARDAGUR8