Fréttablaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 33
Tískuhús hafa sum hver löngum hannað klæðnað
fyrir börn og þá sérstaklega fyrir stelpur (Baby
Dior, Cacharel, DKNY). Þannig hafa fínar frúr klætt
dætur sínar í stíl við sinn eigin klæðnað. Prada fram-
leiðir litla strigaskó og svona mætti áfram telja.
Strákar njóta samt sífellt meiri athygli hönnuða og
nú eru nokkur tískuhús sem bjóða upp á tískulínur
bæði fyrir stráka og stelpur (D & G).
Eins og fyrir fullorðna eru litirnir sterkir
fyrir þetta sumar, blandað er saman hvítu
sem er einn aðalliturinn og hárauðu í
munstri, til dæmis í kjólum og skyrtum
(Kenzo). Einnig er mikið um gult og
grænt og hjá strákunum er bleikt og
fjólublátt komið í bolina líkt og hjá körl-
unum í fyrrasumar. Sömuleiðis er ýmiss
konar munstur og röndótt notað bæði í
boli og peysur í barnatískunni líkt og hjá
fullorðnum.
En framleiðendur í fjöldaframleiðslu
eru sömuleiðis uppteknari en áður af
barna- og unglingatísku. Ástæðurnar eru
margar. Í Frakklandi er fæðingartíðni
óvenju há miðað við önnur Evrópulönd (tvö
börn á hverja konu, 890.000 fæðingar
2006) og markaðurinn því stór. Konur
eru flestar um þrítugt og útivinnandi
þegar þær hefja barneignir en fæðing-
arorlof er hér aðeins tæpir þrír mán-
uðir og því mæður fullar samvisku-
bits að skilja hvítvoðungana eftir í
höndum ókunnugra. Þess vegna er ekkert nógu gott
til að klæða litlu greyin.
Umhverfisvernd verður sífellt mikilvægari í
tískunni og fara barnaföt ekki varhluta af því. Eðli-
lega vilja foreldrar ekkert nema það besta fyrir
börn sín og því verður allt sem er náttúrulegt og nú
í jafnvægi við náttúruna sífellt vinsælla. Til dæmis
býður nú H&M upp á föt úr umhverfisvænni
bómull en H&M hefur löngum verið framarlega
hvað varðar tískuhönnun fyrir yngri kynslóð-
irnar. Sama má segja um Monoprix, sem er eins
konar Hagkaup hér í landi og hefur um
nokkurt skeið boðið vörur úr náttúru-
vænni bómull. Mörg fyrirtæki í fjölda-
framleiðslu hafa tekið sig á í hönnun-
inni til að bjóða tískulegri klæðnað sem
fylgir tíðarandanum í litum og munstri.
Joe Black er nýtt merki fyrir stráka frá
2-16 ára sem Stéphane Marquand hannar
fyrir en hann segist hafa tekið eftir því
að framboðið sé miklu meira fyrir stelp-
ur og að það vanti meiri fjölbreytni fyrir
stráka. Hjá Joe Black eru framleidd föt og
fylgihlutir og nú geta pabbar keypt sér fylgi-
hlut í stíl við strákinn líkt og mömmurn-
ar áður. Þó að viðtökurnar hafi verið góðar
hefur fyrirtækið nú ákveðið að setja á mark-
að nýja tískulínu fyrir stelpur. Strákatískan
er ekki enn orðin nógu arðbær til að hún beri
sig ein og sér.
Stærðir: 27 - 35
4.690 kr.
Stærðir 27 - 35
4.690 kr.
Stærðir 27 - 35
5.890 kr.
Stærðir 21 - 26
5.990 kr.
Stærðir 21 - 26
5.390 kr.
Veglegur kaupauki fylgir öllum keyptum
vörum frá Levante út september!
Fæst í apótekum og smásöluverslunum um land allt
*Gildir á meðan birgðir endast
Vekja eftirtekt!
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI