Fréttablaðið - 08.06.2007, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
FÖSTUDAGUR
8. júní 2007 — 153. tölublað — 7. árgangur
KALLI BJARNI:
Dópið tók
fjölskylduna,
ferilinn og
frelsið.
FYLGIR FRÉTTA-
BLAÐINU Í DAG
8. JÚNÍ 2007
FERILINN, FJÖLSKYLDUNA OG FRELSIÐ BLS.10
DÓPIÐ TÓK ALLT
Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir Kalla Bjarna, segir son sinn hafa eyðilagt allt en trúir því að hann geti komið lífinu á rétta braut.
Með 1,5 milljarða lúxussnekkju í smíðum BLS. 2
Sumum börnum liggur á að komast í heiminn Bloggið hennar Ástu Lovísu Halla hafnaði hlutverki í söngleik …
VEÐRIÐ Í DAG
MENNTAVEGURINN
Afreksfólk á sér-
stakri braut í FB
Sérblað um framhaldsnám
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
MEÐ VEISLU Í FARANGRINUM
Furuvín og
njólajafningur
Matur
Í MIÐJU BLAÐSINS
Út er komin bókin Með veislu í farangrinum
- Matreiðslukver ferðamannsins. Þema bók-
arinnar er hvernig hægt er að nota það sem
fyrirfinnst í náttúru Íslands í matargerð. Bókin
inniheldur fjölmargar uppskriftir.
Fæstir gera sér grein fyrir öllum þeim mat- og
kryddjurtum sem vaxa hér á Íslandi. Kunnáttan
byrjar og endar með blóðbergstei en fæstum dett
ur í hug að hafa fífla, njóla o hAllar þe
með því sem hendi er næst,“ segir Ingibjörg. „Maður
verður að prófa sig áfram og það er mikilvægast að
vera bara hugaður og þora að prófa nýja hluti.“
Ragnheiður tekur í sama streng. „Ef plantan
bragðast vel má nota hana í salat og ef hún lyktar
vel gæti hún nýst sem krydd,“ segir Ragnheiður
sem oftar en ekki hefur þurft að galdra fram stór-
máltíðir úr litlum efnum við erfiðar aðstæður.
Ingibjörg og Ragnheiður hafa nú sett
reiðslubók þar se íd
Matarveisla í fjallasal
n
/
S
Í
A
menntavegurinnFÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007
Skráning fer fram 25. maí til 10. júní á heimasíðunni www.fa.is/fjarnam
Fjarnám allt árið ! Skráning á sumarönn 2007
Kirsuberjagarður á tíu
mínútum
Árni Pétur Guðjónsson
leikari tekur þátt í dans-
leikhúskeppni Borgarleik-
hússins og Íslenska
dansflokksins.
MENNING 32
Lét sérmerkja bjór-
inn
Áhöfn Bjarts frá Neskaup-
stað lét sérmerkja sér bjór
fyrir sjómannadaginn.
FÓLK 50
Árni í raunveruleikaþætti
Þingmaðurinn Árni
Johnsen eldaði eggja-
hræru úr svartfugls-
og fýlseggjum.
FÓLK 50
FÓTBOLTI Eftir slakt gengi íslenska
karlalandsliðsins undanfarna viku
hafa margir óskað eftir því að Eyj-
ólfur Sverrisson segi starfinu
lausu. Árangur liðsins undanfarna
átján mánuði er ekki góður og
hefur Eyjólfur ekki staðið undir
þeim væntingum sem til hans voru
gerðar.
Það er raunhæft fyrir KSÍ að
ráða erlendan stórþjálfara til að
taka við íslenska landsliðinu.
Heimildarmenn Fréttablaðsins
segja að vel væri hægt að fá þekkt
nafn úr þjálfaraheiminum og
greiða honum 20-30 milljónir í árs-
laun.
KSÍ er vel stætt og gæti hæg-
lega borgað þessi laun af vaxta-
tekjum sambandsins einum saman
sem í fyrra námu þær rúmum 77
milljónum króna. Að auki á KSÍ
um 200 milljónir króna samkvæmt
síðasta ársreikningi sambandsins.
Það er algengt í knattspyrnu-
heiminum að þær þjóðir sem ekki
hafa náð miklum árangri í fótbolt-
anum ráði til sín þekkta þjálfara.
Gott dæmi um það eru Finnar sem
fyrir átján mánuðum réðu Eng-
lendinginn Roy Hodgson til
starfa.
Íslendingar og Finnar hafa svip-
aðan fjölda atvinnumanna utan
föðurlandsins og segir Timo
Jarvio, einn virtasti íþróttablaða-
maður Finna, að sér komi á óvart
hversu slakt gengi hefur verið hjá
íslenska landsliðinu.
„Mér hefur alltaf fundist Íslend-
ingar eiga betri leikmenn en við
Finnar. Samt virðist það sjaldan
skila sér í bættum árangri íslenska
landsliðsins,“ sagði Jarvio við
Fréttablaðið í gær.
Undir stjórn Hodgsons hafa
Finnar náð ágætis árangri og mun
betri en sá sem íslenska liðið getur
státað sig af. Það er einnig athygl-
isvert að á þessum átján mánuð-
um hefur Hodgson stýrt Finnum í
sjö vináttulandsleikjum en Eyjólf-
ur því íslenska í aðeins tveimur.
- esá / sjá síður 42, 43, 44 og 46
Landsliðsþjálfaramál knattspyrnulandsliðs karla til umræðu:
Raunhæft að ráða erlendan þjálfara
ÁFRAM HÆGVIÐRI - Í dag
verður hæg breytileg átt. Dálítil
rigning sunnan til, einkum síðdeg-
is. Hætt við smáskúrum annars
staðar, síst þó austan til á landinu.
Hiti 10-17 stig, hlýjast til landsins.
MENNTUN Stórfjölga á fagfólki í
leikskólum Reykjavíkur og
minnka starfsmannaveltu með
markvissum aðgerðum sam-
kvæmt nýrri skýrslu starfshóps
sem leikskólaráð Reykjavíkur
setti á laggirnar í október 2006.
„Í fyrrahaust þegar vinnan fór
af stað stóðum við frammi fyrir
mikilli manneklu. Við brugðumst
við henni á þeim tíma með skamm-
tímalausnum en aðalvinnan í
starfshópnum fól í sér að koma
með langtímalausnir sem koma
okkur til góða næstu tíu árin,“
segir Þorbjörg Helga Vigfúsdótt-
ir, borgarfulltrúi og formaður
starfshópsins.
Starfshópurinn leggur til að
leikskólastarfsfólki með stúdents-
próf verði gert auðveldara að
ljúka fjarnámi í leikskólafræðum
samhliða starfi. Lagt er til að þeir
sem hafa starfað í eitt ár eða leng-
ur í leikskólum borgarinnar geti
sótt um að stunda fjarnám í leik-
skólafræðum með starfi og án
launaskerðingar.
Þorbjörg segist mjög ánægð
með fagnámskeið í samvinnu við
Eflingu stéttarfélag sem ófag-
lærðum starfsmönnum leikskóla
hefur staðið til boða. „Ég held að
þetta nám eigi eftir að hjálpa leik-
skólunum mjög mikið. Starfsfólk-
ið sem sækir þetta nám býr yfir
gríðarlegri reynslu og fær í raun
staðfestingu á því að það sem það
gerir í starfi sé fræðilega séð
rétt,“ segir hún.
Í skýrslunni kemur einnig fram
að fjöldi nýráðninga á árinu sé sjö-
hundruð en Þorbjörg segir mikil-
vægt að lækka þá tölu. „Það er
augljóst að það er minni starfs-
mannavelta á þeim leikskólum þar
sem skipulag er gott, þróunar-
verkefni af ýmsum toga og áhersla
á endurmenntun. Nú erum við
með tölu fyrir framan okkur og þá
fara hlutirnir að gerast og mark-
miðið er að sjálfsögðu að lækka
hana,“ segir Þorbjörg.
Hún segir að nú auglýsi hver
leikskóli fyrir sig eftir starfsfólki
og það hafi reynst vel því þá gefist
leikskólunum tækifæri til að
kynna sína eigin hugmyndafræði
og stefnu og fá um leið betri
umsóknir. „Starfsmannavelta er
mjög kostnaðarsöm þannig að til
lengri tíma litið er betra að leggja
fjármuni í vandaðar atvinnuaug-
lýsingar. Það skilar sér á endan-
um,“ segir Þorbjörg. - lbb
Styrkja leikskólana
Minnka á starfsmannaveltu og fjölga faglærðum kennurum í leikskólum úr rúmum
42 prósentum í 70 prósent samkvæmt tillögu starfshóps Reykjavíkurborgar.
LEIKSKÓLASTARFIÐ
Styrkleikar:
• Lítil starfsmannavelta meðal leik-
skólakennara
• Góður vinnustaður og gefandi
vinna
• Jákvæðni í garð leikskólakennara
• Hlutastörf í boði
• Mikil þekking og reynsla
Veikleikar:
• Starfsmannaþjónusta fáliðuð
• Vanmat, of lítið sjálfstraust
• Skortur á fagfólki
• Lág laun
• Of mikið vinnuálag
HOLLAND Hollenskir nemar hafa
fundið upp alkóhólduft sem má
selja unglingum með löglegum
hætti.
Duftið kallast Booz2Go og er
selt í 20 gramma pakkningum sem
kosta um eina evru hver. Aðeins
þarf að bæta vatni við duftið til að
fá drykk með límónubragði og
þriggja prósenta áfengishlutfalli.
„Þar sem áfengið er ekki í
vökvaformi megum við selja það
unglingum undir 16 ára,“ segir
Martyn van Nierop, einn uppfinn-
ingamannanna. -sgj
Hollenskir námsmenn:
Selja ungling-
um alkóhólduft
STJÓRNMÁL Jón Sigurðsson,
fyrrverandi iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, veitti Landsvirkjun
rannsóknarleyfi á Gjástykkis-
svæðinu í nágrenni Mývatns
tveimur dögum fyrir alþingis-
kosningarnar 12. maí síðastliðinn.
Leyfið var veitt 10. maí og gildir
það í þrjú ár, til 10. maí 2010.
Þetta er eina rannsóknarleyfið
vegna fyrirhugaðra virkjunar-
framkvæmda sem veitt hefur
verið á þessu ári.
Árni Finnsson, formaður
Náttúruverndarsamtaka Íslands,
segir veitingu leyfisins „í skjóli
komandi kosninga“ vera forkast-
anlega. - mh
Rannsókn á Gjástykkissvæði:
Landsvirkjun
veitt leyfi
HLUTABRÉF Helmingi meiri velta
var með hlutabréf í Glitni en hjá
öðru veltumesta fyrirtækinu í
Kauphöll Íslands á fyrstu fimm
mánuðum ársins. Alls námu
viðskipti með bréf Glitnis 334
milljörðum króna á tímabilinu.
Kaupþing kom þar á eftir með
211 milljarða króna veltu.
Sex fjármálafyrirtæki skipuðu
efstu sætin yfir veltuhæstu
fyrirtækin. - eþa / sjá bls. 22
Fjármálafyrirtæki veltumikil:
Mest verslað
með bréf í Glitni
RÓIÐ Á ÞURRU LANDI Þessir krakkar skemmtu sér konunglega á siglinganámskeiði þegar ljósmyndara bar að garði í gær þótt ekki
væru þau enn enn komin á flot. Á námskeiðinu, sem siglingaklúbburinn Siglunes stendur fyrir, er börnunum kennt að róa kanó,
kajak og árabát, og að lokum er farið í ævintýralegar sjóferðir. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM