Fréttablaðið - 08.06.2007, Síða 22

Fréttablaðið - 08.06.2007, Síða 22
Mesta veltan var með hlutabréf Glitnis á fyrstu fimm mánuðum ársins samkvæmt tölum Kaup- hallarinnar. Heildarvelta með bréf félagsins nam um 334 millj- örðum króna sem er ríflega helm- ingi hærri upphæð en hjá Kaup- þingi sem kemur í öðru sæti. Fjöldi viðskipta var hins vegar mun meiri með bréf í Kaupþingi en í Glitni. Eins og svo oft áður voru fjár- málafyrirtækin mest áberandi en þau sitja í sex efstu sætunum. Actavis var veltuhæsta rekstrar- félagið. Stór viðskipti skýra þessa stöðu Glitnis. Tilfærslur bréfa á milli félaga og svo auðvitað hin miklu viðskipti á vormánuðum þegar Karl Wernersson í Milestone og Einar Sveinsson, fyrrum stjórn- arformaður, seldu bréf til ýmissa fjárfesta. Grétar Már Axelsson, sér- fræðingur hjá Greiningu Glitn- is, býst við ágætri veltuaukningu í ár frá metárinu í fyrra. Heild- arvelta á hlutabréfamarkaði nam 1.239 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins sem sam- svarar um 28 prósenta veltuaukn- ingu milli ára. Hugsanleg yfirtaka Björgólfs Thors á Actavis kann að ráða miklu um þá aukningu sem mun verða milli ára. „Tökum sem dæmi ef að öll hlutabréf í Acta- vis fara í gegnum veltukerfið þá detta þar inn um 280 milljarðar króna sem nemur markaðsvirði félagsins.“ Hann bendir á að á síðasta ári jókst heildarvelta í Kauphöll um rúm áttatíu prósent. Mikil við- skipti og stórar tilfærslur á bréf- um einkenndu síðasta ár. Þar nefn- ir hann sölu Straums á bréfum í Glitni og sölu Magnúsar Kristins- sonar og Kristins Björnssonar á Straumsbréfum til FL Group. „Svona tilfærslur skekkja það sem maður getur kallað undir- liggjandi veltu á markaðnum eða mælingu á henni. En það virðist samt vera nokkur undirliggjandi vöxtur á milli ára.“ [Hlutabréf] Eftir helgina munu Fjármálaeftir- litið og kínverska bankaeftirlitið skrifa undir samstarfssamning sín á milli. Forsvarsmenn kínverska eftirlitsins verða í heimsókn hér á landi, meðal annars til að vera viðstaddir morgunverðarfund um útrás íslenskra fjármálafyrirtækja til Kína. Fyrir honum stendur FME á mánudag. Samningurinn sem um ræðir snýst um samstarf í eftirliti beggja eftirlitsaðila. „Tilefni samningsins er starfsemi Glitnis í Kína. Hann tekur til almenns eftirlits og sam- starfs milli eftirlitsaðilanna,“ segir Guðbjörg Bjarnadóttir, sviðsstjóri lánasviðs Fjármálaeftirlitsins. „Við berum eftirlitsábyrgð á starf- semi útibúa íslensku bankanna að langstærstu leyti. Samningurinn tæki líka til starfsemi kínverskra fjármálafyrirtækja hér á landi, ef hún væri fyrir hendi.“ Svipaður samningur er í gildi v ið fjármálaeftirlitið á Mön. Í ljósi útrásar íslenskra fjármálafyrir- tækja er allt útlit fyrir að samning- urinn nú verði ekki sá síðasti. FME semur við kín- verskt bankaeftirlit Peningaskápurinn... Sanderson ehf., félag í eigu Tryggva Jónssonar, fyrrverandi eiganda og forstjóra bifreiðaum- boðsins Heklu, hefur keypt 28 pró- senta hlut í Humac af F. Bergsson Holding ehf., félagi Frosta Bergs- sonar, og Hlunn ehf., fyrirtæki feðganna Þórarins Elmars Jen- sen og. Markúsar og Gests Þórar- inssona sem áður ráku 66° Norð- ur. Kaupverð er ekki gefið upp. Humac á og rekur 19 verslanir Apple á Íslandi og Norðurlöndun- um. Félögin Sanderson, Baug- ur Group og eignarhaldsfélag- ið Grafít, sem er í eigu Hannesar Smárasonar og Þormóðs Jónsson- ar og á meðal annars auglýsinga- stofuna Fíton, eru eftir viðskiptin stærstu hluthaf- ar Humac með samtals um 87 prósenta hlut í félaginu, að því er fram kemur í tilkynningu. Tryggvi Jóns- son tekur sæti í stjórn Humac. Þar eru fyrir Þórdís Sigurð- ardóttir, sem jafnframt er stjórnarformaður, Árni Pétur Jónsson og Þormóð- ur Jónsson. Framkvæmdastjóri Humac er stofnandi fyrirtækis- ins, Bjarni Ákason, sem í lok apríl seldi þriðjungshlut sinn í félaginu til Grafít. Tryggvi kaupir um þriðjung í Apple Helmingi meiri velta var með hlutabréf Glitnis en næsta félags á fyrstu mán- uðum ársins. Stór viðskipti og tilfærslur á bréfum skekkja undirliggjandi veltu- aukningu. Hugsanleg yfirtaka á Actavis kæmi til með að auka veltu til muna. SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 76 18 0 5 .2 0 0 7 Flugustangasett Redington Tilboð 21.990kr. Verð áður 24.990 kr Líftíðarábyrgð Önnur sett frá 14.990 kr. Vangen öndunarvöðlur Tilboð 15.990kr. Verð áður 18.990 kr. Vangen mittisvöðlur Frábærar dömuvöðlur Tilboð 11.990kr. Verð áður 14.990 kr. Vöðlujakki Tiboð 14.990kr. Verð áður 19.990 kr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.