Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.06.2007, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 08.06.2007, Qupperneq 54
BLS. 12 | sirkus | 8. JÚNÍ 2007 13.9.2006 Long time n o see !!! Það er orðið ansi la ngt síðan að þetta b logg var opið en ég ákvað að opna það að nýju. Á stæðan er sú að ég er búin að ganga í g egnum HELL tíma síðustu mánuði og ég er að vona að með því að skrifa um hlutina og það sem fram undan er hjálpi það mér. Fyrir ykkur sem ekk i eru að skilja bullið í mér þá lenti ég á spítala 29. júlí sl og fékk síð an þær hræðilegu f réttir 4. ágúst að ég væri með krabbamein. 15.5.2007 Ljósið í myrkrinu, ljósið í lífi mínu... Þó að ég hafi fengið hræðilegar fréttir í New York ... Gerðist jafnframt dásam- legur hlutur í mínu lífi. Mig hefur mikið langað til að segja ykkur frá þessu fyrr en beit í tunguna á mér þar sem ég vildi segja fyrst vinum og ættingjum. Ég hef yndislegar fréttir að færa ... Nú er ég opinberlega heitbundin kona . Ég og Diddi minn trúlofuðum okkur á veitingastaðnum Rainbow Room í Rockefeller Center á 86. hæð. Það er veitingastaðurinn sem t.d myndin Sleep- less in Seattle er að hluta til tekin upp. Aðstæður okkar eru skrítnar hvernig sem á það er litið en þetta var bara eitthvað sem að ég þráði svo rosalega á þessum tíma- punkti í mínu lífi og þar sem ég elska þennan strák. 29.12.2006 Friday Mig langar að spyrja ykkur lesendur góðir hvernig hugsið þið til dauðans ??? Hræðist þið hann ??? Hald- ið þið að við deyjum og fæðumst aftur seinna ??? Hittum við ættingja og vini sem hafa dáið á undan okkur ??? Er líkaminn okkar bara hulstur eða eins og bíll sem að bilar og skemmist með tímanum og við fáum svo annað hulstur seinna þegar við höfum náð einhverjum þroska ??? Eða er bara allt svart eftir að við deyjum og öllu lokið ??? Ég hef stundum sjálf velt þessu fyrir mér. Mér finnst pínu óhugsandi að öllu sé bara lokið þegar við deyjum. Ég vona allavega að þegar minn tími kemur að ég fái að hitta alla ættingja mína sem eru farnir. Finnst eitthvað svo óhugsandi og óaðlaðandi að hugsa til þess að allt sé bara svart og maður rotnar í einhverri mold. Afhverju deyja þá sumir sem ungabörn eða ungir??? Hver var þá eigin- lega tilgangurinn með þeirra stuttu komu í þetta líf ??? 12.5.2007 Mætt aftur á svæðið Loksins kom að því.. Er núna sest fyrir framan tölvuna og farin að skrifa nýja blogg- færslu. Síðustu dagar hafa verið mér erfiðari en ég hef nokkurn tímann uppl ifað áður. Ég var svo full bjartsýnar og vonar og allt í einu sprakk blaðran og ég sé enga leið út. En viti menn mér er nákvæmlega sama hvað hver segir. Ég ætla mér að lifa m eira en nokkra mánuði. Það er ekkert hægt að segja svona og ákveða að þessi x man neskja eigi þessa x marga daga eftir. Við erum jafn misjöfn eins og við erum mörg o g ég er ákveðin að taka einn dag í einu og lifa sem lengst. Ég er búin að ræða við tvö elstu börnin mín. Útskýra fyrir þeim alvarleikann sem við mér blasir núna. Þau verða að vita alla möguleikana og vera undir það búin. Ég hélt svei mér þá að hjarta mitt myndi kremjast trilljón sinnum á meðan. Að sjá alla hræðsluna og örvæntinguna í litlu augunum þeirra og öll litlu tárin og geta ekki sagt neitt til að draga úr sársaukanum. Get rétt ímynd að mér hvernig litlu skinn- unum líður.... Úffffff lífið er svo ósanngjarnt eitthvað. Ég vil ennþá trúa að ég eigi von. Ég vil ennþá trúa að ég eigi eftir að gifta mig eftir nokkur ár, ferma börnin mín o.s.frv .. o.s.frv. Ég ætla mér og ég skal !! 9.5.2007 Sorgarfréttir Skrifa í dag fyrir hönd systur minn- ar sem treystir sér ekki til að skrifa. Læknarnir höfðu samband. Mein- vörpin þekja nú 60% af lifrinni og það sem verra er sjást nú skýr merki þess að krabbameinið situr á fleiri stöðum í líkamanum. Lækn- arnir í NY geta því ekki hjálpað, hvorki með skurðaðgerð né lyfja- meðferð. Sjúkdómur- inn er ólæknandi og að sögn þeirra á Ásta nokkra mánuði eftir ólifaða. Daði bróðir Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir lést á líknardeild Landspítalans 30. maí síðastliðinn en hafði þá vakið mikla athygli fyrir hetjulega baráttu sína við krabbamein. Ásta Lovísa verður borin til grafar næstkomandi mánudag kl. 11 í Hallgríms- kirkju. Þessi einstæða þriggja barna móðir bar harm sinn ekki í hljóði heldur deildi hún sögu sinni í gegnum fjölmiðla, ekki síst með skrifum á heimasíðu sinni þar sem hún leitaði styrks og útrásar. Hún opnaði umræðu um sjúkdóm sem hefur fellt svo marga og svo margir glíma við en fáir tjá sig um. Frásagnir hennar báru aldrei með sér sjálfs- vorkunn heldur voru fullar af styrk og lífsgleði. Þessi einstaki styrkur og æðruleysi sem hún bjó yfir lét engan sem á hana hlýddi ósnortinn. Sirkus minnist Ástu Lovísu með hennar eigin orðum. 15.11.2006 Ástu væl :) Þessi mikli lífsvilji minn er farin að hafa jákvæðar breytingar á mér. Það er ekki langt síðan ég gat ekki gert plön. Mér var algjörlega um megn að festa eitthvað niður. Núna get ég það. Ég er búin að ákveða að fara til Svíþjóðar í janúar með krakk- ana. Þótt að krabbamein sé mjög alvarleg veikindi og ég tala nú ekki um þegar meinvörpin eru farin að láta á sér bera ... þá er samt svo margt jákvætt sem þessi veikindi hafa gefið mér. Það er ekki bara alslæmt að fá krabbamein og ég virkilega meina það. Ég veit að margir eiga eftir að hugsa... „vá nú er hún alveg að tapa sér kerlingin“... en þetta er satt. Það er svo margt jákvætt sem þetta hefur leitt af sér og ég er mun þakklátari fyrir hvern dag sem ég lifi. 1.12.2006 Howdy :) Þarmarnir í mér eru loksins farnir að s ýna smá virkni. Það gerðist bara í gær. Ég þurfti að fara me ð sjúkrabíl yfir á gamla Boggann þar sem stungið var á milli rifbeinanna á mér og þar komið fyrir dreni. Það nefn ilega sást á myndum sem voru teknar í gær að það var risa g raftarpollur fyrir ofan þarmana og kom þannig í veg fyrir að þeir næðu að starfa eðlilega. Áiiiii þetta var vont og er enn þá vont að hafa þetta drena drasl hangandi þarna út. Guð hv að ég skammast mín fyrir steypuna sem vall upp úr mér þar na á skurðaborðinu.... heheheh.... mín heimtaði sko eitthvað slæfandi og ég fékk það aldeilis og eiginlega miklu meira e n það...tíhíhíhí... Held að ég þori ekki að hitta þann doksa aft ur í bráð. 31.10.2006 Grumpy days Guð ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki mömmu og vissa aðra aðila í mínu lífi. Mamma er alveg ótrúlegur einstakl- ingur. Vinnur hörðum höndum og kemur svo til mín til að hjálpa mér með heimili og börn. Það sem mér finnst dásamlegast við þetta allt er að í raun þá er hún ekki alvöru mamma mín en kemur fram við mig sem sína eigin. Eins og þið mörg vitið þá lést mamma mín og systir úr arfgengri heilablæðingu. Þegar ég var aðeins 3 ára gömul láu leiðir pabba og hennar saman og læsti ég mig utan um lærin á henni og spurði hana hvort hún vildi vera mamma mín ... hehehe...... og auðvitað gat hún ekki staðist þessi hvolpaaugu. Þrátt fyrir að ma&pa hættu saman þegar ég var á unglingsaldri þá hefur hún alltaf verið stoð og stytta í mínu lífi og barna minna. Talandi um að vera HÖRKUKVENDI .... hehehe .... þá er ég ótrúlega heppin að hafa kynnst henni .... LUV U MAMMA .... 7.1.2007 Hux* hux* hux* „........ Ég er ekki gefin fyrir uppgjöf. Ég berst þar til ég fell. Þetta er styrkur sem mér er í blóð bor- inn..... Það sem máli skiptir er að trúa á að meðan þú getur dregið andann eigirðu von. 21.2.2007 Bad news ... once again :( Jæja þá fékk ég víst enn einn skellinn. Sjúkdóm- urinn minn hefur versn- að því miður. Meinvörpin hafa öll stækkað um einhverja mm sem er frekar mikið og ég er með stækkun í eitlum í maganum *GRÁT*. Það þarf að fylgjast með þessum eitlum ef þeir stækka eitthvað meira þá þarf að skoða þá nánar og athuga hvort að það sé krabbi í þeim líka .. en allavega verður ekkert gert neitt í þeim málum í bili..... Úfff öll familían er í sjokki og ég get ekki lýst því hvernig mér líður núna. Þetta ætlar greini- lega að verða erfiðara en ég hélt og ég verð bara að vera hreinskilin að ég er orðin pínu svartsýn á framhaldið. Ég veit að ég má það ekki ... En halló það eru til takmörk hvað maður getur endalaust tekið við. ... Æji vonandi næ ég að rífa mig upp úr þessu og halda áfram að berjast ... Er líklega bara að syrgja þessar fréttir núna. 8.3.2007 Grenj og ennþá meira grenj Ohhh mig langar til að grenja ... Húðin heldur áfram að versna og versna. Núna er ég alveg þakin í andliti, eyrum, hársverði, bringu og baki. Ég er eitt flakandi sár og grænir... já grænir nabbar út um allt *ÆL*. Ég hef bara ekki séð annað eins og mig langar ekki út. Ég skammast mín svo fyrir þetta að ég get varla hugsað mér að láta fólk sjá mig svona *sniff*sniff*sniff*. Ég veit alveg að ég á að hugsa að ef þetta lyf er að virka þá á þetta bara að vera smáræði .. En þetta er svoooo vont bæði andlega og líkam-lega. Það er svo mikill sársauki í þessu að ég er alltaf að vakna á nóttunni og mér líður hreint út sagt ömurlega. Ég er komin á ofnæmislyf og sýklalyf en það virðist ekkert virka... Núna skil ég það sem doksinn minn sagði að sumir sem hafa fengið svona aukaverkanir kjósa að hætta á lyfinu sem að veldur þessu .. Ég ætla mér ekki að gefast upp .. Ég ætla mér að reyna að þola út þessar 6 vikur. Það er sko eins gott að þetta lyf virki .... Annars var öll þessi þjáning til einskis. Æji ég er ekki glöð og hress í dag ... *sniff*sniff* 7.5.2007 New York.... New York Ferðin hingað í gær gekk þrusu vel fyrir sig. Allt stóðst sem átti að standast þannig að ég var ennþá vel hress þegar við náðum á leiðar- enda. Á morgun fáum við að vita út úr myndunum. Hittum læknana reyndar ekki.. Heldur eigum við að bíða eftir símtali frá þeim. 8.5.2007 Engar fréttir ennþá... :( Erum búin að sitja við símann í allan dag og höfum ekkert frétt ennþá.. Því miður. 20.5.2007 Úppps ..sorry... Betra seint en aldrei ;) Miðað við allt þá er ég ótrúlega glöð í hjart- anu mínu þessa dagana og vonandi heldur það bara áfram. Mér líður rosa vel, lítið um verki og er alveg ótrúlega ástfangin. Ég er í raun ennþá svífandi á mínu bleika skýi og njóta þess að vera á lífi í dag. Ég skal lofa að bæta úr bloggleysinu mínu.. Ætlaði ekki að láta fólk halda að eitthvað mikið væri að þegar ég þeysist um allan bæ á mínu bleika hamingjusama skýi. Knús á ykkur og prufið að byrja daginn á því að brosa, þakka fyrir daginn í dag og opna fyrir hjartað... Er það DÍLL ??? Knús og liðið Tjá tjá Ásta Lovísa 9.5.2007 Svar óskast Fengum því miður ekkert svar í gær. Biðum og biðum en án árangurs. 30.5.2007 Engill á himni Elskuleg systir mín, Ásta Lov-ísa, andaðist á Líknardeild Lsp í Kópavogi fyrr í dag. Fjöl- skyldan vill senda þakkar- kveðjur fyrir allan stuðninginn, hlýhug og falleg orð. Þið gáfuð Ástu ómetanlegan styrk í bar-áttu hennar. Með fyrirfram þökk og virðingu, Daði bróðir 7.12.2006 Smá bögg Hvað er málið með mig og tónlist ??? Ég hef alltaf verið svo mikil tónlistarkelling þá aðal- lega í vælu lögunum ... en núna eftir að ég veiktist þá virðist ég ekki geta hlustað á lögin mín án þess að ég fái kvíðakast... Æji þetta er svo vont því allar særandi hugsanir sækja þá svo á. Ég skrapp út með vinkonu minni núna í kvöld og kom svo heim, kveikti á tónlist og lét renna í bað og bara BAMM! Allt í einu sat ég skælandi eins og lítið barn sem vantaði knús. Afhverju get ég ekki hlustað á tónlist án þess að óæskilegar hugsanir banki upp á Hugsanir eins og ... kannski séu þetta mín síðustu jól sem ég fæ að eiga með börnunum mínum og ég verði að gera sem mest úr þeim fyrir okkur..... ohhhh mér finnst ég vera að kafna!!! Ef ég næ svo ekki að standa undir þeim væntingum að halda hin fullkomnu jól. Svei mér þá það er stærðar kvíðaköggull í maganum mínum núna og mér finnst ég svo ráðvillt eitthvað. Ég sakna þess svo að vera heilbrigð og geta bara haft áhyggjur yfir því hvað skal hafa í matinn þann daginn eða pirra mig út af smá munum. Æji þetta er svo sárt stundum og ég þrái svo að verða heil- brigð aftur. ÁSTA LOVÍSA VILHJÁLMSDÓTTIR FÆDD: 9. AGÚST 1976 - DÁIN: 30. MAÍ 2007 Minningin um ótrúlega sterka konu lifir áfram á meðal okkar Blogg Ástu Lovísu :www.123.is/crazyfrogg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.