Fréttablaðið - 08.06.2007, Side 79
Þegar Eggert Magnús-
son, þáverandi formaður KSÍ,
ákvað að framlengja ekki samn-
inga við Ásgeir Sigurvinsson og
Loga Ólafsson var ástæðan ein-
föld. Óviðunandi árangur. Egg-
ert vildi betri árangur og þess
vegna skipti hann tvímenningun-
um út fyrir Skagfirðinginn Eyjólf
Sverrisson.
„Við eigum marga ágæta knatt-
spyrnumenn og þess vegna á
landsliðið að geta verið frambæri-
legt. Árangurinn í undankeppni
HM var ekki nægilega góður.
Við fengum færri stig heldur en
landslið þjóða sem hafa ekki verið
betri en við fram að þessu. Það
skiptir miklu máli fyrir okkur að
ná ásættanlegum árangri,“ sagði
Eggert við Fréttablaðið 15. okt-
óber 2005. Hann bætti síðan við:
„Það er mikilvægt fyrir fjármál
sambandsins og andlit okkar út á
við að árangurinn sé ásættanlegur
og þess vegna verðum við að gera
kröfu um betri árangur en náðist
í síðustu undankeppni.“ Svo mörg
voru þau orð.
Landsliðið vann einn leik, gerði
eitt jafntefli og tapaði átta leikj-
um í undankeppni HM undir
stjórn Ásgeirs og Loga. Lands-
liðið er búið að vinna einn leik,
gera eitt jafntefli og tapa fimm
leikjum í undankeppni EM undir
stjórn Eyjólfs. Markatala Ásgeirs
og Loga var 14-27 en markatala Ís-
lands í undankeppni EM er 5-15.
Eyjólfur með svipaðan árangur og Ásgeir og Logi
4. UMFERÐ
LANDSBANKADEILD KVENNA
LANDSBANKADEILD KARLA
5. UMFERÐ
fös. 8. júní kl. 19:15 Víkingur – Breiðablik
lau. 9. júní kl. 17:00 Valur – Keflavík
sun. 10. júní kl. 19:15 FH – Fylkir
sun. 10. júní kl. 19:15 HK – Fram
sun. 10. júní kl. 20:00 ÍA – KR
fös. 8. júní kl. 19:15 ÍR – Breiðablik
fös. 8. júní kl. 19:15 Valur – Keflavík
fös. 8. júní kl. 19:15 Stjarnan – Fjölnir
fös. 8. júní kl. 19:15 Þór/KA – Fylkir
Skorað fyrir gott málefni
Landsbankinn heitir 30.000 kr. fyrir hvert mark
sem leikmenn skora í 5. umferð karla og 4. umferð
kvenna. Áheitin renna til góðra málefna sem liðin
velja sjálf.
Sjá nánar á www.landsbanki.is
Alexei Lalas, stjóri LA
Galaxy, vonast til þess að lokka
Luis Figo til sín. Eins og kunnugt
er hefur David Beckham skrif-
að undir samning við félagið og
vonast Lalas eftir því að sameina
stjörnunar.
Figo neitaði nýverið að fara til
Al Ittihad í Sádi-Arabíu auk þess
sem hann hefur útilokað að ganga
til liðs við annað félag í Evrópu
þegar hann fer frá Inter í sumar.
Þá standa Bandaríkin eftir sem
augljós kostur.
„Við vitum að Figo er á lausu
og við erum að fylgjast náið með
ástandi hans. Ef hann hefur áhuga
á því að koma til Bandaríkjanna
munum við gera allt sem við
getum til að fá hann til okkar,“
sagði Lalas.
Galaxy vill Figo
með Beckham
Justin Henin er komin í úr-
slit opna Franska meistaramóts-
ins í tennis eftir öruggan sigur
á Jelenu Jankovic í undanúrslit-
unum í gær. Henin vann leik-
inn í tveimur settum, 6-2 og 6-2,
en þetta er þriðja árið í röð sem
hún kemst í úrslit. Hún mætir
Önu Ivanovic í úrslitunum en hún
lagði Mariu Sharapovu í hinum
undanúrslitaleiknum.
„Ég bjóst við erfiðari leik gegn
Jankovic. Við höfum marga hildi
háð en ég held að hún hafi misst
sjálfstraustið eftir fyrsta sett-
ið. Þetta verður mjög erfiður úr-
slitaleikur gegn Ivanovic,“ sagði
Henin.
Henin getur
varið titilinn
Þeir Jose Reina, Xabi
Alonso og Momo Sissoko hafa
allir skuldbundið sig Liverpool til
framtíðar. Reina skrifaði undir
framlengingu á samningi sínum
í gær en bæði Alonso og Sissoko
hafa verið undir smásjá stórliða
í Evrópu. Þeir ætla þó báðir að
skrifa undir nýja samninga við
Liverpool á næstu dögum.
Barcelona vonaðist eftir því
að krækja í Alonso og Juventus
var talið hafa boðið 10 milljónir
punda í Sissoko.
Framlengja
samninga sína