Fréttablaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 86
„Ég hugsa að ég sé hamingjusam-
asti maður á jörðinni í dag,“ sagði
líkamsræktarfrömuðurinn Arnar
Grant um miðjan dag í
gær. Hálfur sólarhring-
ur var þá liðinn frá því
að Arnar eignaðist annað
barn sitt. Um fimmleyt-
ið í gærmorgun ól unnusta
Arnars, Tinna Róbertsdótt-
ir, honum dóttur sem var 16
merkur og 53 sentímetr-
ar. Fæðingin gekk að
sögn Arnars „hægt og
rólega.“ Öllum í fjöl-
skyldunni heilsast
vel.
Arnar átti erf-
itt með að hemja
gleði sína í sam-
tali við Fréttablaðið. „Þetta er ein-
faldlega það sem lífið gengur út
á, maður kemst ekkert lengra en
þetta,“ segir hann.
Eins og flestir vita er Arnar
annálaður afreksmaður í fitness
og hefur getið sér gott orð sem
einkaþjálfari. Vöðvabúntið er þó
ekki feimið við að sýna
tilfinningar á stundu
sem þessari: „Það
geta allir orðið
klökkir, sama
hversu stór-
ir og sterk-
ir þeir
eru.“
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Arnar Grant klökkur þegar dóttirin fæddist
Nýr raunveruleikaþáttur, sem
kokkarnir Völundur Snær Völund-
arson og Sigurður Gíslason koma
fram í, var að hluta til tekinn upp
að Höfðabóli, heimili Árna Johnsen
þingmanns. Þátturinn heitir Meal
Ticket og verður sýndur í haust en
hann er framleiddur af sjónvarps-
stöðinni Mojo Network.
„Þau ætluðu í Útey til eggjatöku
en það gaf ekki veður og því var
ákveðið að leika af fingrum fram,“
útskýrir Árni. „Ég átti nokkur
svartsfugls- og fýlsegg svo ég bauð
þeim heim og aðalkokkur þáttarins
tók yfir eldhúsið.“
Stjórnandi Meal Ticket heit-
ir Ralph Pagano. Þættirnir ganga
út á það að Ralph er skilinn eftir í
ókunnugu landi og þarf að vinna sér
fyrir fargjaldinu heim. Hann leitar
því á náðir innlendra kokka, sem í
þessu tilfelli voru Völundur Snær
og Sigurður.
„Hann bjó til ommelettu úr eggj-
unum sem ég átti. Eggjakakan var
einstaklega falleg - eins og kvöld-
sólin - enda er rauðan úr langvíu-
eggjunum svo sterk,“ segir Árni.
Meðal þess sem Ralph notaði í
eggjakökuna var púrrulaukur,
sveppir, heimatilbúin rúllu-
pylsa, appelsína og tómat-
ar. „Þetta var forlát omm-
eletta,“ segir þingmaður-
inn sem fékk kokkinn til að
drekka eitt hrátt lang-
víuegg. Og kokk-
urinn lét sér ekki
segja það tvisv-
ar: „Hann drakk
það með stæl,“
segir Árni.
Sjónvarpsupptökur í eldhúsi Árna Johnsen
„Það var mjög fínt að fá bjór-
inn fyrir sjómannahelgina,“ segir
Pétur Rúnar Guðmundsson, sjó-
maður á bátnum Bjarti frá Nes-
kaupsstað. Áhöfn Bjarts lét sér-
merkja bjór fyrir sig fyrir sjó-
mannadaginn. Bjórinn er kallaður
Bjartur bjór. Það er mynd af bátn-
um Bjarti og einkennisstafir Síld-
arvinnslunnar framan á flöskunni
og mynd af Neskaupsstað aftan á.
„Bátarnir hjá Síldarvinnslunni eru
margir búnir að gera þetta síðustu
ár og okkur fannst tími til kominn
að fá svona fyrir okkur líka. Þetta
er mjög skemmtilegt.“
Það reyndist ekki erfitt að fá
bjórinn merktan. Pétur hafði sam-
band við Vífilfell og Álprent, fyr-
irtæki á Akureyri sem sér um að
prenta á bjórflöskur fyrir Vífilfell
og allt gekk þetta eins og í sögu.
„Þetta vekur athygli og flest-
ir eru ánægðir með þetta,” segir
Pétur. Margir sem hafa verið um
borð á Bjarti einhvern tíma hafa
haft samband við núverandi áhöfn
til að eignast eina eða tvær flösk-
ur til að eiga. „Þeir eru að fá flösk-
ur til að geyma og stilla upp á hillu
heima hjá sér.“
Áhöfnin á Bjarti verður reyndar
líka að geyma bjórinn heima því
ekki er tími til að sitja að sumbli
út á rúmsjó. „Við megum auðvitað
ekki drekka á bátnum svo bjórinn
bíður bara eftir okkur í ísskápnum
heima.“
Áhöfnin á Bjarti telur 15 til 20
manns og er báturinn gerður út af
Síldarvinnslunni í Neskaupstað.
Pétur reiknar með að gera þetta
að árlegum viðburði. „Við ætlum
að gera þetta aftur fyrir sjómanna-
daginn á næsta ári. Það verður að
vera þá. Það er dagurinn okkar.”
„Ingibjörg Sólrún verður alltaf
mjög meyr og tilfinninganæm
á gamlárskvöld og ég nota þá
tækifærið til að innræta henni
eitthvað af jafnaðarstefnu.“