Fréttablaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 66
Verslunin Nóra í Bankastræti selur mestmegnis franskar húsbúnaðar- vörur en einnig er þar að finna spennandi matvöru frá ýmsum löndum. Vörurnar eru ýmist frá Frakklandi, Þýskalandi og Bret- landi og er af mörgu að taka í þess- ari krúttlegu og rómantísku búð. „Við erum með mikið frá Bret- landi, til dæmis ekta breskt marmelaði og sultur. Sulturnar er hægt að fá í sætri gjafapakkningu og einnig bjóðum við upp á slíka pakkningu með litlum krukkum af osti, hunangi og jarðarberjasultu. Margar sulturnar eru sykurlausar og því frábærar fyrir sykursjúka. Svo erum við með alls konar olíur sem eru settar í fallegar glerk- rukkur sem við erum með til sölu. Fólk getur líka komið með sína uppáhalds krukku og við fyll- um á hana. Þetta eru mest fínar olíur sem eru æðislegar á salöt,“ segir Oddný Eiríksdóttir verslun- arstjóri. „Við bjóðum einnig uppá alls kyns súkkulaðikrem sem er frábært á croissant eða bara hitað og sett út á ís. Í lokin get ég svo nefnt ýmislegt svo sem majones, chutney, balsamik edik, sojasósu, indonesíska chili sultu og margs konar krydd. Fólk verður eigin- lega bara að koma og skoða allt sem við erum með í boði.“ Í gær komu nýjar vörur í verslunina og því upplagt að nota tækifærið og kíkja á allt góðgætið. Spennandi matvara í Nóru Palestínskt hátíð verður haldin á Kebabhúsinu í kvöld. „Þetta var gert síðast fyrir sex eða sjö árum og það gekk svo vel að við ætlum að taka þetta upp aftur,“ segir Quassay Odeh, einn aðstandenda. „Við ætlum að hafa ekta palest- ínskan mat, tónlist og myndasýn- ingu og auk þess verður ljóðalest- ur. Í aðalrétt verður palestínsk- ur kjúklingaréttur með hummus og falafel. Svo verður salat og ein- hver góður eftirréttur.“ Veislan er haldin í Kebabhúsinu á Grensás- vegi og hefst klukkan sjö. Palestínsk veisla í kvöld Sigríður Sigurjónsdóttir heimsótti Indland nýlega en þar sótti hún al- þjóðlega ráðstefnu um mat í Delí. Sigríður er prófessor í vöruhönn- un við Listaháskóla Íslands. „Í skólanum höfum við mikið verið að spreyta okkur á því að vinna með matvæli. Ástæðan er sú að við erum alltaf að leita að tæki- færum og hráefni á Íslandi til að vinna með,“ segir hún og bætir því við að hér sé frekar lítið um hús- gagnaframleiðslu en talsvert um matvælaframleiðslu og sjálfsagt sé að taka þátt í því. „Á síðasta ári unnu nemendur verkefni í samstarfi við Nóa Sir- íus og einnig í samstarfi við ís- lenska bændur. Mikil vakning hefur orðið alþjóðlega varðandi rekjanleika matvæla og mikil- vægi og möguleika þess að gera staðbundinn mat aðgengilegan. Maðurinn minn neitaði þó að taka þátt í þessari staðbundnu bylt- ingu þegar hann var að ferðast í Kamerún nýlega og á boðstólum var skógarrottu- og apakássa,“ segir Sigríður, sem valdi girni- lega uppskrift að mangósúpu til að deila með lesendum Frétta- blaðsins sem hún segir vera í Ind- verskum anda. „Hún er afar ein- föld og færir manni sumarið beint í æð. Björt, falleg og góð.“ Á með- fylgjandi mynd er Sigríður stödd á Indlandi þegar haldin var litahá- tíðin Holi. Þá skreyta vegfarendur hvor annan með lituðu púðri þar til flestir í borginni eru alþaktir skærum litum.“ Út á súpuna skal setja bláber, krækiber eða jarðarber - helst ís- lensk. Björt og falleg súpa frá Indlandi Bergþór Pálsson og Albert Eiríks- son slógu upp veislu fyrir Völu Matt í þættinum Matur og lífsstíll sem sýndur er í kvöld. „Bergþór bjó til himneska franska fiskisúpu en Al- bert galdraði fram rabarbaraböku á aðeins fjórum mínútum. Þessi baka hefur slegið þvílíkt í gegn á kaffi- húsinu sem hann rekur á sumrin á Fáskrúðsfirði,“ segir Vala Matt en uppskrift að bökunni frægu fylgir. Aðferð: Rabarbarinn er skorinn niður þannig að hann fylli rúmlega botninn á eldföstu móti. Smjörið er brætt og öllum þurrefnunum bland- að út í það. Hrært saman. Potturinn er svo tekinn af eldavélinni og eggj- um blandað út í. Þegar búið er að hræra þessu öllu saman er það sett yfir rabarbarann í mótinu og bakað við 180° í 20-30 mínútur. Borið fram með þeyttum rjóma eða bara því sem fólki dettur í hug. Rabarbarabaka á fjórum mínútum Matur er aðeins mismunandi stórfenglegur Mörkinni 6, Símí 588-5518 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.