Fréttablaðið - 07.07.2007, Side 10
Þetta hefur gengið alveg frábærlega og
strákarnir hafa verið til mikillar fyrirmyndar,“
segir Magnús Sigurólason, aðstoðarmaður mót-
stjóra N1-mótsins, sem haldið er á Akureyri þessa
dagana. Þar mætast knattspyrnustjörnur framtíð-
arinnar, 11 og 12 ára strákar af öllu landinu.
Mótið hófst á miðvikudag og því lýkur í dag,
laugardag. Fjöldi manns er í bænum vegna móts-
ins og á fjórða þúsund manns hafa fylgst með mót-
inu, bæði sem keppendur og aðstandendur. Strák-
arnir sem keppa á mótinu koma frá 34 félagsliðum
og spilað er á 10 völlum í einu. Það er því handa-
gangur í öskjunni en allt hefur gengið að óskum.
„Það hefur ekkert komið upp á. Það rigndi reynd-
ar á fimmtudaginn en það var bara til þess að
vökva vellina,“ segir Magnús. Hann segir að
keppnin sé spennandi og strákarnir sýni mikið
keppnisskap. „Þeir taka þessu mjög alvarlega og
leggja sig alla fram, sama hvort þeir eru að spila
um úrslitasæti eða 25. sæti,“ segir Magnús.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu
sögðu í gær að þau ætluðu að loka
helsta kjarnorkukljúfi landsins,
Yongbyon, í skiptum fyrir að fá
send tíu prósent af þeim 50 þús-
und tonnum af hráolíu sem þeim
var lofað fyrir að loka honum.
Þetta er í fyrsta skipti sem stjórn-
völd í landinu segja hvenær þau
ætli að loka kljúfinum.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu sögðu
í gær að þau ætluðu að senda rúm
sex þúsund tonn af hráolíu til
Norður-Kóreu þann 12. júlí.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu skrif-
uðu undir afvopnunarsamning við
Bandaríkin, Kína, Japan og Rúss-
land í febrúar þar sem þau lofuðu
að loka Yongbyon-kljúfinum í
staðinn fyrir 50 þúsund tonn af
hráolíu.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa
dregið að standa við samninginn
vegna þess að þau áttu í deilum
við Bandaríkjastjórn eftir að fjár-
innistæður
þeirra á erlend-
um bankareikn-
ingum höfðu
verið frystar.
Sú deila var
leyst að fullu í
síðustu viku.
Kim Jong Il,
leiðtogi Norður-
Kóreu, sagði á
fundi við aðstoð-
arutanríkisráðherra Kína á þriðju-
dag – eftir að deilan við Bandarík-
in hafði verið leyst – að hann
ætlaði að standa við afvopnunar-
saminginn. Þá tók hann hins vegar
ekki fram hvenær hann ætlaði að
gera það.
Loka kjarnorkukljúfi
„Margir eru búnir að
panta tíma mánuði fyrir þennan
dag,“ segir Birna Ásgeirsdóttir
hjá snyrti- og nuddstofunni
Laugum Spa. Hún segir óvenju-
mikið búið að vera að gera í
sumar og sérstaklega núna í
vikunni fyrir 07.07. 2007. „Um
daginn hringdi kona sem var að
fara að gifta sig í september,“
segir Birna.
Á Nordica Spa er einnig mikið
álag á starfsfólki fyrir 07.07.
2007 og ekki mikið um afpantan-
ir fyrir stóra daginn eins og í
sumum kirkjum landsins. „Það
er allt stappbókað hjá okkur og
allir biðlistar fullir. Andlitsböð,
hand- og fótsnyrting og vax eru
vinsæl,“ segir Agnes Sigurðar-
dóttir, móttökustjóri á Nordica
Spa.
Stappbókað í
snyrtimeðferðir
Stúlkur eru langt á
eftir drengjum í heiminum hvað
varðar grunnmenntun, sam-
kvæmt skýrslu frá Sameinuðu
þjóðunum.
Asískir sérfræðingar í mennta-
málum komu saman í Bangkok í
vikunni og ræddu málefni stúlkna
í grunnskólum. 115 milljón börn í
heiminum gengu ekki í skóla árið
2006, þar af meirihlutinn stúlkur,
eða 62 milljónir.
Af 781 milljón jarðarbúa sem
eru ólæsir eru tveir þriðju konur.
Viðurværi fólks byggist að miklu
leyti á menntun sem það fékk í
barnæsku, samkvæmt SÞ.
Stúlkur fá mun
minni menntun
Margrét Gunnlaugsdóttir,
lögmaður og réttargæslumaður
stúlkunnar sem kærði ungan mann
fyrir nauðgun á Hótel Sögu í mars,
er ósátt við sýknudóm Héraðsdóms
Reykjavíkur frá því í fyrradag. Hún
segist ósammála mörgum forsendn-
anna sem dómurinn byggir niður-
stöðuna á og telur að ef dómnum
verður áfrýjað og Hæstiréttur stað-
festir dóminn sé ástæða til að endur-
skoða löggjöfina um kynferðisbrot.
Tekið er fram í dómnum að fram-
burður stúlkunnar sé talinn einkar
trúverðugur en á framburði manns-
ins hafi hins vegar verið veilur.
Margrét segir að í ljósi þess sé sér-
stakt að tillit hafi verið tekið til lýs-
ingar mannsins á meintri nauðgun
og aðdraganda hennar, fremur en
framburðar stúlkunnar um sömu
atvik.
Maðurinn bar því við að stúlkan
hefði ekki streist á móti sér og hann
hafi hætt um leið og hún hafi beðið
hann um það. Hún segist hins vegar
hafa þurft að biðja hann ítrekað. Þá
fullyrðir hann að vel hafi farið á
með þeim og segir Margrét undar-
legt að dómurinn taki tillit til þess
þvert á ólíkan framburð stúlkunn-
ar. „Maðurinn er mjög óáreiðanleg-
ur, það kemur fram í dómnum. Svo
er þessi framburður hans notaður
sem rökstuðningur fyrir niðurstöð-
unni.“
Dómurinn telur ljóst að maður-
inn hafi ýtt stúlkunni inn í bás á
klósettinu, læst honum innan frá,
dregið niður um hana, ýtt henni á
salernið og síðan niður á gólf, áður
en hann hafði við hana samræði, og
fyrir liggi að það hafi verið gegn
hennar vilja. Hins vegar segir hann
þetta ekki geta talist ofbeldi í skiln-
ingi 194. greinar almennra hegn-
ingarlaga.
Þessu er Margrét ósammála.
„Það að fremja
verknað, sem í
þessu tilfelli er
óumdeildur, með
því að yfirvinna
viðnám – það er
ofbeldi. Síðan er
spurningin
hvernig þetta
viðnám er gefið
til kynna. Eins
og ég skil ákvæð-
ið, og ef maður les greinargerðina
með ákvæðinu, þá er þetta
ofbeldi.“
Fyrir liggur að stúlkan gaf aldrei
samþykki fyrir samræðinu. „Það
hefur komið til tals að breyta
nauðgunarákvæðinu þannig að það
segi að nauðgun sé samræði án
samþykkis, eins og það er í Eng-
landi og Bandaríkjunum og víðar.
Þeim rökum var beitt gegn því að
það væri alveg sambærilegt ákvæð-
inu okkar; að það að fara gegn sam-
þykkisskortinum jafngilti ofbeldi.
Ef þessi dómur mun standa óhagg-
aður þá er ljóst að það er alls ekki
lagður sami skilningur í þetta
tvennt,“ segir Margrét. Hún telur
að áfrýja eigi dómnum og vonar að
honum verði snúið. „Ef ekki þá þarf
löggjafinn að hugsa sinn gang.“
Lögin skoðuð
verði dómur-
inn staðfestur
Réttargæslumaður fórnarlambs meintrar nauðgunar
er ósammála forsendum og niðurstöðu héraðsdóms.
Hún segir sérstakt að byggja á óáreiðanlegum fram-
burði ákærða frekar en einkar trúverðugri stúlkunni.
Taktu flátt í grillleik MS og flú gætir
unni› glæsilegt Weber grill. Kauptu dós af
s‡r›um rjóma frá MS, far›u á www.ms.is,
slá›u inn lukkunúmeri›
sem er í lokinu og flú
fær› strax a›
vita hvort
flú hefur
unni›.
Grill-leikur
me› s‡r›um rjóma!