Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.07.2007, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 07.07.2007, Qupperneq 18
Við Össur frændi minn höfum báðir yndi af því að spjalla við fólk á förnum vegi og erum forvitn- ir um bæði lifnaðarháttu fólks- ins og skoðanir á landsins gagni og nauðsynjum. Það er ekki komið að tómum kofanum hjá Tyrkjum ef þeir hitta ferðamenn sem vilja ræða málin. Vegna þessa spjalláhuga höfum við komist í kynni við skemmti- lega bræður sem einnig eru svo miklir dugnaðarforkar að þeim fellur aldrei verk úr hendi. Samt gefa þeir sér ævinlega tíma til að taka á móti gestum, spjalla og kankast á við þá. Þetta eru Fidan- bræðurnir. Þeir eru hingað komn- ir frá Austur-Tyrklandi og hafa víða ferðast. Alí bey sem fer fyrir þeim hefur meira að segja komið til Íslands. Í kvöld buðu Alí og Mehmet okkur í ógleymanlega strandferð. Um hálftíma akstur norðan við Marmaris er lítil vík sem heit- ir Boncuk og þar er tjaldstæði. Fjölskyldur bræðranna eru þar í útilegu því að krökkunum þykir matur í því að fá að sofa í tjaldi á nóttunni og busla í sjónum á daginn. Báðir hafa bræðurnir sótt kvonfang til Finnlands og tóku konurnar Mina og Tina hinum norrænu gestum opnum örmum. Gestrisnin í þessu tyrknesk- finnska boði var takmarkalaus. Okkur var tekið eins og nákomn- um ættingjum og kræsingar born- ar á borð. Þetta var ógleymanlegt kvöld við öldugjálf- ur, tyrkneskan mána, stjörnu- himin, angan af gróðri og hafi. Í fjarska ljós á einhverri eyju. Hitinn er 40 stig. Þetta gæti ekki verið notalegra. Nú er hitinn kominn niður fyrir 40 gráður. Loftið hérna er þurrt og stöðugt nokkur gola af hafi. Ef maður hefur nóg vatn að drekka og getur haldið sig inni frá því að sól er í hádegisstað og til klukk- an um þrjú síðdegis hefur maður ekki undan neinu að kvarta. Jafn sjálfsagt og það er að fara í sundlaugar á Íslandi er að fara hér í tyrkneskt bað. Tyrkneskt bað er raunar gufubað eins og við þekkjum frá Íslandi, en bað- salur og bekkir eru úr marmara. Fyrst fórum við í venjulegt sána- bað, síðan í tyrkneska vatnsgufu- baðið. Þar inni var hlýtt en til að kæla sig voru þar koparkrúsir til að ausa sig köldu vatni. Tyrkneskir baðverðir reka mann ekki úr sundfötunum eins og íslenskir stéttarbræður þeirra heldur grípa mann og leggja endi- langan á marmaraborð og skrúbba og sápa frá toppi til táar. Úr guf- unni var farið í nuddpott með notalega svölu vatni. Þar hefði ég gjarna setið lengur en ég átti stefnumót við rakara á staðnum. Sá var mikill fagmaður og hrein unun að sjá hann hand- leika rakhníf- inn. Skemmti- legast var þó í lokin en þá kveikti rak- arinn á spritt- blysi og rak það nokkr- um sinnum í eyrun á mér og upp í nefið. Hann var svo snar í snúningum við þessar kúnstir að ég brenndi mig ekki, hins vegar gaus upp mikil sviðalykt. Hún var af þeim stríðu hárum sem taka að vaxa út úr eyrum og augnabrúnum karl- manna þegar hárvöxtur á hvirflin- um er tekinn að minnka og leitar út á öðrum stöðum. Í lokin voru baðgestir lagð- ir á nuddborð og andlit þeirra þakin með grænum leir sem ýmis lífgrös höfðu verið mulin út í. Leirinn var látinn harðna á andlitunum, síðan skolað burt og þá hófst nudd frá iljum til hvirfla. Svona meðhöndlun mundi ég láta eftir mér daglega ef ég byggi í þessu lífsnautna- landi. Þetta kostaði 50 lírur fyrir frú Sólveigu en 60 lírur fyrir mig enda fór hún á mis við rakst- urinn. Inni- falið var akstur fram og tilbaka á hótelið, samtals um 5.500 kr. Sá tyrkneski matur sem við höfum fengið hérna er yfirleitt alveg prýðilegur. Nýjungagirnin rak okkur samt á indverskt veit- ingahús í kvöld. Þetta er fyrirtaks góður staður og heitir Taj Mahal hérna við aðalgötuna í Marmar- is sem Íslendingar kalla Lauga- veginn. Tvímælalaust eitt af betri veitingahúsum sem ég hef komið á og bjóða upp á indverskan mat; næstum eins gott og Austur-Ind- íafélagið við Hverfisgötuna. Mikill og góður matur og drykk- ur handa fjórum fullorðnum og fjórum börnum kostaði samtals 190 lírur. Það eru um 9.000 krón- ur. Dagarnir í sumarfríinu eru fljót- ir að líða. Það er ekkert lát á gestrisni þeirra Fidan-bræðra og eiginkvenna þeirra. Í dag fórum aftur við til Boncuk. Úti- legunni var að ljúka og okkur var boðið með til að synda í sjón- um og sleikja sólina fram eftir degi. Það var gaman að sjá þenn- an fallega stað í björtu. Þarna voru samankomnir gest- gjafar okkur Mina og Ali Fidan með börnum sínum Ilhan og Melek og Mehmet Fidan bróðir Alís og kona hans Tina og strák- arnir þeirra Adem og Mert, auk þess kom þarna Ahmet sem er elstur Fidan-bræðra. Ennfremur var þarna vinkona Minu og Tinu, Merit, sem er hjúkrunarkona og sömuleiðis af finnsku bergi brot- in. Þarna var buslað í sjónum og legið í sólbaði fram eftir degi og svo var grillað. Það tóku allir hraustlega til matar síns. Því miður var þarna stödd boðflenna nokkur, það var geitungur sem beit Ilhan litla í munnvikið. Hjúkrunarkonan Merit brá við skjótt og gaf honum cortison- töflur til að forða því að hann bólgnaði upp. Til alls öryggis fór Alí með Ihlan litla á slysavarð- stofu og lét lækni skoða hann. Læknirinn gaf Ilhan sprautu og svo sofnaði litli maðurinn og kenndi sér einskis meins þegar hann vaknaði. Á hæð hérna fyrir ofan okkur er sundlaug og garður með vatns- rennibrautum. Þangað skjögruðum við upp í morgunsólinni. Börnin eru nýjunga- gjörn og vilja stöðugt vera að gera eitthvað nýtt. Ég er værukær íhaldsmaður, vil helst gera sem minnst eða þá eitthvað sem ég hef örugglega gert áður. Mér finnst eig- inlega meira gaman að lesa ævintýri en taka þátt í þeim. Næst vildu blessuð börnin fara í siglingu. Það varð úr að við fórum með þau í „tunglskins- siglingu“ til að kom- ast hjá því að steikja þau í sólinni í dags- langri bátsferð. Þrátt fyrir magadansmær sem var öll af vilja gerð að skemmta gest- um var þetta ferðalag mikil mistök. Ekki skal ég lasta maga- dansinn en einhvern veginn hefur mér alltaf fundist magadans álíka þokkafullur og íslensk glíma. Í þessari siglingu voru leikin dægurlög í forneskju- legt hátalarakerfið og hávaðinn slíkur að brakaði í hverju tré í bátnum. Það eina sem var ein- hvers virði í ferðinni var hinn fagri tyrkneski máni sem skaust upp á himininn með ótrúleg- um hraða – en hann hefðum við sosum getað skoðað af þurru landi. Hérna á hótelinu gerðist sá sorg- legi atburður í dag að einn úr hópi Íslendinganna, maður á besta aldri, varð bráðkvaddur. Samlandar hans hér á gistihús- inu finna sárt til með fjölskyldu hans. Við svona aðstæður eru orð lítils megnug en samúðina má lesa hér úr hverju andliti. Á morgun förum við heim. Leggj- um af stað héðan klukkan átta annað kvöld og fljúgum heim frá Dalaman- flugvelli á miðnætti. Ferðakvíð- inn er kom- inn aftur. En þar í móti kemur tilhlökkun eftir að koma heim úr góðu fríi. Undir tyrknesku tungli Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá mánaskinssiglingu, gestrisnum bræðrum, logandi rakstri, tyrknesku gufubaði og stefnu- móti við magadansmær úti í hafsauga. SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 76 18 0 5 .2 0 0 7 Flugustangasett Redington Tilboð 21.990kr. Verð áður 24.990 kr Líftíðarábyrgð Önnur sett frá 14.990 kr. Vangen öndunarvöðlur Tilboð 15.990kr. Verð áður 18.990 kr. Vangen mittisvöðlur Frábærar dömuvöðlur Tilboð 11.990kr. Verð áður 14.990 kr. Vöðlujakki Tiboð 14.990kr. Verð áður 19.990 kr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.