Fréttablaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 22
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
40 ára afmæli
Jóhannes Elíasson
hárskurðarmeistari
er fertugur í dag, 7. júlí.
Óska öllum landsmönnum til
haming ju með daginn.
Er staddur erlendis á afmælisdaginn.
Ástkær faðir minn,
Ísak Georgsson,
lést 19. júní sl. í Malmö og var jarðsunginn 1. júlí í
Jerúsalem.
Fyrir hönd aðstandenda,
Georg Friðgeir Ísaksson.
Frændi okkar,
Ólafur Jóhannsson,
Þangabakka 10, áður til heimilis að
Leifsgötu 26,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn
9. júlí kl. 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla Ólafsdóttir.
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
Kristjáns Péturssonar
Dverghömrum 18, Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við því starfsfólki
Landspítalans sem hlúði að Kristjáni í veikindum
hans og starfsfólki Hamraskóla fyrir alúð og hlýju í
okkar garð.
Auður Thorarensen
Sólrún Lísa Kristjánsdóttir Olaf Möller
Garðar Kristjánsson Kristín Snore
Magnús Arnar Sveinbjörnsson Jófríður Ósk Hilmarsdóttir
Axel Örn Kristjánsson
Kristján Örn Kristjánsson Steinunn Ýr Hjaltadóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigrún Sigtryggsdóttir
Pretlove Hermaníusson,
áður til heimilis að Oddeyrargötu 24,
Akureyri,
sem lést 4. mars sl. í Perth í Vestur-Ástralíu, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 9. júlí kl. 11.
Jarðsett verður frá Illugastaðakirku í Fnjóskadal mið-
vikudaginn 11. júlí kl. 17. Þeir sem vilja minnast henn-
ar eru hjartanlega velkomnir.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Brenda Pretlove.
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og sendu vinarkveðj-
ur við andlát og útför hjartkærs bróður
okkar, mágs og frænda,
Sveins Ágústs Haraldssonar,
Álfholtsvegi 121, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarþjónsutu Karitas fyrir
ómetanlega þjónustu, styrk og umhyggju.
Ingibjörg Haraldsdóttir
Hulda Haraldsdóttir Þorgeir Ólafsson
Hrönn Haraldsdóttir Trausti L. Jónsson
systkinabörn og fjölskyldur.
„Sinfónía þarf að innihalda
allt. Alveg eins og lífið sjálft.“
Við þökkum einstakan hlýhug og samúð
við andlát elskulegrar eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Elínar Sigurðardóttur,
Fögrukinn 9, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarþjónustu Karitas og
hjúkrunarfólks LSH, deild 13 G.
Trausti Ó. Lárusson
Auður Traustadóttir Guðmundur Á. Tryggvason
Anna Kristín Traustadóttir
Sigrún Traustadóttir
Óskar Lárus Traustason Guðrún Pálsdóttir
Elín Ósk, Trausti, Svava Dís, Bjarni, Tryggvi, Páll Arnar
og barnabarnabörn.
Bandaríkjamenn hernema Ísland
AFMÆLI
Afmælismót íslenskra skáta fer fram
á Úlfljótsvatni um helgina. Mótið hófst
5. júlí og stendur til sunnudags 8. júlí.
Mótið er liður í hátíðarhöldum skáta-
hreyfingarinnar í tilefni af því að 100
ár eru liðin frá fyrstu skátaútileg-
unni sem fór fram á bresku eyjunni
Brownsea. Þessi útilega markaði upp-
haf skátastarfs sem breiddist út til
fjölmargra landa á fáeinum árum. Í
dag telur skátahreyfingin um 38 millj-
ónir félaga í öllum heiminum.
„Afmælishátíðin á Úlfljótsvatni
er svona upphitun fyrir alheimsmót
skáta sem fer fram fjórða hvert ár. Að
þessu sinni á Englandi í lok júlí. Við
erum um 430 skátar sem förum frá
Íslandi og þetta er einn stærsti við-
burður í heiminum þar sem ungt fólk
á aldrinum 14-18 ára safnast saman,“
segir Jón Ingvar Bragason, fræðslu-
stjóri Bandalags íslenskra skáta.
Um 400 skátar eru mættir á afmæl-
ismótið á Úlfljótsvatni og var það Mar-
grét Tómasdóttir, skátahöfðingi, sem
setti mótið. Jón Ingvar býst við að 600
manns muni láta sjá sig um helgina og
segir alla hjartanlega velkomna.
Skátastarfið er í mikilli sókn á Ís-
landi og Jón Ingvar segir um 3.500
skáta á aldrinum 7-22 ára virka í skáta-
starfi á Íslandi. „Skátastarfið er hollur
og góður félagsskapur sem og góður
undirbúningur fyrir leiðtogastörf.
Enda eru margir helstu leiðtogar
landsins skátar,“ segir Jón Ingvar.
Skátarnir eru mikið í útivist og
hjálparstarfi en eru líka duglegir við
að hafa það gaman saman. „Skáta-
starfið er lærdómur sem nýtist út lífið.
Skátar þurfa að takast á við ýmis verk-
efni í starfinu. Bæði líkamlegar áskor-
anir á ferðalögum og líka vitsmuna-
legar. Það að hjálpa öðrum og læra að
vinna í hóp er gífurlega mikilvægt,“
segir Jón Ingvar.
Öllum sem vilja kynna sér starfsemi
skátahreyfingarinnar er velkomið að
mæta á Úlfljótsvatn og taka þátt í af-
mælisfögnuðinum. Að sögn Jóns Ingv-
ars verða starfræktar sérstakar búðir
fyrir fjölskyldur, eldri skáta og aðra
sem hafa áhuga á að kynna sér starf-
semina. www.skatar.is