Fréttablaðið - 07.07.2007, Síða 58
Heimsbyggðin stóð á öndinni yfir einu mesta ævintýrabrúðkaupi fyrr og síðar – brúðkaupi kvikmyndastjörnunnar Grace Kelly og Rainier fursta af Mónakó í apríl 1954. Bestu brúðkaupin eru
annaðhvort úr konunglegu deildinni eða Hollywood-ættuð en þarna
mættust þeir tveir heimar og
úr varð prinsessu-blúndu-ofur-
stjörnu brúðkaup. Kjóllinn var
hannaður af Helen Rose sem hann-
aði ófáa Hollywood-kvikmynda-
kjólana en hún var yfirhönnnuður
MGM kvikmyndaversins. Brúð-
arkjóllinn sjálfur átti svo eftir
að lifa lengi í ótal eftirlíkingum
en fáir kjólar hafa haft svo mikil
áhrif á brúðarkjólatískuna sem
og kjóll Grace Kelly. Kjóllinn var
afar íburðarmikill, úr svokallaðri
Valenciablúndu – langerma og
upp í háls. Pilsið var blöðrulaga og
undir það voru notuð þrjú undir-
pils úr tjulli og silki. Slörið var fest
í litla perluhúfu en kjóllinn sjálf-
ur var með eitt þúsund ásaumuð-
um perlum. Lýðurinn trylltist end-
anlega þegar furstinn skar brúðar-
tertuna með sverði sínu – sem var
hluti af einkennisbúningi hans –
en með vígslunni sjálfri fylgdist
fólk í beinni útsendingu sem send
var út í níu löndum.
Kíkt við í kapellunni
Vítt og breitt um landið eru slör nú dregin eftir kirkjugólfum, hvítar nokkurra hæða marsipantertur standa á stöllum í veislusölum og
brúnkusprautunarklefar og hárgreiðslustofur skála í kampó fyrir góðri tíð í kassanum. Því er ekki úr vegi, á ofurrómantískum degi
sem þessum, að slást í för með Júlíu Margréti Alexandersdóttur og líta við í nokkrum af rómantískustu brúðkaupum fyrr og síðar.
Brúðkaup þeirra hjóna var á sínum tíma talið það veglegasta sem bandaríska
þjóðin hafði séð. Gestir í kirkj-
unni þennan haustdag árið 1953
voru rúmlega 700 en í veisluna
mættu svo 1.200 manns. JFK og
Jackie hittust þremur árum áður
á blindu stefnumóti en þegar John
leiddi spúsu sína upp að altarinu
var hún orðin 24 ára og hann 36.
Jackie var í fílabeinshvítum silki-
kjól með stóru pilsi sem haldið var
uppi með krínolíni. Hann var hann-
aður af Ann Lowe en hún sá um að
hanna kjóla á ýmsar fyrirkonur,
svo sem Vanderbilts, Rockefellers,
Roosevelts og Bouviers en fræg-
ust varð hún þó fyrir kjól Jackie en
það tók hana tvo mánuði að sauma
hann. Brúðarslörið var úr kistli
ömmu hennar og var fest við hár
Jackie með appelsínugulum blóm-
um og blúnduspöng. Á handlegg
bar hún svo demantsarmband sem
John gaf henni kvöldið áður sem og
demantsnælu sem tengdaforeldrar
hennar gáfu henni. Á eftir forseta-
frúnni trítluðu svo tíu brúðarmeyj-
ar í bleikum silkikjólum.
Eitt íburðarmesta konung-lega brúðkaup seinni tíma má klárlega telja brúðkaup
Díönu heitinnar og Karls Breta-
prins. Hinn 29. júlí 1981 stóð hin
tvítuga og taugaóstyrka Díana við
altarið, í fílabeinshvítum silki-
kjól og heillaði þjóðina með því
að sótroðna og rugla nöfnum
Karls. Kjóllinn var hannaður af
bresku hönnunarhjónunum David
og Elizabeth Emanuel og var
púfferma og í honum mætti 9. ára-
tugurinn með miklum ermum og
púðum og viktoríski stíllinn með
blúndum og klassísku yfirbragði.
Á eftir gengu brúðarmeyjar með
blóm í körfum en talið er að um
ein milljarður manns hafi fylgst
með brúðkaupinu. Þrátt fyrir
hörmulegt hjónaband sagði Díana
að dagurinn hefði verið einn mesti
hamingjudagur lífs síns.
Elizabeth og Burton giftu sig á Ritz-Carlton hótelinu í Montreal í Kanada árið
1964 – nokkrum dögum eftir að
Elizabeth fékk lögskilnað við fyrri
eiginmann sinn en Burton skildi
nokkrum árum áður. Ástarsaga
þeirra hafði þó hafist nokkrum
árum áður og við tökur Kleópötru
átti leikstjórinn í mestu vandræð-
um með að stöðva þau í að leika
ástarsenur. Þau Elizabeth og Burt-
on giftu sig aftur síðar á ævinni
þótt bæði hjónaböndin hafi endað
með skilnaði.
Nýjasta brúðkaup Donalds Trump varð að sannkölluð-um fjölmiðlasirkus þegar
hann gekk að eiga hina slóvensku
Melanie Knauss. Til veislunnar
mættu módel og leikarar – Bill og
Hilary Clinton og fyrrum borgar-
stjóri New York-borgar, Rudolph
Giuliani. Kjóllinn sjálfur var
þó senuþjófurinn enda vó hann
hvorki meira né minna en 20 kíló
og skartaði Melanie honum á
forsíðu Vogue.
Felipe prins sá Letiziu fyrst í sjónvarpinu. Hún starfaði þá sem fréttakona og hreifst prinsinn samstundis af henni. Hinn 25. maí 2004 gengu þau í það heilaga í Madríd og 25 milljónir Spánverja
fylgdust með vígslunni. Kjóllinn var hannaður af spænska hönnuðinum
Manuel Perteg og þótti hinn fegursti en þrátt fyrir glæsilega innkomu
hvað klæðaburð varðar var leiðin niður á við eftir brúðkaupið og var
prinsessan nýlega gagnrýnd fyrir hörmulegan fatasmekk.