Fréttablaðið - 07.07.2007, Side 64

Fréttablaðið - 07.07.2007, Side 64
Það er stundum alveg ótrúlega þægi- legt að vera Íslend- ingur, og þá einna helst í útlöndum. Að tilheyra svona oggulítilli þjóð, með svona skemmtilega sérstakt tungumál, veitir ferða- löngum það frelsi að geta sagt ná- kvæmlega það sem þeim finnst um allt hið skringilega sem fyrir augu ber í utanlandsferðum. Ég get ekki annað en fundið til með þeim jarðarbúum sem tala alþjóðleg tungumál, bara vegna þessa. Merkilegt nokk, þrátt fyrir smæð- ina og fjarlægðina og það allt saman, virðist Íslendingum og afurðum klakans samt oftar en ekki takast að hafa mig uppi á ferðalögum mínum. Fyrir mörgum árum síðan var ég til dæmis stödd í ponsulitlu fjallaþorpi á Ítalíu. Þar var ekkert að finna eða sjá nema íbúana sjálfa, sem voru af skornum skammti, einn veitingastað og sjoppu með skakka mynd af fjall- inu sjálfu uppi á vegg. Þar sem ég er að fá mér fyrsta bitann af lasagnanu mínu – hvað heyri ég nema hið ást- kæra, ylhýra! Og ekki nóg með það, heldur var þar fyrrum fjölskyldu- meðlimur á ferð, sem hafði ekki hugmynd um að við værum ein- hvers staðar annars staðar en heima í stofu í austurhluta Reykjavíkur. Í nýafstöðnu sumarfríi varð ég fyrir svipaðri upplifun þar sem ég sat á veitingastað í króatísku þorpi, sem að þessu sinni státaði af heil- um fjórum sjoppum. Í þorpinu því heyrði ég mest í hundum, því næst geitum og loks innfæddum. Þar sem ég sötraði króatískan bjór á bryggjusporðinum barst mér hins vegar til eyrna ekta íslensk gæða- tónlist frá umræddum veitingastað – Trabant á fullu blasti. Það var frekar súrrealísk upplifun. Á leiðinni heim úr króatíska geita- þorpinu opnaði ég útlenskt tísku- blað á flugvelli allra Íslendinga, Kastrup. Og viti menn, hver star- ir þar í augu mér nema tískúgúrú- inn og fyrrverandi samstarfsmað- ur minn, Ási of Iceland! Þrátt fyrir smæð og fæð virðist ekki vera þverfótandi fyrir okkur klaklend- ingum í útlöndum. Mér finnst það bara afspyrnu skemmtilegt. – ódýrari valkostur Vantar þig auka- pening? Pósthúsið leitar að duglegu og morgunhressu fólki til að bera út blöð milli 6 og 7 á morgnana. Um er að ræða holla og hressandi útiveru, annars vegar á virkum dögum og hins vegar um helgar. Njóttu þess að taka daginn snemma, hreyfðu þig og fáðu borgað fyrir það. Allar nánari upplýsingar veitir dreifingardeild Pósthússins í síma 585 8330. Einnig er hægt að sækja um á www.posthusid.is Pósthúsið ehf | Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 585 8300 | posthusid.is Pósthúsið er ungt og öflugt dreifingarfyrirtæki á sviði blaða- og vörudreifingar. Hjá Pósthúsinu starfa um sjöhundruð manns að uppbyggingu á fjölbreyttum og skemmtilegum vettvangi. H im in n o g h af / S ÍA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.