Fréttablaðið - 07.07.2007, Síða 70
Útvarpsstöðin FM957 stendur
fyrir heimsmetstilraun á Lands-
móti UMFÍ á morgun sem felst í
að ná að minnsta kosti 1.195 manns
saman í vatnsbyssubardaga sem
háður verður á stóru svæði vestan
við Fífuna í Kópavogi. Núverandi
met, 1.194 manns, var sett fyrir
nokkrum árum í Bandaríkjunum.
„Ég var að fletta í gegnum
heimsmetabók Guinness fyrir til-
viljun fyrir nokkrum mánuðum og
sá þetta met sem mér fannst held-
ur lítið til koma. Ég hugsaði strax
að við hlytum að geta gert betur,“
útskýrir útvarpsmaðurinn Heiðar
Austmann sem á heiðurinn að hug-
myndinni. Búist er við miklu fjöl-
menni við Kópavogsvöll í tilefni
Landsmótsins um helgina og skora
Heiðar og félagar á sem flesta að
vera með. 2.000 vatnsbyssur og
bolir verða afhentir þátttakendum
á staðnum en sjálfsagt er að fólk
mæti með eigin vatnsbyssur. Til
að slá metið þarf tiltekinn fjöldi
að sprauta úr vatnsbyssunum á
sama tíma í ákveðinn tíma og til að
geta staðfest metið mun gjörning-
urinn verða festur á myndband.
„Draumurinn er að láta frá okkur
allar vatnsbyssurnar og stórbæta
heimsmetið,“ segir Heiðar.
Vatnsbyssubardaginn verður
flautaður á um klukkan 15 en í
kringum hann hefur verið smíðuð
glæsilega skemmtidagskrá þar
sem Jógvan, Viggi og Hreimur,
söngvarinn Alan munu koma fram
meðal annars.
Stefnt á heimsmet í vatnsbyssubardaga
Bretar geta tekið gleði sína
á ný því að framtíðarkon-
ungsefni landsins er aftur
komið á fast. Ekki er þó
ný drottning komin í höll-
ina því Vilhjálmur og Kate
Middleton hafa tekið saman
á ný.
Breska blaðið The Sun tilkynnti
um endurfundi Vilhjálms Breta-
prins og Kate Middleton á forsíðu
sinni í gær. Samband Kate og Vil-
hjálms lauk í vor þegar kóngur-
inn taldi sig þurfa að sletta aðeins
úr klaufunum og njóta lífsins í
hernum. Kate vildi hins vegar fá
hring á fingur og stórt brúðkaup
sem samræmdist vonum og vænt-
ingum bresku þjóðarinnar um
nýtt „Díönu-og-Karls brúðkaup.“
Konungsefnið fór hins vegar
fljótlega að sakna Kate og var
hún meðal annars á góðgerðar-
tónleikunum á Wembley sem
haldnir voru til minningar um Dí-
önu prinsessu. Þar héldu þau þó
hæfilegri fjarlægð hvort frá öðru.
Slúðurblöðin bresku voru hins
vegar ekki lengi að birta vanga-
veltur um að eldurinn í hjörtum
þeirra hefði kviknað að nýju og
greindi News of the World meðal
annars frá því í sunnudagsblaði
sínu eftir tónleikana að þau hefðu
átt næturgaman eftir tónleikana.
Og nú virðast þau vera komin
úr felum með sambandið eftir að
Vilhjálmur sannfærði Kate um
að það væri þess virði að vera í
sambandi við næsta kóng Bret-
lands. „Þau eru nánari en nokkru
sinni fyrr,“ hefur The Sun eftir
heimildarmanni sínum. „Þau tóku
eitt skref aftur, veltu hlutunum
aðeins fyrir sér og áttuðu sig á
hvaða tilfinningar þau bera hvort
til annars,“ bætir nafnlausi heim-
ildarmaðurinn við.
Og ekki eru Bretar lengi að
taka við sér, eru nú þegar byrjað-
ir að velta því fyrir sér hvenær
kirkjuklukkurnar verði látnar
hringja og boðað verði til brúð-
kaups í Buckingham.
Líklegt er hins vegar talið að
ef sambandið gengur snurðulaust
fyrir sig verði slíkt ekki að veru-
leika fyrr en árið 2009 þegar Vil-
hjálmur hefur lokið herþjónustu
sinni.
Sir Paul McCartney og Heather
Mills stefna að því að verða ná-
grannar. Þetta kom fram á er-
lendum slúðurvefjum í gær. Sam-
kvæmt þeim hyggst Mills kaupa
sér hús nærri villu Pauls í East
Sussex. Samkvæmt vefsíðu Now
tímaritsins langar Mills að búa í
Rye en það er aðeins í nokkurra
mínútna fjarlægð frá híbýlum
bítilsins fyrrverandi. Þykir þetta
til marks um að þíða sé komin í
samskipti fyrrum hjónakornanna
eftir hálfgert stríðsástand þegar
þau skildu.
Daily Mirror hefur eftir heim-
ildarmanni sínum að þetta hefði
verið óhugsandi fyrir nokkrum
mánuðum en nú sé öldin önnur.
„Þau vilja veg dóttur sinnar, Beat-
rix, sem mestan og gera sér grein
fyrir því að hún þarf á báðum for-
eldrum sínum að halda,“ hefur
blaðið eftir heimildarmanni
sínum.
McCartney og Mills
verða nágrannar
Hjónaband Juliu Roberts og
Danny Moder er í uppnámi þessa
dagana. Álit Roberts á fjölskyldu
eiginmannsins hefur aldrei verið
hátt, en systir Danny, Jyl, hefur
átt við áfengisvandamál að stríða
í mörg ár. Leikkonan krafðist
þess að Moder-fjölskyldan færi í
sálfræðimeðferð þegar hún var
ólétt að tvíburunum Phinnaeus
og Hazel, sem eru nú á þriðja ári.
Hún gerði sömu kröfu þegar von
var á þriðja barna hjónanna, sem
fæddist 18. júní síðastliðinn. Í
þetta skiptið vildi Roberts fylgja
fjölskyldunni til sálfræðingsins.
Tengdafólk hennar var ekki hrif-
ið af hugmyndinni og hætti í með-
ferð. Roberts er ekki hrifin af
þeirri ákvörðun og hefur nú hótað
tengdafólki sínu að það fái ekki að
sjá nýfætt barnið fyrr en það fari
aftur í meðferð.
Þessi afstaða Juliu er ekki til
þess fallin að stuðla að hamingju-
sömu fjölskyldulífi, og samkvæmt
National Enquirer er hjónabandið
í hættu.
Hjónabandserjur
Tónleikaröð Reykjavík Grapevine,
Take me down to Reykjavík City,
heldur áfram í dag. Tónleikarnir
fara fram í garðinum á Sirkus við
Klapparstíg og verða í tvennu lagi
að þessu sinni.
Fyrri tónleikarnir eru frá klukk-
an 16 til 18 og þá spila hljómsveit-
irnar Retro Stefson og Rafhans.
Sirkusmarkaðurinn verður í full-
um gangi þannig að fólk getur
slegið tvær flugur í einu höggi,
keypt sér eitthvað fallegt og hlust-
að á hressandi tónlist á meðan.
Í síðara hollinu sem stendur frá
21 til 23.30 spila svo hljómsveit-
irnar Reykjavík! og Ultra Mega
Technobandið Stefán. Þá væri til-
valið að dansa trylltan dans í til-
efni sumarsins, sólarinnar og bara
af hvaða öðru tilefni sem er. Frítt
er á tónleikana.
Stuð á Sirkus