Fréttablaðið - 01.09.2007, Qupperneq 2
„Við erum öðrum þræði
að brynja okkur í slagnum gegn
nýrri holskeflu einkavæðingar,“
segir Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, en þing-
flokkur VG ætlar við upphaf þings
í haust að óska eftir að gerð verði
úttekt á afleiðingum markaðs- og
einkavæðingar á undirstöðustofn-
unum almannaþjónustunnar.
VG skilgreinir almannaþjónustu
vítt; horfir til fjarskipta, sam-
gangna og orkumála, ekki síður en
mennta og heilbrigðisþjónustu.
Vilji VG stendur til að úttektin nái
bæði til stofnana og þjónustu ríkis
og sveitarfélaga.
Áhyggjur Steingríms af frekari
markaðs- og einkavæðingu grund-
vallast bæði á yfirlýsingum stjórn-
málamanna og upplýsingum úr
stjórnkerfinu. „Við höfum vitn-
eskju innan úr heilbrigðiskerfinu
um að heilbrigðisráðherra [Guð-
laugur Þór Þórðarson] hafi nánast
gefið fyrirmæli um að það skuli alls
staðar leita logandi ljósi að slíkum
möguleikum.“ Þá séu sjónarmið í
þessa átt ekki einskorðuð við Sjálf-
stæðisflokkinn. „Innan raða Sam-
fylkingarinnar hafa verið raddir í
þessa átt. Varaformaðurinn [Ágúst
Ólafur Ágústsson] hefur til dæmis
talað býsna afdráttarlaust um að
nýta kosti einkaframtaksins.“
Í ræðu á flokksráðsfundi VG á
Flúðum í gær sagði Steingrímur að
heilbrigðisráðherra mætti vita að
grannt verði fylgst með ef „einka-
væðingarvaltarinn á næst að rúlla
yfir heilbrigðismálin að banda-
rískri fyrirmynd“.
Í ræðunni sagði Steingrímur
flokk sinn þann eina sem væri fær
um að vera höfuðandstæðingur og
mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn
eftir að Samfylkingin hefði sagt sig
frá verkefninu. Framsóknarflokk-
urinn væri enda tærður upp af sam-
búðinni við Sjálfstæðisflokkinn og
Frjálslyndi flokkurinn hægra
megin við miðju.
Kvað hann þá sem haft hafi
áhyggjur af fáliðaðri stjórnarand-
stöðu geta verið rólega; Vinstri
hreyfingin - grænt framboð muni
skila sínu og það af fullum þunga
þess aukna afls sem flokkurinn
búi yfir.
Brynja sig í slagnum
gegn einkavæðingu
Þingflokkur VG vill að afleiðingar markaðs- og einkavæðingar almannaþjón-
ustu verði kannaðar. Beiðni um slíka könnun verður lögð fram við upphaf
þings í haust. Steingrímur J. Sigfússon býst við nýrri holskeflu einkavæðingar.
Dagný, er þessi ruslpóstur að
ríða ykkur að fullu?
Saksóknarar í
Rússlandi birtu á miðvikudag
hermanni ákæru fyrir að bera
ábyrgð á dauða nýliða í hernum,
sem að sögn var barinn af
tveimur drukknum undirforingj-
um og skilinn eftir í hundabúri
yfir nótt.
Nýliðinn, Sergei Sinkonen, lést
af sárum sínum á sjúkrahúsi á
mánudag, tveimur vikum eftir að
hann fannst í blóði sínu.
Málið hefur vakið athygli á
ófremdarástandi í rússneska
hernum, þar sem ofbeldi er
landlægt, einkum gegn nýliðum.
Hundruð nýliða og annarra
hermanna láta lífið árlega af
völdum níðingsofbeldis.
Ákært vegna
dauða nýliða
Matsmenn verða kvadd-
ir fyrir dóminn í máli Olíufélag-
anna gegn Samkeppniseftirlitinu
og íslenska ríkinu. Úrskurðað var
um þetta í gær en olíufélögin
voru dæmd til þess að greiða 100
þúsund krónur í málskostnað.
Olíufélögin krefjast þess að sekt-
ir samkeppnisyfirvalda verði
dæmdar ógildar.
Þess var krafist af hálfu Sam-
keppniseftirlitsins og ríkisins að
yfirmatsnefnd yrði skipuð til
þess að fara yfir álitamál sem
snúast um, með einum eða öðrum
hætti, hvaða forsendur eru not-
aðar til þess að meta það hvort
samráð olíufélaganna Olís,
Skeljungs og Kers, áður Olíufé-
lagsins, á árunum 1993 til og með
meirihluta árs 2001, hafi valdið
tjóni eða ekki. Heimir Örn Her-
bertsson, lögmaður Samkeppnis-
eftirlitsins, segir ómögulegt að
segja hvaða áhrif þetta muni hafa
á málsmeðferðina fyrir dómi en
segir álit matsmanna geta skipt
miklu máli þegar tekist er á um
málið fyrir dómi.
Hörður F. Harðarson, lögmað-
ur Skeljungs, segir það hafa verið
mat lögmanna olíufélaganna að
matsbeiðnirnar sem tekist var á
um hafi ekki verið í samræmi við
réttarfarsreglur og því hefði ekki
átt að taka þær til greina.
Heimir Haraldsson endurskoð-
andi og Guðmundur K. Magnús-
son unnu að matsgerð fyrir olíu-
félögin og komust að þeirri
niðurstöðu að ávinningur félag-
anna hefði verið á bilinu núll til
800 milljónir króna.
Meðal annars á grundvelli
þessa mats telja lögmenn olíufé-
laganna aðferðafræði við ákvörð-
un stjórnvaldssekta samkeppnis-
yfirvalda ranga. Olíufélögin voru
sektuð um 1,5 milljarða króna
fyrir samráðið.
Olíufélögin hafa tvær vikur til
þess að kæra niðurstöðuna til
Hæstaréttar.
Matsmenn kvaddir fyrir dóm
Nýkjörinn forseti
Tyrklands, sanntrúaður múslimi
sem hefur heitið því að virða
aðskilnað ríkis og íslams, fékk á
miðvikudag í hendur fyrsta emb-
ættisverk sitt: að fara yfir ráð-
herralista nýrrar ríkisstjórnar.
Uppstokkun í stjórninni varð
nauðsynleg ekki síst vegna kjörs
Abdullah Gül til forseta, þar sem
hann var utanríkisráðherra. Á
fimmtudag sat Gül síðan við hlið
yfirmanns heraflans, Yasars
Büyükanit, við hátíðarhöld hers-
ins í tilefni af 85 ára afmæli sig-
urs yfir Grikkjum. Büyükanit
hafði beitt sér af hörku gegn for-
setaframboði Güls.
Gül náði kjöri til forseta í
atkvæðagreiðslu á þingi á þriðju-
dag, að undangengnum mánaða-
löngum hörðum átökum milli hins
trúarlega sinnaða stjórnarflokks,
sem hann var í framboði fyrir, og
hinna veraldlega sinnuðu mót-
herja hans. Forsetaembættið
hefur fram til þessa verið mikið
vígi veraldarhyggjunnar í tyrk-
neskum stjórnmálum.
Forsetinn hefur vald til að hafna
einstökum ráðherraefnum, en
ekki var gert ráð fyrir að Gül
gerði neinar athugasemdir við
ráherraval samherja síns, Recep
Tayyip Erdogan forsætisráðherra.
Búist var við að Ali Babacan, sem
hefur stýrt aðildarviðræðunum
við Evrópusambandið, taki við
utanríkisráðherraembættinu.
Friður um fyrstu embættisverk
Landssamband lög-
reglumanna hefur farið fram á
fund með fjármálaráðherra
vegna þeirrar stöðu sem uppi er
hjá lögreglunni, að sögn Steinars
Adolfssonar, framkvæmdastjóra
sambandsins.
Tugir lögreglumanna hafa sagt
upp vegna óánægju með launa-
kjör og aðrir bíða eftir viðbrögð-
um ráðuneytisins.
„Það heyrist eftir okkar
stjórnarmönnum sem starfa
í embættum víðs vegar um
landið að það séu margir
félagsmenn sem bíði með
uppsagnir þar til niðurstaða úr
viðræðum Landssambandsins og
fjármálaráðuneytisins liggja
fyrir,“ segir Steinar.
Lögreglumenn
eru í biðstöðu
Einn Suður-
Kóreubúanna nítján sem voru í
haldi talibana þar til nýlega hefur
beðist afsökunar á fyrirhöfninni
sem mannránið olli. „Ég get ekki
sofið af áhyggjum vegna vand-
ræðanna sem sköpuðust vegna
okkar. Mér þykir þetta mjög
leitt,“ sagði hann í viðtali.
Öllum gíslunum var sleppt á
þriðjudag eftir að samningar
tókust milli ríkisstjórnar Suður-
Kóreu og talsmanna talibana.
Meðal skilyrða fyrir frelsi
gíslanna var að Suður-Kórea
drægi her sinn til baka úr
Afganistan fyrir árslok.
Fyrirgefið að
mér var rænt
Útivistartími barna og
unglinga breytist í dag. Frá og
með 1. september mega tólf ára
börn og yngri vera úti til klukkan
átta á kvöldin, en þrettán til
sextán ára unglingar mega vera
úti til klukkan tíu.
Útivistarreglurnar eru
samkvæmt barnaverndarlögum,
en þeim er meðal annars ætlað að
tryggja nægan svefn barna og
unglinga. Ætla má að börn og
unglingar á grunnskólaaldri þurfi
tíu tíma svefn á nóttu, segir í
tilkynningu frá lögreglu.
Útivistartími
barna styttist
Eignarhlutur LME,
eignarhaldsfélags Landsbankans,
Marel og Eyris Invest, í Stork í
Hollandi er nú 43,3 prósent.
LME hefur markvisst aukið hlut
sinn í Stork, en Árni Oddur
Þórðarson, forstjóri Eyris, segir
að með því sé sýnd langtímaskuld-
binding gagnvart samstæðunni.
„Aukinn eignarhlutur er jafnframt
ætlaður til að tryggja og vernda þá
fjárfestingu sem þegar hefur verið
lögð í félagið,“ segir hann. LME
verst yfirtökuáætlunum fjárfest-
ingafélagsins Candover sem Árni
segir ætla að beita aðra hluthafa
þrýstingi jafnvel þó það næði bara
51 prósents hlut í Stork.
LME hefur náð
43,3 prósentum