Fréttablaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 4
„Við eigum að geta
náð algjörri þverpólitískri sam-
stöðu um varnarmál,“ segir Val-
gerður Sverrisdóttir, varafor-
maður Framsóknarflokksins og
fyrrverandi utanríkisráðherra.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra flutti ræðu í
Norræna húsinu í vikunni, þar
sem hún sagði ráðuneytið vinna
að mati á ógnum og framtíðar-
stefnu í varnarmálum. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins er útkomu að vænta á
næstunni.
„Mér sýnist ræðan vera mjög
sambærileg ræðu sem ég flutti
18. janúar í Háskóla Íslands. Ég
er að sjálfsögðu ánægð með
að hún tali á svipuðum nótum og
ég gerði í embætti,“ segir Val-
gerður.
„Að vísu notaði ég ekki orðið
„ógnarmat“ en ég talaði um að
setja á fót öryggis- og varnar-
málasetur, þar sem væru bæði
fræðimenn og embættismenn,
sem störfuðu sjálfstætt gagnvart
þeim sem móta stefnuna hverju
sinni. Það er ekki óáþekkt því
sem hún er að tala um,“ segir
Valgerður.
Valgerður segir stjórnmála-
flokkana alla geta náð sátt um
varnarstefnu. „Hins vegar er
hugsanlegt að Vinstri græn vilji
pólitíkurinnar vegna hafa ein-
hverja sérstöðu.
En ég fæ ekki séð að það geti
verið djúpur ágreiningur,“ segir
Valgerður.
Þverpólitísk samstaða möguleg
„Málsatvik liggja
nokkuð ljóst fyrir. Málið verður
sent til saksóknara á næstunni,“
segir Óskar Sigurðsson lögreglu-
fulltrúi.
Atvikið átti sér stað á sunnudag
þegar karlmaður fór út með
haglabyssu og hótaði að skjóta
fjarstýrðan bensínbíl, sem 23 ára
piltur var að keyra í götunni, ef
hann dræpi ekki á bílnum.
Pilturinn forðaði sér hið
snarasta og hringdi í lögregluna
sem hafði nokkurn viðbúnað.
Maðurinn var færður á
lögreglustöð og sleppt að loknum
yfirheyrslum daginn eftir.
Rannsókn lýkur
á næstunni
Þrjár konur, sem
leitað hafa til Áfallamiðstöðvar
Landspítalans í Fossvogi, eru í
stöðugri lífshættu vegna kúgun-
ar sambýlismanns. Þetta segir dr.
Berglind Guðmundsdóttir, sál-
fræðingur á Áfallamiðstöðinni.
„Þær hafa leitað til okkar og
árásirnar, ógnirnar og áverkarn-
ir, þetta hefur allt verið mjög
alvarlegt. Þetta er endurtekið
ofbeldi sem er enn í gangi.
Ofbeldismaðurinn er stöðugt að
ógna og maður veit aldrei hve-
nær lífshættuleg árás getur átt
sér stað,“ segir Berglind.
Fjöldi kvenna leitar aðstoðar
Áfallamiðstöðvar vegna ofbeldis.
„Konur koma annaðhvort til
okkar beint út af ofbeldinu, eða
leita til okkar vegna áverka sem
grunur leikur á að séu vegna
heimilisofbeldis,“ segir Berg-
lind.
„Oft koma konurnar inn með
ofbeldismanninum,“ segir Berg-
lind. „Hann kemur og stendur
vörð um þær, til að tryggja að
þær segi ekki frá. Starfsfólk þarf
að geta greint vandann þegar
konur koma ítrekað inn með
óskilgreinda áverka.“
Berglind segir að konurnar
þori oft ekki að segja frá ofbeld-
inu og stundum sé nauðsynlegt
að spyrja þær beint um það. „Þær
óttast mennina svo mikið að þær
eru hræddar við að kæra og fara
lagalegu hliðina. Þær óttast jafn-
vel að fara úr ofbeldissamband-
inu, en rannsóknir sýna að ofbeldi
versnar oft við að þær fara úr
sambandinu,“ segir Berglind.
Oft hafa lögreglan og stuðn-
ingssamtök engin ráð til að stöðva
ofbeldismenn, að sögn Berglind-
ar. „Stundum hverfa konurnar
frá okkur og afþakka þjónustu.
Þá vitum við ekki hvað verður
um þær. Ef ofbeldismaðurinn er
á einhvern hátt í lífi konunnar
stoppar ofbeldið ekki nema hann
leiti sér hjálpar.“
Í kynferðisafbrotamálum fær
þolandinn lögfræði- og sálfræði-
þjónustu og eftirfylgd ef hann
vill. Berglind segir stefnt að því
að setja heimilisofbeldismálin í
sama farveg, en til þess vanti
peninga. „Við bindum vonir við
að það fáist fjármagn til að
byggja þessa þjónustu upp enn
frekar og Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra hefur sagst
ætla að setja málaflokkinn í for-
gang,“ segir Berglind.
Stefnt í lífshættu af
sambýlismönnum
Þrjár konur sem leitað hafa aðstoðar Áfallamiðstöðvar eru taldar í stöðugri
lífshættu vegna ofbeldis sambýlismanns. Fjórðungur kvenna hefur orðið fyrir
ofbeldi. Gerandi ofbeldis gagnvart konum er oftast einhver nákominn þeim.
Hjálmar W.
Hannesson sendiherra hefur
verið kjörinn einn af varaforset-
um 62. allsherjarþings Samein-
uðu þjóðanna sem hefst í
september.
Hjálmar er
einn sextán
kjörinna
varaforseta
þingsins, en
hann er
fastafulltrúi
Íslands hjá SÞ.
Varaforseti
allsherjarþings
tekur þátt í
starfi nefndar þingsins sem
ákveður dagskrá þess og hleypur
í skarð forseta þegar svo ber
undir. Áður hafa Thor Thors,
Tómas Á. Tómasson og Þorsteinn
Ingólfsson gegnt embættinu.
Hjálmar einn
varaforseta SÞ
„Hnattrænar
áhyggjur af stóru umhverfismál-
unum, til dæmis hlýnun jarðar,
hafa skyggt á önnur vandamál, eins
og landeyðingu,“ segir Andrew
Campbell, ástralskur
umhverfissinni. Hann er einn af
fjölmörgum ræðumönnum á
alþjóðlegu samráðsþingi um
jarðvegsvernd, sem hófst í gær á
Selfossi.Ráðstefnan er haldin í
tilefni af aldarafmæli Landgræðslu
ríkisins, en ekki er talið að nokkur
þjóð hafi starfrækt lengur
samfleytt samtök um landgræðslu
og stöðvun jarðeyðingar. Hundrað
erlendir og fjörutíu innlendir
gestir taka þátt í ráðstefnunni.
Í skugga stærri
umhverfismála
Björgunarsveitin Iðunn á
Laugarvatni dró í gær bifreið
með tveimur mönnum úr
Skillandsá, við bæinn Miðdal í
Bláskógabyggð.
Sveitin var kölluð út um klukk-
an 17.30 og gekk björgunarstarf
vel fyrir sig.
Mennirnir voru orðnir nokkuð
blautir þegar sveitina bar að, því
flætt hafði inn í bílinn.
Bíl bjargað úr
Skillandsánni