Fréttablaðið - 01.09.2007, Qupperneq 10
Í nýrri skýrslu
Alþjóða kjarnorkumálastofnunar-
innar, IAEA, segir að Íranar
framleiði minna kjarnorkuelds-
neyti en búist hefði verið við. Þar
segir einnig að stjórnvöld í
Teheran hefðu „tekið verulegt
skref“ í átt að því að útskýra þau
atriði í kjarnorkustarfsemi sinni
sem vakið hefðu tortryggni á
liðnum misserum.
Þess er vænst að skýrslan muni
gera bandarískum ráðamönnum
erfiðara fyrir að safna stuðningi
við nýjar refsiaðgerðir gegn Íran.
Þó er jafnframt staðfest í
skýrslunni að Íranar hafi haldið
áfram að auka auðgun úrans, þvert
á ályktanir Öryggisráðs SÞ.
Minni kjarn-
orkustarfsemi
Bretar og fjölmarg-
ir aðdáendur Díönu prinsessu
víða um heim minntust þess í
gær að tíu ár voru liðin frá and-
láti hennar í umferðarslysi í
París.
Konungsfjölskyldan í Bretlandi
minntist hennar með minningar-
athöfn í Kensingtonhöll í London.
Í ræðu sinni sagði Harry prins,
sonur Díönu og Karls, að móður
hans ætti að minnast „eins og hún
hefði viljað láta minnast sín, eins
og hún var: lífsglöð, örlát, jarð-
bundin og besta móðir í heimi“.
Athöfnin fór fram af konungleg-
um virðuleika. Þó skyggði á hana
skammarræða frá einum vina
Díönu sem varð til þess að Camilla,
seinni eiginkona Karls Bretaprins,
hætti við að vera viðstödd.
Í augum nánustu vina Díönu og
fjölmargra aðdáenda er Camilla
konan sem eyðilagði hjónabandið.
Richard Chartres, biskup í Lond-
on, stýrði athöfninni og sagðist
vonast til þess að með henni yrði
hægt að slá botninn í stanslausar
deilur um Díönu, og héðan í frá
geti fólk leyft henni hvíla í friði.
Ólíklegt þykir þó að honum verði
að ósk sinni. Andlit Díönu er enn
notað grimmt til að selja tímarit og
dagblöð og saga hennar er efni í
sífellt nýjar bækur.
Samkvæmt skoðanakönnun,
telur fjórði hver Breti að hún hafi
verið myrt.
Lífsglöð, örlát og besta móðir í heimi
„Fólk veit af þessari
smithættu og það verður að vera
hvers og eins að meta hvort farið
er með hundana á sameiginleg
útivistarsvæði,“ segir Auður
Arnþórsdóttir sóttvarnadýra-
læknir hjá Landbúnaðarstofnun.
Lifrarbólgufaraldur geisar nú í
hundum á suðvesturhorni lands-
ins. Rúmlega 60 hundar hafa
smitast og fimmtán drepist, sam-
kvæmt upplýsingum frá Land-
búnaðarstofnun.
„Við höfum velt því fyrir okkur
hvers vegna faraldurinn er bund-
inn við Suðvesturland,“ segir
Auður enn fremur. „Við höfum
enga skýringu en teljum það geta
stafað af því að þar er mestur
fjöldi hunda,“ útskýrir hún.
„Það hefur ekki verið bólusett
við lifrarbólgu síðan 2003. Það er
því orðinn til stór hópur sem
hefur ekki mótefni gegn þessum
sjúkdómi og hann stækkar ört.
Þessi veira er einhvers staðar í
hópnum og hefur verið þar í mörg
ár. Hún hefur fleiri hunda til að
smita núna en áður.“
Auður segir að Landbúnaðar-
stofnun hafi rætt við lyfjafyrir-
tæki erlendis um að framleiða lyf
gegn lifrarbólgu fyrir íslenskan
markað.
Undirtektir hafi verið nokkuð
góðar, en lyfið komi ekki á mark-
að hér fyrr en eftir nokkra mán-
uði, ef samkomulag takist.
Fólk veit af smithættunni
Stanslausar kvartanir
farþega í flugvél á þriðjudags-
kvöld urðu til þess að fresta
þurfti fluginu þar til morguninn
eftir. Kona nokkur var óánægð
með sex karlmenn sem töluðu
arabísku í flugvélinni, sem fljúga
átti frá San Diego til Chicago í
Bandaríkjunum.
Flugvélin þurfti að snúa aftur
til flugstöðvarinnar og hætta við
flugtak og voru mennirnir sex og
konan yfirheyrð. Í ljós kom að
mennirnir voru bandarískir, af
íröskum uppruna. Þeir höfðu allir
verið í æfingabúðum Bandaríkja-
hers og voru á leið til að taka þátt
í stríðinu í Írak.
Óttaðist arabísku-
mælandi menn
„Það er æskilegra að
unglingadeildin sé fjölmenn eigi
hún að vera öflug,“ segir Júlíus
Vífill Ingvarsson, fomaður
menntaráðs.
Breyta á
skipulagi
varðandi
skólamál í
Úlfarsárdal
þar sem gert
er ráð fyrir
3.500 íbúðum.
Upphaflega
var gert ráð
fyrir þremur
skólum frá
fyrsta og upp í tíunda bekk en nú
hefur verið ákveðið að fjölga
skólum um einn og hafa sérstak-
an skóla fyrir unglingadeild.
Júlíus Vífill segir mikilvægt
að bjóða unglingum upp á
fjölbreytni.
Aukið val í
stærri deild