Fréttablaðið - 01.09.2007, Qupperneq 22
É
g er
búinn
að
panta
tíma
fyrir ykkur hjá
geðlækni,“
sagði Benóný
Ásgrímsson,
flugstjóri þyrlu
Landhelgis-
gæslunnar TF-
GNÁR, í gríni
við Hlyn
Stefánsson og
fjóra félaga
hans úr
björgunar-
sveitunum, við
Hrútfjallstinda
þegar hann náði
í þá um
kvöldmatar-
leytið síðasta
laugardag.
Hlynur og
félagar hans
voru valdir til
að leita tveggja
Þjóðverja á
fjallinu við afar
erfiðar
aðstæður og
hefur Benóný
líklega verið að
vísa til þess að
leiðangur
þeirra væri óðs
manns æði.
Ekkert hefur
spurst til
Þjóðverjanna
síðan í lok júlí
og tóku um tvö
hundruð
björgunar-
sveitarmenn
þátt í að leita að
þeim um liðna
helgi.
Fimmmenning-
arnir stukku úr
þyrlunni yfir
fjallinu og
leituðu að
Þjóðverjunum í
sjö klukku-
stundir.
Nákvæmnin
og yfirvegunin
sem einkennir
Hlyn er talin
nýtast honum
vel í slíkum
aðstæðum og er
hann oft valinn
til að stjórna
björgunar-
leiðöngrum.
„Hlynur er
maðurinn sem
ég vil hafa við
hliðina á mér í
erfiðum og
krefjandi
björgunar-
verkefnum því
hann veit alltaf
hvað hann á að
gera,“ segir
félagi hans í
björgunar-
sveitinni.
„Pottþéttur
björgunar-
sveitarmaður og gull af manni,“ segir annar.
Þessir eiginleikar nýtast Hlyni einnig vel í starfi
hans sem verkfræðingur. „Hann vinnur að sínu í
rólegheitum, að minnsta kosti á yfirborðinu; það er
aldrei neinn gusugangur í honum þó að hann sé
afskaplega duglegur og skari alls staðar fram úr.“
Hlynur fékk meðal annars einkunnina þrettán
fyrir lokaverkefni sitt í mastersnámi í aðgerða-
stjórnun við danskan háskóla: einkunn sem er sögð
sambærileg við ellefu á íslenska skalanum.
Hann er talinn ígrunda mál sitt vel, vera
rökfastur, frjór og skapandi í vinnu sem og góður
sölumaður: ákveðni og þrjóska eru orð sem eru
notuð til að lýsa honum. „Hann gefst ekki upp
fyrr en í fulla hnefana.“ Þrátt fyrir dugnaðinn og
ákveðnina getur Hlynur samt haldið sér til hlés ef
svo ber undir og honum er lýst sem ljúfmenni.
„Hann er ekkert fyrir það að trana sér fram að
óþörfu.“
Miðað við þessar lýsingar er eðlilegt að
blaðamaður hafi gripið í tómt þegar hann reyndi
að kreista eitthvað vafasamt um Hlyn út úr vinum
hans og vandamönnum: enginn gat bent á bresti í
fari hans eða
bernskubrek –
nema ef vera
skyldi galla-
leysið og rauða
hárið sem vinir
hans stríða
honum stundum
á í gríni. „Hann
er aðeins of
rúðustrikaður
fyrir minn
smekk, of
pottþéttur: hann
mætti vera
breyskari. Ég
hef stundum
sagt að Hlynur
yrði fullkominn
forseti því
ekkert úr fortíð
hans getur
varpað skugga á
mannorð hans.“
Hlynur hefur
alla tíð verið
afskaplega
skipulagður og
markviss. Hann
þótti ljúft og
kurteist barn
sem dásamaði
matinn sem
honum var
borinn svo
mikið að
bræður hans
stríddu honum
góðlátlega
vegna þess.
„Bræður hans
sögðu oft að
hann segði
„Mikið er þetta
gott,“ áður en
að hann fékk
matinn og
smakkaði á
honum,“ en
þetta er talið
lýsa eðlislægri
kurteisi og
jákvæðni Hlyns.
Hlynur hefur
verið björgunar-
sveitarmaður í
tólf ár og ver
miklu af frítíma
sínum í starfið
sem og í alls
konar útivist
eins og skíði,
hjólreiðar og
kajakróður.
Áhugann á
útivist fékk
Hlynur strax í
æsku því
foreldrar hans
fóru gjarnan
með þá bræður
á fjöll og
ferðuðust mikið
um í náttúru
Íslands. „Hann
hefur verið á
fjöllum frá
blautu barns-
beini og hálendi
Íslands er hans
annað heimili.“
Það er því
ekki óeðlilegt að
Hlynur er
sagður mikill
umhverfisverndarsinni. „Honum er umhugað um
þetta annað heimili sitt.“ Hlynur er meðal annars
af þessum sökum sagður vera hugsjónamaður
sem er ekki sama hvernig fer fyrir landi og þjóð.
Áralangt starf hans í björgunarsveitunum er án
efa hluti af þessari hugsjón, en hann hefur auk
þess áhuga á lýðheilsu og menntamálum. Vinir
hans og vandamenn geta hins vegar ekki staðsett
hann í pólitík. „Ég veit til dæmis ekki hvað hann
kaus í síðustu kosningum og hann er ekki skráður
í stjórnmálaflokk.“
Hlynur er sagður vera jafnréttissinni sem
sinnir heimilisverkunum til jafns við sambýlis-
konu sína, Brynju Björk Magnúsdóttur sálfræð-
ing, enda eru þau sögð vera nútímafólk: elda-
mennska Hlyns er þó bara sögð svona la-la.
Hlynur og Brynja eru að byggja sér hús í
Norðlingaholti sem þau keyptu fokhelt. Þau vinna
nú að því hörðum höndum að gera húsið
íbúðarhæft og ver Hlynur flestum kvöldum við þá
vinnu þessa dagana, sem kemur ekki á óvart því
hann er sagður vera liðtækur smiður, og er stefna
þeirra að flytja inn í nýja húsið seinni hluta vetrar.
Valmenni sem ann útivist
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00
sun 13:00-16:00 - www.egodekor. is
Útsölulok
20-70%
afsláttur
Frönskunámskeið
hefjast 17. september
Námskeið fyrir fólk á öllum aldri,
byrjendur og lengra komna
Tryggvagata 8,
101 Reykjavík,
Veffang: www.af.is
Netfang: alliance@af.is
Innritun í síma
552 3870
3.-14. sept.
FO
R
M
PR
EN
T
Langar þig að læra
tungumál Risessunnar?
Auglýsingasími
– Mest lesið