Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.09.2007, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 01.09.2007, Qupperneq 30
Þ að var mikið um að vera í Listasafni Reykjavíkur þegar blaðamaður mætti daginn fyrir opnun yfirlitssýningarinnar. Stúlkurnar í Gjörningaklúbbnum sem reyndar velta fyrir sér hvenær verður hætt að kalla þær stúlkur eru á víð og dreif um safnið að koma verkunum fyrir. Alls staðar er fólk að vinna, eiginmenn, vinir og vandamenn. Hátt í hundrað manns hafa lagt hönd á plóg fullyrða stelpurnar og undirbúningur hefur staðið í tvö ár. Yfirlitssýningin er stærsta sýning þeirra til þessa. Eirún, Jóní og Sigrún labba um sýningarsalinn í hendingskasti meðan hamarshöggin dynja og útskýra gömul verk og nýrri. Í gömlu verkunum er Dóra Ísleifs- dóttir með þeim en hún yfirgaf klúbbinn árið 2001. Eirún, Jóní og Sigrún vinna allar sem ein og tala allar sem ein. Þær enda setningar hver hjá annarri og útskýra til skiptis. Ein kona með þrjú höfuð, að minnsta kosti á meðan þær koma fram sem Gjörningaklúbb- urinn. Rannsóknarverkefni sýningar- innar er hvernig gjörningarnir geti lifað án þess að stelpurnar séu að framkvæma þá. Til þess hafa þær fengið THG Arkitekta í lið með sér og arkitektinn Arnald Scram sem hefur staðið í ströngu við að byggja umgjörð utan um gömlu gjörningana. Inni í hverri bólu eru upplifanir varðveittar. Búningar og vídeóupptökur af verkunum rifja upp stemninguna. „Við erum búnar að fara í marga hringi með hvernig best sé að gera þetta.“ Það er óhætt að segja að útkoman er mjög skemmtileg. Á einum sjónvarpsskjá sjást þær klæddar í dúnsængur að fremja dansleikhúsgjörning í Bergen. „Fólk vissi ekki hvað það átti að halda en sem betur fer var barn í áhorfendahópnum sem byrjaði að hlæja og þá varð fólk rólegra og fattaði að þetta var ekki svona mikið drama,“ útskýrir Jóní. Húmor og íronía eru einmitt gegnumgangandi í verkum Gjörn- ingaklúbbsins, á sama tíma og þær vilja láta taka sig alvarlega. Búningar og sérhannaðir leik- munir eru óaðskiljanlegur þáttur í gjörningum þeirra. „Það hefur verið gegnumgangandi hjá okkur að vera í eins dressum og flottum búningum, stundum fáum við förðunarfræðinga til að gera brjálað meiköpp. Það er stór partur af þessu gjörningaklúbbs- dæmi. Eins segjum við aldrei hver gerði hvað. Heldur er þetta allt eftir okkur,“ útskýra þær. Glænýjar teikningar gerðar sérstaklega fyrir þessa sýningu hanga uppi á vegg. „Þetta eru lítil minningarbrot úr gjörningum og verkum sem við höfum gert í gegnum tíðina. Við teiknum allar, en það er alls ekki gefið upp hver teiknaði hvaða mynd. Við erum þær einu sem vitum það. Það er það skemmtilega við að eiga leyndarmál,“ segja þær brosandi. Í einni bólunni á Gjörninga- klúbbsandinn heima. „Hérna verða allir búningar frá okkur og hlutir sem tengja okkur.“ Næsta bóla við er íhugunarherbergi frá árinu 2000. „Maður fer þarna inn og horfir á sig í demantaspeglinum Ástin fer aldrei úr tísku Gjörningaklúbburinn er þekkt fyrirbæri í listalífi Íslendinga en yfirlitssýning klúbbsins stendur nú yfir í Listasafni Reykjavíkur og spannar 11 ára feril. Gjörningaklúbburinn lagði upp með gjörninga en þróaðist út í nútímalist. Ekkert er þeim óviðkomandi. Hanna Björk Valsdóttir hitti þær Eirúnu Sigurðardóttur, Jóní Jónsdóttur og Sigrúnu Ingu Hrólfsdóttur meðan undirbúningur stóð sem hæst í Hafnarhúsinu. Almenningur hefur tekið okkur opnum örmum. En sumir fræðimenn hafa þóst vera eitthvað merkilegir með sig og hafa ekki getað tekið þátt. Við erum alls ekki eitthvert léttvægt dót.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.