Fréttablaðið - 01.09.2007, Qupperneq 31
og svo krýpur maður niður og þá
þarf maður að horfa inn á við.
Leita að sínum eigin demanti,“
útskýra Jóní og Eirún. Það er alltaf
eitthvað fallegt í hugsun Gjörninga-
klúbbsins.
Nýjasta verk þeirra er útilistaverk
við Vatnsfellsvirkjun. Verkið fékk
Green Leaf Award í sumar sem
eru alþjóðleg umhverfisverðlaun
og stelpunum þykir mjög vænt
um það. Verkið er vídeó og
ljósmyndir. „Það var óskað eftir
að við gerðum nýtt verk fyrir
sýningu í Noregi. Þetta er mynd-
list sem á að vekja athygli á
hlýnun jarðarinnar, gróðurhúsa-
áhrifum og öllu því. Þetta var í
samvinnu við alþjóðlegan
umhverfisdag Sameinuðu þjóð-
anna. Sýningin var opnuð á þess-
um degi og við fengum verðlaunin
afhent,“ segja þær stoltar.
„í verkinu fylgjumst við með
ríkum konum sem ákveða að
stinga af. Þær hafa fengið nóg af
því að sitja einar heima í
einbýlishúsunum sínum meðan
mennirnir fara í bisness-ferðalög.
Þær ná í gítarinn úr unglinga-
herberginu, fara í pelsana og upp
á fjöll til að komast í tengsl við
náttúruna og sjálfar sig og njóta
síðustu köldu daganna áður en allt
bráðnar. Það er algjör lúxus að fá
að vera í kulda,“ útskýra þær í
sameiningu. „Þetta er grafalvar-
legt mál með írónískum undirtóni.
En þessar konur eru alveg rólegar
með þetta. Ef það verður of heitt
þá fara þær bara úr pelsunum.
Þær eru líka örugglega með
einhver flott bikiní í vasanum.
Það er dálítill heimsendatónn í
þessu en samt smá í djóki. Maður
þarf að vera fallegur og töff þó að
heimsendir sé að nálgast.“
Eftir að hafa fengið leiðsögn um
sýninguna og starfsferil Gjörninga-
klúbbsins setjast stelpurnar niður
eitt augnablik áður en þær halda
áfram að setja upp sýninguna.
„Þetta er ótrúlega gott tækifæri
til að pæla í hlutunum og setja þá í
samhengi. Mikið af dótinu hefur
verið ofan í kössum en núna þegar
við tökum þetta upp þá er mjög
sterkur þráður í gegnum verkin.
Strax í fyrsta gjörningnum
myndaðist ákveðinn grundvöllur.
Eitthvað sem okkur hefur öllum
þótt áhugavert að taka lengra. En
enga okkar grunaði að við myndum
ennþá vera að gera þetta eftir
ellefu ár,“ segja þær.
Gjörningaklúbburinn var stofn-
aður þegar þær voru að útskrifast
úr Listaháskólanum en ekkert
plan um glæstan feril lá þá fyrir.
„Nei, alls ekki. En af því að við
hittum á einhvern streng sem
tengdi okkur saman strax í byrjun
þá höfum við haft ástæðu til að
halda áfram. Árin líða og fleiri
sýningar bætast við og fleiri verk
verða til,“ útskýrir Eirún.
En hver skyldi vera þessi sterki
þráður sem má sjá í gegnum
verkin? „Kannski er það leit. Leit
að kærleika eða ástinni, upplif-
unum, sjálfsmynd og trú kannski
líka,“ segir Eirún. „Kannski að
komast að því hvort maður geti
unnið með einhverjum öðrum og
þróað hugmyndir áfram og kastað
þeim á milli. Það er hægt að ná
meiri árangri þannig heldur en að
sitja einn heima og fara í einhverja
hringi. Með því að gefa boltann á
milli þá kemst maður að niður-
stöðum sem eru í rauninni
merkilegri en þær sem maður hefði
komist að einn,“ bætir Sigrún við.
„Þetta snýst líka um að geta
sleppt sér í því að sjá einhverja
hugmynd verða að veruleika sem
þú tengir mjög sterkt við en þú
þarft að deila henni með öðrum.
Það gerir mann sterkari. Og er oft
líka miklu skemmtilegra. Maður
leyfir sér að taka fleiri sénsa,
vera asnalegur, flissa soldið, hafa
gaman og hlæja.“
Gjörningaklúbburinn var í
útrásarhug 1997 eftir að hafa
fengið símtal frá Ósló um að koma
fram þar. Það virkaði ekki að þýða
nafnið beint á ensku en stelpurnar
hafa alltaf predikað mikið ást og
kærleik og þannig varð nafnið
þeirra The Icelandic Love Corp-
oration til á ensku.
„Ástin er ekki bara eitthvað eitt
einfalt og væmið, ástin getur birst
í svo mörgum myndum. Hún getur
verið andstyggileg og hatrömm.
Ástin fer aldrei úr tísku. Fólki
finnst eins og ástin sé eitthvað
léttvægt, eins og rauðu ástar-
sögurnar, en hún stjórnar heim-
inum. Vonandi, meira heldur en
eitthvað annað,“ segja þær hver
ofan í aðra. „Ástin er ekkert grín,“
bæta þær við. Húmorinn aldrei
langt undan.
Gjörningaklúbburinn hefur
starfað meira erlendis síðasta
áratuginn þótt þær reyni að halda
eina sýningu á ári á Íslandi. Meiri
hlutann af árinu eru þær erlendis
þó það sé ekki ákvörðun, Ísland er
einfaldlega svo lítið. „Stundum
förum við út og erum trítaðar eins
og algjörar stjörnur og erum á
lúxushótelum en stundum erum
við bara á einhverjum skáta-
heimilum. Það fer alveg eftir því
hver er að bjóða og hvað er að
gerast,“ segja þær um mót-
tökurnar.
„Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að
hafa fengið Green Leaf verðlaunin,“
segir Jóní. „Það var líka rosalega
gaman að fá þetta tækifæri fyrir
plötuna hennar Bjarkar,“ segir Eirún
en Gjörningaklúbburinn bjó til
búninga og skúlptúra fyrir nýju
plötuna hennar. Þetta tvennt er líka
eitthvað sem er glænýtt og gefur
vonir um að Gjörningaklúbburinn
muni starfa ótrauður áfram. „En svo
eru líka svo skemmtileg móment
þegar við erum að fara inn á
verkstæði og hitta alls konar fólk og
biðja það um að gera fáránlegustu
hluti fyrir okkur og fólk er alveg
frábært hvað það tekur vel í alls
konar skrítna hluti,“ segja þær.
En hvernig skyldi almenningur á
Íslandi hafa tekið þeim? „Mjög
vel,“ segja þær allar í kór. „Bæði
börn og fullorðnir. Almenningur
hefur tekið okkur opnum örmum.
En sumir fræðimenn hafa þóst
vera eitthvað merkilegir með sig
og hafa ekki getað tekið þátt. Við
erum alls ekki eitthvað léttvægt
dót. Við finnum einmitt fyrir því
hvað það er fullorðins að vera með
svona yfirlitssýningu,“ benda þær
á.
„En af því að við erum þrjár er
útkoman sem kemur frá okkur
þremur kannski almennari,“ segir
Eirún. „Það má heldur ekki gleyma
að gefa almenningi kredit.
Almenningur er ekkert vitlaus,“
segir Jóní. „Nei, og mjög áhuga-
samur um myndlist,“ segir Eirún
með áherslu. Og svo hlæja þær
allar.
Auglýsing vegna aukningar stofnfjár
Ákveðið hefur verið að auka stofnfé um kr. 2.971.234.536 með útboði þar sem
stofnfjáreigendum verður boðið að skrá sig fyrir nýju stofnfé sbr. samþykktir
sparisjóðsins þar að lútandi. Heildarnafnverð nýs stofnfjár í útboðinu er
kr. 1.565.854.263 og er verð hvers stofnfjárhlutar kr. 1,89751665. Útboðið sem
nú fer í hönd er forsenda þess að hægt sé að ná skiptihlutföllum sem gert er ráð
fyrir í fyrirhuguðum samruna við Sparisjóð Kópavogs, en samrunaáætlun var
undirrituð af stjórnum sjóðanna 27. júní síðastliðinn.
Í dag hafa allir stofnfjárhlutir í BYR - sparisjóði verið skráðir rafrænt hjá
Verðbréfaskráningu Íslands. Svo mun einnig verða um nýtt stofnfé sem gefið
verður út í tengslum við aukningu þessa.
Útboðslýsingu vegna stofnfjáraukningarinnar er að finna á heimasíðu
BYRS - sparisjóðs www.byr.is. Jafnframt má nálgast lýsinguna í útibúum
BYRS - sparisjóðs. Þjónustuver veitir upplýsingar um útboðið í síma 575 4000.
Áskriftartímabil stendur yfir frá og með 3. september, til og með
17. september næstkomandi. Eindagi áskrifta er 24. september 2007.
Reykjavík, 31. ágúst 2007