Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 64

Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 64
Á ri eftir að Berlínar- múrinn féll árið 1989 sameinuðust Austur- og Vestur-Þýskaland á ný eftir að hafa verið hvort sitt ríkið frá því skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldar. Í austurhlutanum var hugmyndafræði kommúnism- ans við lýði og lífið þar talsvert frá- brugðið lífinu í vesturhlutanum. Við fall múrsins gjörbreyttist þetta. Austur-Þjóðverjum varð frjálst að ferðast til vesturhlutans og um leið streymdu í hina áttina vestræn áhrif og vörur sem ekki höfðu þekkst þar áður. Umbreytingin á samfélaginu var gífurlega hröð. Þjóðverjar minnast enn þess harðræðis sem borgarar Austur- Þýskalands máttu sæta af hendi stjórnvalda í formi einangrunar, njósna og jafnvel morða. En sumir líta þó til baka með söknuði. Fólk virðist í auknum mæli sækjast eftir því að rifja upp tímann frá því áður en múrinn féll og er til sérstakt hugtak yfir slíka fortíðar- þrá: ostalgía eða Ostalgie á þýsku. Orðið er samsuða úr þýsku orðun- um Ost (ísl. austur) og Nostalgie (ísl. nostalgía eða fortíðarþrá). Hugtakið er umdeilt meðal Þjóð- verja, sem sumir telja það snúast um að hefja upp tímabil í þýskri sögu sem beri að gleyma. Engu að síður er víða hægt að svala þessari fortíðarþrá í Berlín í dag. Fólk sem vill fá að upplifa hvernig andrúmsloftið var í Austur-Þýska- landi og kynnast því hvernig dag- legt líf fólks var er markhópur DDR-safnsins í Berlín. Frá því að safnið var opnað fyrir ári síðan hafa 180.000 gestir lagt leið sína þangað. Þriðjungur safngesta er erlendir ferðamenn, þriðjungur fólk frá fyrrum V-Þýskalandi og þriðjungur frá fyrrum A-Þýskalandi. Melanie Alperstaedt, fjölmiðla- fulltrúi safnsins, segir misjafnt hvernig síðasttaldi hópurinn upp- lifir safnið. „Sumir segja okkur draga upp of neikvæða mynd af líf- inu í Austur-Þýskalandi og það hafi verið mun betra í raun. Aðrir segja að við sýnum þennan tíma í of jákvæðu ljósi og ekki nógu vel hversu slæmt ástandið hafi verið í raun. Við reynum að ná jafnvægi þarna á milli. Það voru yfir sextán milljónir manns sem bjuggu í Austur-Þýskalandi og það er ekki hægt að gera öllum til geðs. “ Í afviknu horni á safninu gefur að finna Stasi-hornið, en þar getur fólk sest við lítið skrifborð, sett á sig heyrnartól og hlustað á tal safngesta sem staddir eru inni í dæmigerðri setustofu á austurþýsku heimili hinum megin í safn- inu. „Þarna gefst fólki kostur á að fá tilfinn- inguna fyrir því hvern- ig það var að njósna. Að gera eitthvað sem er forboðið en samt rekur forvitnin þig áfram. Og fólkið sem er í setustofunni getur sömuleiðis upplifað hvernig það var að láta njósna um sig. Þessa tilfinningu er mjög erfitt að fram- kalla en þetta er mjög mikilvægt atriði hjá okkur. Við sýnum hvernig fólk þurfti að sæta því að njósnað var um það og hvernig fólk var skotið til bana bara fyrir það að vilja yfirgefa landið. Þess vegna tel ég að slík gagnrýni sé ekki sanngjörn.“ Alperstaedt segir að fyrir sér sé Ostalgie neikvætt orð þar sem það merki að fólk sjái tímann í Austur- Þýskalandi á jákvæðan hátt. „Þetta var einræði og það er nokkuð sem enginn Þjóðverji mun gleyma. Við lærum í skóla um öll grimmdar- verkin sem þar fóru fram. Því held ég ekki að flestir Þjóðverjar hugsi um Austur-Þýskaland á jákvæðan hátt.“ Alperstaedt, sem sjálf ólst upp í Vestur-Berlín, segist hins vegar hafa rætt við marga sem segi reynslu sína af Austur-Þýskalandi góða, þar sem þeir hafi átt ham- ingjusama æsku og að ekki hafi verði njósnað um þá. „Það má í rauninni segja að fólkið sem bjó í Austur-Þýskalandi hafi við sam- eininguna glatað menningu sinni. Þegar múrinn féll var lífið í vestur- hlutanum almennt álitið betra en í austurhlutanum. Fólki var sagt að henda frá sér því sem það hafði haft og þekkt og fá frekar vörur frá vesturhlutanum. Ég held að þessi tilfinning hafi verið erfið.“ Eitt af einkennum Austur-Þýska- lands var stórar steinsteypublokkir sem stjórnvöld létu reisa til að hýsa þegnana. Blokkirnar, sem þykja fremur kuldalegar og óvist- legar, voru byggðar upp af stein- steyptum einingum og kallast „Plattenbau“. Þetta íbúðarform varð nánast allsráðandi í nýbygg- ingum upp úr 1960 í Austur-Þýska- landi. Þó að blokkirnar megi víða finna enn í dag fer þeim stöðugt fækk- andi þar sem þær teljast ekki eftir- sóknarverðar til íbúðar. Engu að síður virðast margir vilja eyða nótt í Plattenbau miðað við gífurlega eftirspurn eftir gistingu á farfugla- heimilinu Ostel sem er rekið í Plattenbau í austurhluta Berlínar. Að ganga inn í móttöku Ostel er eins og að hverfa aftur í tímann um þrjátíu ár. Uppi á vegg hangir stórt málverk af Erich Honecker, leiðtoga Austur-Þýskalands frá 1971 til 1989. Í einu horninu er kveikt á sjónvarpi sem sýnir myndir frá heimsókn Honeckers til Fidels Castro, leiðtoga Kúbu, árið 1980. Í öðru horni eru fornar tónlistar- græjur sem spila helstu smellina frá árum áður í Austur- Þýskalandi. Á veggn- um fyrir aftan mót- tökuborðið hanga klukkur sem sýna tím- ann í Moskvu, Berlín, Havana og Peking. Farfuglaheimilið hefur verið fullbókað allt frá því það var opnað þann 1. maí, að sögn Lily Lehmann í móttökunni. Helm- ingur gestanna er Þjóðverjar og helmingur erlendir ferðamenn. Þjóðverjarnir skiptast síðan aftur til helminga eftir því hvort þeir koma frá austurhlutan- um eða vesturhlutanum. „Fólk frá A-Þýskalandi kemur hingað til að rifja upp gamla tíma. Einnig vilja sumir kanna hvort við höfum gert þetta rétt. Og gestir frá vesturhlut- anum vissu margir ekki hvernig fólk bjó í austurhlutanum og vilja kynnast því.“ Ostel tengist tvímælalaust hugtak- inu Ostalgie að sögn Lily, sem bætir við að það snúist þó að miklu leyti um kaldhæðni og að hafa húmor fyrir tímabilinu. Spurð hvort gisti- heimilið hafi fengið á sig einhverja gagnrýni segir Lily að einungis eitt slíkt bréf hafi borist. „Það var maður sem vildi bara koma reiði sinni á framfæri. Hann spurði hvernig við gætum sett myndir af þessum glæpamönnum upp á vegg hjá okkur og átti þar við myndirnar af stjórnmálamönnunum. Hann spurði okkur einnig hvernig við gætum nefnt herbergi hjá okkur Stasi-svítuna.“ Lily segir að það sé alls ekki stefna forráðamanna Ostel að hylla þessa stjórnmálamenn og pólitískt ástand þessa tímabils heldur vilji þau einfaldlega sýna hvernig fólk bjó og að þau vonist til að gestir hafi húmor fyrir því. Lily segir að þau grínist stundum með það við gestina að jafnvel hler- anir eigi sér stað á Ostel en að þar sé þó alls ekki um eiginlegar hler- anir að ræða heldur vísun í næfur- þunna veggi sem skilja að íbúðir í Plattenbau. „Þeir eru svo þunnir að þú heyrir ef einhver dregur fyrir gluggatjöldin í næstu íbúð en þetta er allt hluti af þessari bygginga- menningu.“ Plattenbau-byggingarnar eru smám saman að víkja fyrir nýrri byggingum en enn eru heilu hverfin undirlögð af þeim. Sumar blokk- irnar standa auðar þar sem fólk fæst ekki til að búa í þeim. „Þetta eru bara box. Og ef fólk hefur kost á því að komast í betri íbúð þá gerir fólk það að sjálfsögðu.“ Sautján ár eru frá því að Þýskaland sameinaðist á ný en fordómar eru enn í gangi að sögn Lily, sem ólst upp í austurhlutanum. „Ég hef mjög slæma reynslu af Þjóðverj- um frá vesturhlutanum gagnvart mínum uppruna. Ég hef til dæmis lent í því að fólk segir við mig: „Kannski gerið þið hlutina svona þaðan sem þú ert en hér gerum við hlutina öðruvísi“.“ Lily segist sjá eftir tímanum fyrir fall múrsins. „Ég var ham- ingjusamari sem barn í Austur- Þýskalandi heldur en börnin eru í dag. Þegar ég var að alast upp sner- ist allt kerfið um hugmyndina um samfélag. Það var hugsað um alla og enginn var einn. Og ef þú lítur á samfélagið í dag þá virðast margir vera týndir og einmana.“ Aðspurð segist hún hafa verið sjö ára þegar múrinn féll og bætir við að hún sé oft spurð þessarar spurningar. „Og ég svara alltaf að þó ég hafi ekki þekkt mikið til slæmu hliða kerfis- ins eins og það var þá get ég sagt þér hvers ég sakna og hvað er ekki til staðar lengur. Ég myndi segja að meginhugmyndin í Austur-Þýska- landi hafi ekki verið slæm heldur hafi það verið framkvæmdin sem mistókst.“ Umdeild austur-þýsk fortíðarþrá Átján ár eru liðin frá því að Berlínarmúrinn féll og einangrun Austur-Þýskalands var rofin. Sigríður Dögg Guðmundsdóttir fjallar um „Ostalgie“ eða fortíðarþrá eftir lífinu í hinu horfna Þýska alþýðulýðveldi. Þarna gefst fólki kostur á að fá tilfinn- inguna fyrir því hvernig það var að njósna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.