Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 68

Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 68
H öfnin í Keflavík. Fyrsti tökudagur. Hópur ungl- inga hefur safnast saman við sjoppu með djús í bjór- flöskum og læti. Fljótlega beinist athyglin að aðal- persónunum fjórum, leiknum af Heru Hilmarsdóttur, Atla Óskari Fjalarssyni, Sigurði Jakobi Helgasyni og Þórunni Jak- obsdóttur. Leikstjóri er Rúnar Rúnarsson og samnemendur hans í Danska kvik- myndaskólanum eru í tökuliðinu ásamt Íslendingum. Rúnar vakti töluverða athygli í fyrra þegar hann var tilnefndur til Ósk- arsverðlauna fyrir stuttmyndina Síðasti bærinn. Þá var hann nýbyrjaður í kvikmyndanáminu. Þessi mynd sem ber heitið 2 Birds er næsta stóra verkefnið hans á eftir Síðasta bænum. Strákarnir hrósa Atla fyrir góðan leik eftir að fyrstu senurnar hafa verið festar á filmu. Atli leikur Óla sem er skotinn í Láru sem er leikin af Heru. „Þarna eiga sér stað ákveðnir atburðir sem ég tel að verði innlegg í samfélagsum- ræðuna,“ útskýrir Rúnar. „Þetta er falleg saga tveggja einstaklinga sem á erindi til fólks. Þetta er vaxtarsaga Óla, saga af því þegar strákur verður að manni.“ Rúnar er hálfnaður með kvikmyndanám- ið en ákvað að koma heim og gera þessa mynd fyrir utan skóla en myndin er fram- leidd af Zik Zak. „Ég var einu sinni unglingur og langaði að gera mynd um unglinga. Ég hef gert margar myndir um gamalt fólk og langaði núna að gera mynd um yngra fólk. Það skiptir reyndar ekki máli hvort persónurn- ar eru ungar eða gamlar, þetta eru alltaf sömu sögurnar á einn eða annan hátt. Per- sónur sem heilla mig eru gjarnan staddar á einhvers konar vendipunkti í lífinu vegna ytri aðstæðna sem þær geta ekki stjórnað. Þarna upplifum við sakleysi æskunnar með súrsætu eftirbragði,“ segir Rúnar án þess að vilja gefa upp atburðarásina í mynd- inni. Í myndinni villast unglingarnir inn í fullorð- inspartí þar sem nokkrir vafasamir ein- staklingar eru samankomnir. „Þetta er raun- sæ mynd. Svona partí eru að gerast í hverri viku. Yfirleitt væri krökkum hent öfugum út en þetta er samt veruleiki sem á sér stað. Og unglingar drekka bjór og reykja. Það er ákveðin samfélagsspeglun sem á sér stað í myndinni. Þó að sagan sé falleg ástarsaga, þá eru skúmaskot alls staðar í samfélaginu sem koma þarna í ljós.“ Þó að unglingar fari með aðalhlutverkin í myndinni þá er þetta engin unglingamynd og verður líklega bönn- uð innan 16 ára. Leikararnir eru allir óreyndir og hafa í mesta lagi tekið þátt í skólaleikritum. Hera hefur nokkuð meiri reynslu með Leikfélagi Menntaskólans í Hamrahlíð og Atli hefur fyrir utan skólaleikrit fengist við að tal- setja teiknimyndir. „Ég gengst upp í lágstemmdum leikstíl og legg mikið á mig til að finna réttu leikar- ana,“ segir Rúnar. „Það var rosalega mikil vinna að finna rétta fólkið. Við héldum áheyrnarpróf allt sumarið og um 100 ungl- ingar mættu í prufur.“ Atvinnuleikurum bregður fyrir í mynd- inni í smærri hlutverkum, Gísli Örn Garðarson og Víkingur Kristjánsson úr Vesturporti leika til dæmis partígesti. „Þau fjögur sem við völdum í aðalhlut- verkin stóðu sig rosalega vel, frammistaða þeirra fór fram úr björtustu vonum. Þau eru ekki skóluð þannig að þau leika frá hjartanu, það sem kemur frá þeim grípur mann 100%. Það gekk mjög vel að láta óvana leikara leika á móti vönum enda mikið hæfileikafólk þar á ferð,“ segir Rúnar ánægður með afraksturinn og hlakk- ar til að byrja að klippa. Tökur fóru fram á varnarsvæðinu í Kefla- vík sem hefur staðið autt síðan herinn fór af landi og lánaði Kadeco: Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar heila blokk fyrir tök- urnar. Það var því lítið mál að breyta einni af tómu íbúðunum í subbulegt partípleis. „Þetta er mjög skrítinn staður. Maður er vanur í upptökum að vera í vandræðum með að leggja bílum og þurfa að stoppa umferð eða biðja fólk í næstu húsum að lækka í græjunum. Þarna höfðum við heilt þorp út af fyrir okkur. Þróunarfélagið á stórar þakkir skildar fyrir að styðja svona vel við bakið á okkur,“ leggur Rúnar áherslu á. Við tökur á stuttmynd skiptir hver mín- úta máli og lítið má útaf bregða. „Það er mikið í húfi þegar verið er að taka stutt- mynd. Ef eitthvað fer úrskeiðis þá er ramm- inn miklu knappari. Það eru alltaf einhverj- ar brekkur þegar svona tökur eiga sér stað en allir lögðust á eitt við að leysa málin. Það er rosalega góð tilfinning þegar tökuliðið er að gera meira en mæta bara í vinnuna. Það var til dæmis erfitt að fá fólk í fjöldatökur um verslunarmannahelgi þannig að hluti af tökuliðinu skellti sér í þungarokksboli og meiköpp og endaði fyrir framan myndavél- ina. Eitthvað sem gerist eiginlega aldrei.“ Myndin verður ekki sýnd fyrr en á næsta ári. Það er reyndar nóg að gera hjá Rúnari í skólanum en þetta er stærsta verkefnið hans síðan Síðasti bærinn. Ætli það sé aukin pressa eftir óskarstilnefningu? „Nei, ég hef alltaf verið svo mikill bölv- aður egóisti að það er eiginlega ekki á það bætandi. Ég hef bara verið að bíða eftir því að aðrir átti sig á því hvað ég er mikill snill- ingur. Ég hef reyndar metnað fyrir hverju einasta verkefni sem ég tek mér fyrir hendur sama hversu lítið eða stórt það er. Þannig að ég er búinn að leggja sál mína nokkrum sinnum að veði síðan Síðasta bæinn. Það er gott að vera í þessu skólaum- hverfi. Ég get prufað hitt og þetta sem ég hefði ekki tækifæri til annars. Það er gerj- un og gredda í gangi í skólanum og talað um bíó frá því að maður mætir á morgnana og fær sér fyrsta kaffibollann og sígarett- una og þangað til maður fær sér síðasta bollann og rettuna og hjólar heim.“ Tveir fuglar Rúnars Brjálað partí, dóp, blákaldur raunveruleiki, skúmaskot samfélagsins og falleg ástarsaga tveggja unglinga. Hanna Björk Valsdóttir fylgdist með tökum á nýjustu mynd Rúnars Rúnarssonar á beisinu í Keflavík. Persónur sem heilla mig eru gjarnan staddar á einhvers konar vendi- punkti í lífinu vegna ytri aðstæðna sem þær geta ekki stjórnað. Þarna upplifum við sakleysi æskunnar með súrsætu eftirbragði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.