Fréttablaðið - 06.09.2007, Side 18
fréttir og fróðleikur
Byggingararfleifð þjóðarinnar varðveitt
Íslenskur orkuiðnaður
hefur verið pólitískt deilu-
efni um nokkurt skeið og
ekki sér fyrir endann á því
enn. Deilt er um hvernig
eigi að gera orkufyrirtækj-
um kleift að nýta tækifæri
á erlendum vettvangi en
tryggja um leið heitt og kalt
vatn á góðum kjörum. Mál-
efni Orkuveitu Reykjavíkur
eru lýsandi fyrir þetta.
„Ef einn segir nei stoppast allt.
Þannig ganga hlutirnir fyrir sig í
sameignarrekstrarforminu,“ sagði
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur, við blaða-
mann á dögunum. Stjórnendur fyr-
irtækisins hafa um nokkurra ára
skeið haft þá skoðun að sameignar-
formið henti ekki fyrirtæki eins og
Orkuveitunni og hamli framgangi
þess, sem þó hefur verið mikill á
undanförnum árum. Stjórnin vill
breyta fyrirtækinu í hlutafélag,
meðal annars til þess að stytta
verkferla og auðvelda stjórn fyrir-
tækisins.
Eigendur sameignarfyrirtækis
hafa neitunarvald um allar aðgerð-
ar þess. Þannig er málum háttað nú
en stjórnendur Orkuveitunnar telja
hlutafélagaformið betra, þar sem
neitunarvaldið er ekki fyrir hendi.
Fulltrúar minnihlutans í borgar-
stjórn hafa tekið þessum hugmynd-
um um rekstrarformsbreytingar
illa. „Sporin hræða,“ sagði Svandís
Svavarsdóttir, borgarfulltrúi
Vinstri grænna og stjórnarmaður í
Orkuveitunni, og vitnaði til þess að
hlutafélagavæðing væri „undanfari
einkavæðingar“. Því hafa fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins og Framsókn-
arflokksins alfarið neitað og raunar
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráð-
herra einnig.
Eigendur Orkuveitunnar; Reykja-
víkurborg, Akranesbær, Borgar-
byggð og Borgarfjarðasveit, hafa
nú málið á sínu forræði. Þar mæðir
mest á langstærsta eigandanum,
Reykjavíkurborg, sem á um 93,5
prósenta hlut. Akranesbær á um 5,5
prósenta hlut en hin sveitarfélögin
tvö eiga smáa hluti.
Umræða um rekstrarforms-
breytingar á opinberum fyrirtækj-
um hefur oftar en ekki farið fram á
pólitísku skjálftasvæði þar sem
varðstaðan um sameiginlegan
rekstur grunnstoða samfélags-
rekstrarins er miðpunkturinn.
Árum saman hafa stjórnendur
Orkuveitunnar haft þá skoðun að
hlutafélagaformið henti fyrirtæk-
inu betur til rekstrarins en sam-
eignarformið. Þar hafa langir verk-
ferlar ráðið miklu auk fleiri þátta. Í
rökstuðningi Guðmundar Þórodds-
sonar og Hjörleifs B. Kvaran
aðstoðarforstjóra fyrir tillögunni
um rekstrarformsbreytingu vó
ábyrgð eigenda þungt. Eftirlits-
stofnun EFTA, ESA, hefur nú til
skoðunar hvort ábyrgðir eigenda
sameignarfyrirtækis skekki sam-
keppnisstöðu gagnvart hlutafélög-
um sem ekki njóta sambærilegra
ábyrgða. Í sameignarforminu
ábyrgjast eigendur allar skuldbind-
ingar félagsins en í hlutafélaga-
forminu ábyrgjast eigendur ein-
ungis skuldbindingar með
framlögum, hlutafé og öðrum eign-
um fyrirtækisins.
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í borgarstjórn
og stjórnarmaður í Orkuveitu
Reykjavíkur, gagnrýndi ónægan
undirbúning tillögu stjórnarinnar
til eigenda sinna. Hann nefndi sér-
staklega að lögfræðileg athugun á
því hvernig hugsanlegar aðfinnslur
ESA myndu snerta fyrirtækið hefði
ekki farið fram og því væri málið
að stórum hluta „algjörlega óundir-
búið“. Þessu hafa aðrir stjórnar-
menn mótmælt og bent á máli sínu
til stuðnings að hugmyndin sé
margra ára gömul og fullrædd á
mörgum stigum.
Fyrrverandi meirihluti R-listans
í borgarstjórn Reykjavíkur hafði
það til umræðu að breyta Orkuveit-
unni í hlutafélag en full samstaða
meðal Samfylkingarinnar, Fram-
sóknarflokksins og Vinstri grænna,
sem mynduðu R-listann, náðist
aldrei.
Lögum um Orkuveituna var
breytt í sameignarfyrirtæki árið
2001 og á þeim lagagrunni hefur
fyrirtækið starfað síðan. Vilji hefur
verið til þess hjá forsvarsmönnum
Orkuveitunnar að breyta félaginu í
hlutafélag frá þessum tíma.
Orkuveitan er að grunni til fyrir-
tæki í almannaþjónustu sem útveg-
ar fólki heitt og kalt vatn á góðum
kjörum en vöxtur fyrirtækisins,
sem hefur verið ævintýri líkastur,
hefur helst verið á sviði raforku-
sölu til stóriðju. Fulltrúar allra
flokka í borgarstjórn, með Vilhjálm
Þ. Vilhjálmsson í broddi fylkingar,
vilja að almannaþjónustan verði
áfram í félagslegri eigu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Guðmundi Þóroddssyni eru mörg
verkefni í bígerð erlendis sem
Reykjavík Energy Investment,
félag sem stofnað var í kringum
verkefni Orkuveitunnar á erlendri
grundu, hefur umsjón með. Það eru
verkefni sem snúa að uppsetningu
jarðvarmavirkjana og sölu á raf-
magni sem þær búa til. Gríðarleg
eftirspurn er eftir sérþekkingu
sem hér hefur orðið til á sviði nýt-
ingu jarðhita. „Það er langt frá því
að vera til nægilega mikil orka til
þess að anna eftirspurn eftir öllum
sem vilja koma hingað með starf-
semi,“ segir Guðmundur. Hann
hefur á undanförnum mánuðum
fundað með fulltrúum margra fyr-
irtækja sem hafa sýnt áhuga á því
að koma hingað. Í gær átti hann
fund með fulltrúum bandaríska
framleiðslufyrirtækisins Washing-
ton Mills en þeir eru að kanna
möguleika á því að setja hér upp
starfsemi.
Samkvæmt heimildarmönnum
Fréttablaðsins í íslenskum orkuiðn-
aði virðist lítill áhugi á því að einka-
væða fyrirtæki sem annast
almannaþjónustu, það er að útvega
heitt og kalt vatn á góðum kjörum.
Íslensk orkufyrirtæki hafa að und-
anförnu átt í viðræðum við iðnaðar-
ráðuneytið um hvernig mögulegt
sé að nýta dýrmæta íslenska sér-
þekkingu á sviði orkuöflunar
erlendis, án þess að of mikill pólit-
ískur skjálfti hljótist af.
Orkumál á pólitísku skjálftasvæði
Ógnarrisi