Fréttablaðið - 06.09.2007, Qupperneq 22
hagur heimilanna
Íbúðin í Hafnarfirði bestu kaupin
„Ég hef komist
að því að besta
leiðin til að halda
sæmilega hreinu í
kringum sig er að
vaska alltaf strax
upp,“ segir Þóra
Sigurðardóttir
rithöfundur þegar
hún er beðin um
góð húsráð.
Álagning olíufélagana á
bensíni og dísilolíu virðist
fara hækkandi, segir fram-
kvæmdastjóri FÍB. Félagið
reiknar út kostnaðarverð
á heimsmarkaði á hverjum
tíma, og virðist ekki alltaf
samband á milli sveiflna á
kostnaðarverði og verði til
íslenskra neytenda.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) hefur fylgst vel með sveifl-
um á bensín- og dísilolíuverði hér
á landi um nokkurt skeið. Runólf-
ur Ólafsson, framkvæmdastjóri
félagsins, segir að gróft reiknað
megi segja að fyrir hverja krónu
sem bílaeldsneyti hækki aukist
kostnaður íslenskra ökumanna um
eina milljón króna á dag.
„Oftar en ekki virðist verðið
breytast á sama tíma hjá öllum
[olíufélögunum] um sömu krónur
og sömu aura. Það virðist stundum
vera þannig að aðhald markaðar-
ins sé ekki nægilegt, það sé ákveð-
in hjarðhegðun í gangi,“ segir
Runólfur.
„Samt virðast vera teikn um það
að sá minnsti á markaðinum [Atl-
antsolía] sé eitthvað að reyna að
hegða sér sjálfstætt. En maður
hefur séð það einhvern tímann
þegar Atlantsolía er sein að lækka
að þá er eins og aðrir vilji slá til
baka, kenna þeim ákveðna siði, að
svona geri menn ekki,“ segir Run-
ólfur.
Hlutur olíufélagana af verði
bensíns með virðisaukaskatti er í
dag rúmlega 29 krónur, en var í
apríl í kringum 20 krónur, segir
Runólfur. Í byrjun árs var hlutur
olíufélagana um 27 krónur. Álagn-
ingin virðist hafa hækkað meira á
dísilolíu, þar var hlutur olíufélag-
ana í byrjun árs um 24 krónur,
svipað í apríl, en er nú rúmlega 28
krónur.
Runólfur segir eldsneytisverð
hér á landi ekki fylgja kostnaðar-
verði, þar sem tekið er tillit til
bæði heimsmarkaðsverðs og geng-
isþróunar.
Krónu hækkun kostar
neytendur milljón á dag