Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 26
[Hlutabréf] Peningaskápurinn ...
Fjárfestingarfélagið
Berkshire Hathaway,
sem ofurfjárfestirinn
Warren Buffet fer fyrir,
hefur óskað eftir því að
auka hlut sinn í lesta-
flutningafélaginu Bur-
lington Northern Santa
Fe. Gæti hluturinn farið
úr fimmtán prósentum í
fjórðungshlut. Burling-
ton Northern er hið
annað stærsta á sínu
sviði í Bandaríkjunum.
Hinn aldni auðjöfur Buffet hefur
reynst naskur í gegnum tíðina að
finna undirverðlögð fyrirtæki.
Tekjur Burlington Norhtern hafa
aukist jafnt og þétt frá byrjun árs
2003 á kostnað flutningabíla, sem
hafa þurft að berjast við hækkandi
eldsneytisverð og sívaxandi
umferðartafir á bandarískum þjóð-
vegum. Telja sérfræðing-
ar að Buffet sjái fram á
enn frekari tekjuvöxt í
geiranum þar sem
afkastagetan er enn þó
nokkur.
Vísitala S&P 500 fyrir
lestaflutningafyrirtæki
hefur hækkað um fimmt-
án prósent á árinu. Til
samanburðar hefur
trukkavísitala S&P hækk-
að um 7,7 prósent.
Samkvæmt bandarísk-
um lögum fær Berkshire eitt ár til
að koma hlut sínum í 25 prósent að
sögn Bloomberg. Berkshire hefur
einnig fjárfest í Union Pacific og
Norfolk Southern, tveimur af
helstu samkeppnisaðilum Burling-
ton Northern. Einn hlutur í Berks-
hire kostar nú rúmar 7,7 milljónir
króna.
Fjárfestir í vörulestum
Viðskiptahalli á öðrum ársfjórðungi
nam 51 milljarði íslenskra króna,
samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Seðlabanka Íslands. Hallinn jókst
um rúmlega tut-
tugu og tvo millj-
arða króna frá
fyrsta árshelm-
ingi.
Fram kemur í
Morgunkornum
Glitnis að aukn-
inguna milli fjórð-
unga megi nær
alfarið rekja til meiri halla á vöru-
skiptum við útlönd, einkum vegna
mikils innflutnings á neysluvörum
á öðrum ársfjórðungi. Halli á vöru-
skiptum við útlönd nam 31,5 millj-
örðum króna á öðrum ársfjórðungi.
Viðskiptahalli á fyrri helmingi
árs er því 79,6 milljarðar króna
samanborið við rúmlega 127 millj-
arða á sama tímabili í fyrra.
Hallinn 51
milljarður
Stjórnendur Alfesca stefna að því
að ljúka kaupum á breska fyrir-
tækinu Oscar Mayer fyrir áramót.
Þetta kom fram á kynningarfundi
ársuppgjörs Alfesca. Viðræður
um kaupin standa nú yfir og áreið-
anleikakönnun er nýhafin.
Xavier Govare, forstjóri Alfes-
ca, sagði á fundinum að Oscar
Mayer yrði mikill fengur fyrir
Alfesca.
Oscar Mayer framleiðir og selur
tilbúna rétti undir vörumerkjum
annarra og sér meðal annars
Sainsbury‘s og Morrisons-versl-
unarkeðjunum fyrir vörum. Með
kaupunum á félaginu yrði fimmta
stoðin reist undir starfsemi Alfes-
ca með tilbúnum réttum. Aðalstoð-
irnar hafa hingað til verið fjórar:
reyktur lax og aðrar fiskafurðir,
andalifur og andakjöt, blini og
smjörvörur, og rækjur og annar
skelfiskur.
Sala félagsins á árinu sem lauk í
mars 2007 nam 124 milljónum
punda. Það eru rúmir sextán millj-
arðar króna.
Undirbúa kaup á
fimmtu stoðinni
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
Ú
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
L
ÚTSA
ÚTSA
LA
ÚT
ÚTSA
LA
Ú
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
L
ÚTSA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ALA ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
TSAL
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
LA
ÚTSA
LA
ALA
TSAL
A
ÚTSA
LA
ÚT
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
78
LPARNIR
Íslensku
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • Sími 534 2727 • e-mail: alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is
T LÚ
Glitnir hefur keypt tæplega fjöru-
tíu prósenta hlut í Tryggingamið-
stöðinni (TM) af félögum Guð-
bjargar M. Matthíasdóttur og
hjónanna Sigríðar E. Zoëga og
Geirs G. Zoëga auk tengdra aðila.
Kaupverð nemur tuttugu milljörð-
um króna. Greitt verður fyrir sex-
tíu prósent af verðinu, tólf millj-
arða króna, með reiðufé en
afganginn með hlutum í Glitni.
Seljendur hafa skuldbundið sig til
að halda níutíu prósentum af bréf-
um í bankanum í eitt ár hið
minnsta.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son, stjórnarformaður TM, segir
viðskiptin marka nýtt upphaf í
sögu félagsins og hafi báðir aðilar
staðið glaðir upp frá samninga-
borðinu. Guðbjörg, sem er jafn-
framt stærsti hluthafi Ísfélags
Vestmannaeyja, og fjölskylda
hennar hafi lengi verið meðal
stærstu hluthafa TM. „Þetta er
stór ákvörðun hjá fjölskyldunni
eftir að hafa fylgt félaginu alla tíð
og verið kjölfestufjárfestir síð-
ustu ár,“ segir hann og bætir við
að margir hafi borið víurnar í
hlutabréf TM í gegnum tíðina en
án árangurs.
Athygli vekur að Glitnir greiðir
46,50 krónur fyrir hvern hlut í
TM, sem er talsvert yfir meðal-
gengi félagsins. Til samanburðar
greiddi Kjarrhólmi um 38 krónur
fyrir hlut sinn í apríl þegar félagið
kom inn í hluthafahópinn. Gunn-
laugur segir verðið skiljanlegt
enda hafi lítil hreyfing verið á
bréfum félagsins. „Verðið er gott,“
segir hann.
Glitnir hyggst selja ýmist alla
hlutina áfram eða stærstan hluta
hans til fjárfesta og eru viðræður
þegar hafnar. Endanleg mynd mun
ekki komin á hópinn en mun skýr-
ast eftir nokkrar vikur. FL Group,
stærsti hluthafinn í Kjarrhólma
ásamt Sundi ehf., og tengdir fjár-
festar koma sterklega til greina,
samkvæmt heimildum Markaðar-
ins. Eignahlutur FL Group og
Kjarrhólma er hins vegar við
fjörutíu prósenta yfirtökumörkin
og óvíst hvað gerist í framhaldinu.
Víst þykir hins vegar að hræring-
ar verði í stjórn tryggingafélags-
ins auk þess sem vangaveltur eru
uppi um að Óskar Magnússon, for-
stjóri TM, láti af störfum.
Tryggingahluti TM hefur verið
óviðunandi upp á síðkastið og óvíst
hvort hann laði fjárfesta að félag-
inu þótt hækkun iðgjalda og end-
urskipulagning geti bætt úr skák.
Karl K. Másson, sérfræðingur hjá
greiningardeild Landsbankans,
telur fjárfestana fyrst og fremst
horfa á sterka eiginfjárstöðu TM
og vátryggingaskuldar félagsins,
sjóðs sem safnast af iðgjöldum
fyrir ófyrirséð óhöppum. „Á
meðan ekki þarf að greiða trygg-
ingatökum skuldina getur trygg-
ingafélagið ávaxtað sjóðinn,“ segir
Karl.
Eyjamenn
selja í TM
Glitnir er stærsti hluthafi Tryggingamiðstöðvarinn-
ar eftir milljarðaviðskipti með bréf í félaginu í gær.