Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 34
Helga Sæunn Árnadóttir,
nagla- og förðunarfræðingur,
keypti snyrtivöruverslunina
Andorra í Hafnarfirði í sumar
og gjörbreytti öllu baka til í
búðinni á tveimur vikum.
„Ég fékk búðina afhenta 1. júlí
og þá tóku við tveggja vikna
breytingar og við gerðum allt
fokhelt baka til, baðherbergið,
naglastúdíóið og kaffistofuna,“
segir Helga Sæunn, sem leyfði
þó versluninni sjálfri að halda
sér að mestu. „Ég létti reyndar
rosalega á henni þannig að mér
finnst hún miklu girnilegri
núna,“ segir Helga og brosir.
Breytingarnar áttu að gerast á
þremur dögum en Helga fékk
búðina afhenta á föstudegi og
ætlaði að opna næsta miðviku-
dag. „Það frestaðist hins vegar
svo ég opnaði föstudaginn 13.
júlí,“ segir hún en telur daginn
ekki hafa verið óhappadag í
þessu tilviki því vel gangi með
reksturinn í dag.
Helga segist alls ekkert hafa
haft í bígerð að kaupa sér heila
verslun enda rak hún sjálf nagl-
astúdíó við Strandgötuna í Hafn-
arfirði. „Ég labbaði út í búð í
hádeginu einn daginn til að
kaupa mér samloku og rak nefið
inn í Andorra í leiðinni, bara til
að tékka á hvort búið væri að
selja verslunina. Ég endaði svo
á að gera tilboð í búðina og hús-
næðið og var búin að eignast
þetta allt saman þremur dögum
síðar,“ segir Helga Sæunn og
hlær.
Ætlaði ekki að kaupa búð
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Tjáðu þig!
Viltu sýn’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Stæsta
bloggsamfélagið!
Yfir 150.000
notendur!