Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 40
6. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR4 fréttablaðið norðurland
Heiðursmaðurinn Ragnar Hermannsson á Húsa-
vík á sér marga minni menn og konur, sem þó
er allt heiðursfólk líka.
„Ég byrjaði að tálga þessa trékalla eftir að ég varð
sjötugur. Það kom þannig til að ég varð svona smátt
og smátt að verða gamall og ef ég ætti eftir að fara
inn á eitthvert hæli þá yrði ég ekki minna en vitlaus af
því að gera ekki neitt,“ segir Ragnar þar sem hann er
á göngu í húsvísku landslagi og hressandi haustgolu.
„Í sumar hef ég ekkert tálgað. Ég nenni ekki að
vera inni. Mér heyrist að það sé aðalatriðið þegar
menn eru gamlir að hafa það gott og gera ekki neitt,
þótt það gangi ekki inn í kollinn á mér. Ég vil hafa það
gott og hafa eitthvað fyrir stafni,“ segir Ragnar sem
sýnt hefur útskurð sinn á Safnasafninu á Svalbarðs-
strönd, þar sem enn má sjá hluta verka hans.
„Ég hafði aldrei lært neitt í tréskurði en fór á nám-
skeið í Reykjavík hjá Hannesi Flosasyni, þeim heið-
ursmanni. Þá skar ég í dálítinn tíma svokallaðan flat-
an skurð, eða myndir á veggi. Svo fékk ég nú leið á því
og fór í þetta því ég vildi tálga eftir eigin höfði,“ segir
Ragnar og hefur ekki tölu á þeim körlum og kerling-
um sem þeir hnífurinn hafa skapað.
„Þetta er erfitt verk að því leyti að ég kann ekki að
teikna eða gera nokkurn skapaðan hlut. Ég tek bara
spýtu, tálga hana og annaðhvort hirði hana eða hendi
henni. Ég hef alltaf sagt að verkin séu annarra að
dæma því fyrir mér er þetta bara misjafnlega útfært
spýtnarusl,“ segir Ragnar sem orðinn er 85 ára gam-
all og saumar einnig út púða til dægrastyttingar.
„Ég mála alla þessa spýtukalla og hef selt einn
og einn. Það virðist vera hægt að selja þetta en ég
er ekki tilbúinn til þess í meira mæli,“ segir Ragnar
sem er ættaður frá Flatey á Skjálfanda og var allan
sinn starfsaldur til sjós.
„Það fer fjarri því að mér finnist gaman að vera
gamall. Maður labbar innan um vinnandi fólk og mér
bara leiðist það. Ég vildi miklu frekar fá að vera með
og taka þátt, en reyni í staðinn að flýja það og vera
ekki fyrir.“ thordis@frettabladid.is
Tálgar misjafnlega
útfært spýtnarusl
Listamaðurinn Ragnar Hermannsson á Húsavík með falleg
hjón sem hann skapaði úr því sem hann kallar spýtnarusl.
FRÉTTABLAÐIÐ/MAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR
Í hlaði Jólagarðsins í Eyjafirði
stendur óskabrunnur ófæddra
barna.
Það er blátt áfram töfrandi að
ganga að þessum fagra mósaík-
brunni í fagurri náttúru Eyjafjarð-
ar, en hann á sér heillandi sögu og
hefur orðið mörgum að barnaláni.
„Þetta leiddi eitt af öðru,“ segir
Benedikt Ingi Grétarsson, eigandi
Jólagarðsins. „Við hjónin feng-
um gefna stóra ösp sem lá heima
í túni. Okkur datt í hug að reisa
hana upp og hefja til vegs sem
klifurtré, en þá kom upp sú hug-
renning að ekki auðnaðist öllum
að eignast börn og oft gengi brös-
uglega að koma þeim undir. Samt
eignuðust allir börn í einhverjum,
þótt þau væru ekki manns eigin
af holdi og blóði. Og upp frá þess-
um vangaveltum fannst okkur að
ekki sakaði ef allir kæmu saman á
einum stað og óskuðu öðrum vel-
farnaðar og barnaláns; hvort sem
það væru ömmur, afar, systkini,
vinir eða væntanlegir foreldrar,“
segir Benedikt um tilurð óska-
brunns ófæddra barna sem vígður
var árið 2000.
Það var listakonan Heiðdís Pét-
ursdóttir sem skapaði óskabrunn-
inn sjálfan, sem er mósaíkklædd-
ur og forkunnarfagur fontur.
„Öspina ákváðum við að mála
hvíta, sem er litur hreinleika og
sakleysis. Á greinarnar settum
við stjörnur sem tákn um ófædd
börnin, og settum hjá óskabrunn-
inum. Svo koma þeir sem koma
vilja, eiga stund við óskabrunn-
inn, gára vatnið og óska sjálfum
sér eða öðrum barns og velfarnað-
ar, en bæði er hægt að óska þeim
sem þrá barn að verða með barni,
sem og þeim börnum sem komin
eru undir góðrar ferðar í þenn-
an heim,“ segir Benedikt, sem
fékk séra Hannes Örn Blandon,
prófast í Laugalandsprestakalli í
Eyjafirði, til að blessa óskabrunn
ófæddra barna.
„Daginn sem við völdum til
blessunar hellirigndi í Eyjafirði,
en um leið og séra Hannes renndi í
hlað stytti upp og fór ekki að rigna
aftur fyrr en hann hafði lokið
verki sínu og gætt sér á kleinum
og heitu súkkulaði í garðinum.
Okkur fannst það öllum tákn um
að brunnurinn nyti Guðs blessun-
ar, en hingað hafa komið margar
ömmur og afar til að þakka fyrir
þegar óskirnar hafa ræst,“ segir
Benedikt, en bæði Íslendingar
og útlendingar leggja leið sína að
þessum einstaka brunni sem færir
barnalán yfir þá sem bera fram
óskir sínar.
„Hugmyndin var sú að bera
fram hljóða ósk og gára yfirborð
vatnsins sem geymir óskina í
gæfubrunni framtíðar. Brunninn
tileinkaði ég systur minni sem gat
ekki eignast börn, en fór að eign-
ast þau eftir óskir við brunninn,
en það átti einnig við um Heið-
dísi, listakonu og skapara brunns-
ins. Börn sem heimsækja Jóla-
garðinn eiga svo til að misskilja
tilgang brunnsins því hann kallast
óskabrunnur, en það er allt í lagi
því börn hugsa svo fallega,“ segir
Benedikt brosmildur.
thordis@frettabladid.is
Barnalán óskast
Óskabrunnur ófæddra barna.
Óskabrunnur
ófæddra barna
Brunnur þessi mun geyma
óskir
tileinkaðar ófæddum börnum.
Lítið barn er ekki sjálfgefinn
hluti í lífi hverrar manneskju.
Stundum þurfum við að bíða
lengi
og ef til vill eru börnin í okkar
lífi
ekki okkar eigin börn,
heldur litlar hendur sem
læðast í lófa okkar
og verða þannig gleði lífsins.
Á meðan við bíðum eigum við
ótal góðar óskir.
Innan stundar mun lítið barn
fæðast í þennan heim
og því munu fylgja hlýjar
hugsanir okkar allra.
Alke
smábílar
til ýmissa verka
Alke bílarnir fást
í mörgum útfærslum
Höldur á Akureyri er söluaðili V&Þ á Norðurlandi, sími 461 6061
`
`