Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 56
Tilkynningar um merkisatburði má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Ölfusárbrú fellur ásamt bílum„Í vinahópi hef ég alltaf verið
hávær, fyndin og málgefin, en
um leið og ég stíg út úr þeim
þrönga hópi verð ég afar þögul
og sjálfshugul. Ég kæri mig ekki
um að standa í sviðsljósinu.“
Hátíðlegur, glaðsinna andi svífur yfir
akureyrskum vötnum þessa dagana og
ekki að ósekju því stolt bæjarins, Há-
skólinn á Akureyri, stóð á tvítugu í gær.
Af því tilefni var blásið til fjögurra
daga afmælishátíðahalda.
„Háskólinn á Akureyri byrjaði form-
lega hinn 5. september 1987. Hann var
stofnaður alveg frá grunni og er ekki
byggður á grundvelli annarra stofn-
ana,“ segir Jóna Jónsdóttir, forstöðu-
maður markaðs- og kynningarsviðs Há-
skólans á Akureyri.
„Fyrsta árið voru við skólann þrjátíu
nemendur og fjórir fastráðnir starfs-
menn sem kenndu í tveimur stofum
Íþróttahallarinnar. Menntafólki fyrir
sunnan þótti þetta heldur mikil bjart-
sýni en strax var mikill stórhugur í
mönnum að byggja upp mikils metinn
háskóla,“ segir Jóna, og víst hefur af-
mælisbarnið vaxið og dafnað á sínum
fyrstu tuttugu árum.
„Í dag eru nemendur um 1.400 tals-
ins og starfsmenn komnir vel á annað
hundrað. Húsnæði er allt á fallegu há-
skólasvæði og með næsta byggingará-
fanga verður öll starfsemi komin á einn
stað, en stúdentagarðarnir fimm eru í
nágrenni við háskólann,“ segir Jóna,
en þumalputtaregla hefur verið sú að
helmingur nemenda komi frá Eyja-
fjarðarsvæðinu meðan sitt hvor fjórð-
ungurinn kemur frá höfuðborgarsvæð-
inu og landsbyggðinni.
„Til viðbótar við staðnám á Akureyri
er stór hópur fjarnema víða um land
sem leggur stund á leik- og grunnskóla-
kennarafræði, auðlindagreinar, hjúkr-
un og viðskiptafræði,“ segir Jóna þar
sem hún stendur við Íslandsklukkuna.
„Nemendur og starfsfólk fá gómsæt-
ar hnallþórur með afmæliskaffinu og
í tilefni afmælisins stendur margt til.
Við skrifum undir samning um sam-
starf við Sjávarlíftæknisetrið BioP-
ol á Skagaströnd, HA-bandið gefur út
geisladisk, við tilkynnum úrslit í teikni-
samkeppni grunnskólanemenda á Ís-
landsklukkunni, hefjum málstofuröð
heilbrigðisdeildar og verðum með tón-
listaruppákomu í kaffiteríunni,“ segir
Jóna. Á laugardag verður hápunkt-
ur afmælishaldanna þegar boðsgest-
um verður boðið til stórveislu af fínni
gerðinni.
„Þar verður mikið um dýrðir og
meðal annars verður Íslandsklukkunni
hringt tuttugu sinnum af listamannin-
um Kristni E. Hrafnssyni, sem lætur
bjölluna syngja eitt högg fyrir hvert
afmælisár háskólans,“ segir Jóna, en
afslöppuð gleðistemmning einkennir
skólalífið þessa fjóra afmælisdaga.
„Nú er háskólinn orðinn full-
vaxta og í stakk búinn fyrir framtíð-
ina. Þriðjungur bæjarbúa starfar á
einn eða annan hátt við skólastofn-
anir í bænum, og ýmislegt sem mér
þykir einkennandi fyrir afmælisbarn-
ið sjálft. Í því býr kraftur frumkvöð-
ulsins, sem rekja má til upprunans, og
þann kraft finnur maður bæði í starfs-
fólki og nemendum skólans. Menn eru
óhræddir við að takast á við ný verk-
efni og læra af mistökunum. Þeir eru
sáttir við að sumt gengur upp og annað
ekki, en það einkennir frumkvöðla.
Hér er einnig heimilislega notalegt
að vera. Menn ganga að næsta manni
og heilsast, og við munum halda í það
andrúm eins lengi og hægt er.“
Hjartans þakkir færum við þeim fjölmörgu
sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærs eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa
Rolfs Johansen
Kristín Ásgeirsdóttir Johansen
Agnes Johansen
Thulin Johansen Guðrún Þorleifsdóttir
Svava Þorgerður Johansen Björn Sveinbjörnsson
Berglind Johansen Pétur Albert Haraldsson
Ásgeir Johansen Aki Ishise Johansen
Kristín Johansen Halldór Harðarson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Valgerður Hanna
Jóhannsdóttir
Sporhömrum 6, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
þriðjudaginn 28. ágúst. Jarðarför hennar fer fram frá
Grafarvogskrikju föstudaginn 7. september kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda
Flosi Óskarsson
Gylfi Óskarsson Sigríður Konráðsdóttir
MOSAIK
75 ára afmæli
Sjöfn
Halldórsdóttir
frá Þverholtum
Í tilefni af afmælinu tekur Sjöfn á móti
gestum í Lyngbrekku laugardaginn 8. sept.
kl. 20.00 Blóm og kransar afþakkaðir
en frjáls framlög í spari-baukinn falla í
góðan jarðveg. Pizzupartí fyrir börnin og
unglingana heima hjá ömmunni á sunnudag
frá kl. 14.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Svava Ólafsdóttir
frá Hruna, Klausturhólum 2
Kirkjubæjarklaustri,
lést á Landspítalanum Fossvogi 2. september. Hún
verður jarðsungin frá Prestbakkakirkju föstudaginn
7. september klukkan 14.00.
Andrés S. Einarsson og fjölskylda
Minningarathöfn um manninn minn,
föður okkar, stjúpa og afa,
Per Key Kristiansen
Sólvallagötu 6
sem lést í Kaupmannahöfn 17. júlí sl., verður haldin
í Dómkirkjunni föstudaginn 7. september kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á MS-félag
Íslands eða önnur líknarfélög.
Guðrún Magnúsdóttir
Eske Key Kristiansen Uffe Key Kristiansen
Lára Kristín Traustadóttir Þorvaldur Sigurðsson
Magnús Björn Traustason Rakel Snædahl
og barnabörn.
Ástkær systir mín, mágkona og frænka,
Guðlaug Torfadóttir
líffræðingur, Hofakri 3, Garðabæ,
lést á Krabbameinsdeild Landspítalans þriðjudaginn
4. september. Útför verður auglýst síðar.
Kristín S. Gilson Henry L. Gilson
Valgerður Jónsdóttir Guðni Hannesson
Kristbjörn Jónsson