Fréttablaðið - 06.09.2007, Side 65

Fréttablaðið - 06.09.2007, Side 65
Stjórnendur teiknimyndafyrir- tækisins Pixar eru afar ósáttir við yfirmenn Walt Disney. Þrátt fyrir að nýjasta afurðin Ratatouille hafi náð 200 milljóna dollara markinu um helgina telja þeir að forsvars- menn Disney hafi ekki staðið sig í stykkinu við að kynna myndina. Óttast Pixar að rottukokkurinn Remi nái ekki að komast inn á topp fimm listann þegar árið er liðið en Toy Story, A Bug‘s Life, Finding Nemo og The Incredibles hafa allar náð því. Samkvæmt fréttasíðunni imdb. com er talið líklegt að Ratatouille komist ekki einu sinni inn á lista yfir tíu mest sóttu myndir ársins en það væri óneitanlega mikill skellur fyrir konunga teiknimynd- anna. Eftir því sem heimildir síð- unnar herma hefur markaðsdeild Disney viðurkennt að rotta í eldhúsi hafi ein- faldlega verið erfitt viðfangs- efni. Pixar óánægt Kvikmyndin Veðramót verður frum-sýnd á morgun en þetta er nýjasta afurð Guðnýjar Halldórsdóttur. Hún er byggð að einhverju leyti á reynslu leikstjórans sjálfs. Veðramót segir frá þremur ungmennum sem ákveða að fylgja hugsjónum sínum, flytjast vestur á land og taka að sér stjórnun á vist- heimili fyrir ungt fólk sem hefur komist í kast við lögin eða átt erfitt heima fyrir. Þrátt fyrir að ungmennin þrjú séu öll að vilja gerð þá snýst þessi hugsjónadvöl þeirra upp í hreinustu martröð þar sem sifjaspell og ofbeldi liggur í loftinu Guðný Halldórsdóttir fór fyrir tæpum þrjá- tíu árum vestur á Breiðavík og vann þar á betrunarheimili fyrir vandræðaunglinga. „Myndin er samt skáldsaga þótt hún sé að einhverju leyti bygggð á minni reynslu,“ segir Guðný Halldórsdóttir. „Ég var í Breiða- vík þegar heimilið var opnað fyrir stúlkur en skildi aldrei af hverju þær voru þarna þá fyrr en tuttugu og fimm árum seinna,“ bætir hún við. Veðramót er spennusaga og örlagamynd, að sögn Guðnýjar, en hún er líka harmsaga. „Þetta eru eiginlega mín viðbrögð, mitt fram- lag til umræðunnar um sifjaspell. Og virðing- arvottur fyrir samtök á borð við Stígamót og Blátt áfram sem hafa unnið þrotlaust starf á þessum vettvangi,“ segir Guðný. „Þessa ónáttúru verðum við að stöðva og þetta er mitt framlag í þá baráttu,“ segir hún. Margir ungir og óreyndir leikarar stíga þarna sín fyrstu skref fyrir framan kvikmynda- tökuvélina og Guðný segir það hafa verið afskaplega gaman og gefandi að vinna með þeim. „Algjörlega óvart voru síðan mörg af þeim börn leikstjóra þannig að þau höfðu einhverja smá innsýn inn í þennan heim,“ útskýrir Guðný, en með helstu hlutverk fara þeir Hilmir Snær Guðnason og Atli Rafn Sigurðarson. Þeir eru hins vegar dyggilega studd- ir af ungviði íslenskrar leiklistar, þeim Baltasar Breka, Arnmundar Ernst og Tinnu Hrafns- dóttur. Til gamans má geta að frænka Tinnu og nafna hennar, Þjóð- leikhússtjórinn Tinna Gunnlaugsdóttir, leikur einmitt persónu frænku sinnar þegar hún er eldri. Veðramót er fimmta kvikmynd Guðnýjar en hún hefur áður gert Kristnihald undir Jökli, Karlakórinn Heklu, Ungfrúna góðu og Húsið og nú síðast Stellu í framboði. Um tónlist- ina sér Ragnhildur Gísladóttir en meðal þeirra sem hefja upp raust sína er Hilmir Snær. Veðramót er frekar ódýr mynd á íslenskan mælikvarða. Hún kostaði „aðeins“ 113 milljónir og var að mestu leyti tekinn upp í upptökuveri sem byggt var í Sætúni og eru flestar senur kvikmyndarinnar þaðan.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.