Fréttablaðið - 06.09.2007, Qupperneq 69
Bandaríski leikarinn og tón-
listarmaðurinn Leon leikur
á móti íslensku R&B-söng-
konunni Kenyu í myndbandi
hennar við lagið This Is
Real. Tökur á myndbandinu
standa yfir hér á landi og er
þar að sjálfsögðu notast við
íslenska náttúrufegurð.
Leon, sem starfrækir hljómsveit-
ina Leon and the Peoples, hefur
leikið í þekktum myndum á borð
við Cliffhanger, Waiting To Exhale
og Cool Runnings og er Kenya
vitaskuld hæstánægð með að
starfa með honum. „Umboðsmað-
urinn minn úti er að vinna með
honum og við ákváðum að leiða
hesta okkar saman í þessu verk-
efni,“ segir Kenya. Hljómsveit
hans spilaði einnig undir hjá
Kenyu á tónleikum hennar í New
York á dögunum. Voru það fyrstu
tónleikar hennar þar í borg og
gengu þeir glimrandi vel að henn-
ar sögn.
Upptökum á fyrstu plötu
Kenyu er að ljúka og
kemur hún út fyrir
jólin. Næstu tónleik-
ar hennar verða á
Iceland Airwaves-
hátíðinni en þang-
að til verður hún
önnum kafin við
gerð nýju plöt-
unnar og fleiri
myndbanda
tengdum henni.
Íslandsvinurinn Jude Law var
handtekinn í London á þriðjudag
eftir átök við paparazzi-ljósmynd-
ara. Átökin voru skilgreind sem
„árás“ á ljósmyndarann, en leikar-
inn kunni reyndi að hrifsa mynda-
vélina af honum.
Atvik þetta átti sér stað fyrir
utan heimili Law í Maida Vale í
Vestur-London. Jude mætti síðar á
lögreglustöð þar sem hann var
formlega handtekinn. Fingraför
leikarans voru tekin og ákveðið
var að málið yrði tekið fyrir í
næsta mánuði. Jude neitar sök.
Hvorki hann né talsmaður hans
vildu tjá sig um málið við fjöl-
miðla í gær.
Jude handtekinn
Leikarinn gamalreyndi Sir Michael Caine hlaut verðlaun karlatímarits-
ins GQ í Bretlandi fyrir æviframlag sitt til leiklistarinnar. Sir Michael,
sem er 74 ára, hlaut verðlaunin fyrir hlutverk sín í myndum á borð við
The Italian Job og Alfie.
Simon Pegg, sem lék í Hot Fuzz, var valinn
leikari ársins og James Blunt sólótónlistarmað-
ur ársins. Verðlaunaafhendingin fór fram í
konunglega óperuhúsinu í Covent Garden í
London og var Sir Elton John kynnir kvöldsins.
Rapparinn Kanye West var kjörinn besti
erlendi listamaðurinn og Kaiser Chiefs var
valin hljómsveit ársins. Best klæddi maðurinn
var Johnny Borrell úr hljómsveitinni Raz-
orlight.
Caine heiðraður
Námsmannaþjónusta Sparisjóðsins
Við hjá Sparisjóðnum viljum vera í góðu sambandi við viðskiptavini okkar.
Félagar í Námsmannaþjónustunni njóta persónulegrar þjónustu sem er sniðin
að þörfum hvers og eins, auk góðra kjara og spennandi sértilboða. Við erum
alltaf til í að ræða málin – ef sambandið er gott, gengur allt annað betur líka.
Skoðaðu málið betur á www.spar.is til þess að komast í gott samband!
Kominn í fast s
amband
LOKSINS
SÁTTUR!