Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 42
Á Ísmóti 2007 var keppt um titil-
inn „Skartgripur ársins“ á vegum
Félags íslenskra gullsmiða í sam-
vinnu við SI og aðildarfélög þess
í þjónustuiðngreinum. Auk keppn-
innar kynnti félagið starfsemi sína
í Höllinni og tók vel á móti gestum
en félagsmenn þess er að finna á
vefnum Meistarinn.is.
Alls 38 skartgripir bárust í
keppnina. Stigagjöf dómnefndar
og niðurstaða úr símakosningu al-
mennings réði úrslitum á mótinu
en eftirtaldir meistarar og verk
þeirra voru tilnefnd til verðlauna:
Í flokknum
„Skartgripur ársins fyrir dömur“:
• Skartgripur nr. 139 - Dýrfinna
Torfadóttir gullsmíðameistari,
Stillholti Akranesi
• Skartgripur nr. 155 - Páll Sveins-
son gullsmíðameistari, Jóni &
Óskari, Reykjavík
Í flokknum
„Skartgripur ársins fyrir herra“:
• Skartgripur nr. 136 - Dýrfinna
Torfadóttir gullsmíðameistari,
Stillholti Akranesi
• Skartgripur nr. 158 - Kjartan Örn
Kjartansson gullsmíðameistari,
OR hlutagerðarfélagi, Reykjavík
Dýrfinna Torfadóttir gullsmíða-
meistari kom, sá og sigraði í
báðum flokkum fyrir gripi sína nr.
136 og nr. 139 og hlaut fyrir vikið
veglegar verðlaunastyttur Ísmóts
2007. Það var Halla Bogadóttir,
gullsmiður og fulltrúi Félags ís-
lenskra gullsmiða, sem kynnti úr-
slitin á hátíðarkvöldinu.
13. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR10 fréttablaðið ísmót 2007
Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður bar sigur úr býtum með
skartgrip ársins fyrir dömur og herra á Ísmóti 2007.
„Mér fannst þessi keppni mjög góð og þeir voru með mjög góða
fagdómara í keppninni en það finnst mér skipta miklu máli,” segir
Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður um Ísmót 2007, en hún hefur tekið
þátt í fjölda sýninga, bæði einkasýningum og samsýningum, og
hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar.
Sjálf segist hún vera keppnismanneskja og stefni líkt og aðrir á
sigur. „Maður keppti nú í íþróttum hérna áður fyrr og fer alltaf með
því hugarfari að sigra. Samt bjóst ég ekki við þessu því það er svo
mikið af góðum gullsmiðum. Ég var búin að setja tvo aðra í fyrsta
sætið.“
Þá finnst Dýrfinnu ekki hvað síst
mikilvægt að gullsmiður utan af landi
skuli hafa unnið til verðlauna, þar sem
landsbyggðin vilji oft verða útundan í
keppnum sem þessum. Sjálf fæddist
hún í Reykjavík en ólst upp á Ísafirði
og bjó þar eftir að námi lauk, þar til
hún fluttist til Akraness haustið 2001.
En hvernig skyldi hugmyndin að
kvenskartgripnum hafa kviknað?
„Hugmyndin að baki sigurgripnum
tengist heitinu á honum sem er „Vertu
þú sjálf“. Skartgripurinn er breyti-
legur og þú getur breytt honum úr
hálsmeni í hattaprjón, bindisnælu eða
hvað sem þér dettur í hug. Þú getur því verið þú sjálf og það fer
bara eftir þínu eigin hugmyndaflugi hvernig þú notar hann. Skart-
gripurinn hæfir því öllum á öllum aldri.“
Að sögn Dýrfinnu er herraskartið líka breytilegt þar sem bindis-
nælan er með segli svo hún skemmir ekki flíkina og hægt er að færa
hana yfir á hattinn, jakkalafið og fleira.
„Næst á dagskrá er að fjöldaframleiða sigurgripina svo þeir
verða brátt fáanlegir. Ég tek þó fram að enginn gripur er eins þar
sem enginn hugsar eins.“
Margt fleira er á döfinni. Dýrfinna kemur til með að flytja stofu
sína frá safnasvæðinu að Görðum yfir í Stillholt á Akranesi. Stofuna
opnar hún ásamt Finni Þórðarsyni 29. september, sem verður meira
í líkingu við gallerí í verslun. Á næsta ári heldur hún síðan sýning-
una 55° norður í Sívala turninum í Kaupmannahöfn.
hrefna@frettabladid.is
Úr hálsmeni í
hattaprjón
Skartgripur ársins
– fyrir dömur og herra
Herraskartgripur nr. 158. Karlkyns kúlu-
hringur í silfri. Höfundur Kjartan Örn
Kjartansson gullsmíðameistari. Stofa OR
hlutagerðarfélag.
MYND/UNNUR ÓLÖF MATTHÍASDÓTTIR
Sigurskartgripur Dýrfinnu
fyrir dömur kallast Vertu
þú sjálf eftir þínu höfðu
– skapandi kvenskart.
Sigurskartgripur
Dýrfinnu fyrir herra
kallast fjara og skír-
skotar til fjöru Íslands
og hreinleika sjávar.
Dömuskartgripur nr. 155. Hvítagulls-
hringur. Höfundur Páll Sveinsson
gullsmíðameistari. Stofa Jón & Óskar
Dýrfinna Torfadóttir