Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 56
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Ég get sagt það í einlægni
að þessi iðnaður hefur ekki
gert mig óörugga með útlit-
ið, nema kannski þyngdina.
Ég vona að fötin mín end-
urspegli það. Þau eru gerð
með vellíðan í huga.“
Bítlarnir gefa út Yesterday
Jón Þórarinsson tónskáld, sem fagnar níræðisafmæli í dag,
er nýfluttur með konu sinni, Sigurjónu Jakobsdóttur, úr
eldrimannablokk á Aflagranda á 2. hæð í Hlíðunum. „Að ganga
stiga er góð leikfimi,“ segja þau hressilega en viðurkenna að
nábýli við börn og barnabörn hafi haft áhrif á íbúðarvalið. Inn-
andyra er allt eins og hjá ungu fólki, opið og stílhreint og í einu
horni stofunnar er lestrarskjár með stórum tölum. „Ég er að
dunda mér við að ráða sudoku-þrautir,“ segir Jón og skýrir
stafastærðina með því að sjónin sé orðin döpur.
„Ég missti sjónina hastarlega fyrir tveimur árum,“ segir
hann. „Var austur á landi í ágúst 2005 og keyrði þar um allt,
upp að Kárahnjúkum og niður á firði. En í lok september lagði
ég inn ökuskírteinið því þá sá ég ekki orðið mun á lit götuljós-
anna.“ Bætir síðan við: „Það eru engin tímamót að eiga afmæli
en það eru tímamót að missa sjónina og þurfa að læra margt
upp á nýtt og breyta öðru.“
Jón fæddist austur á Héraði og ólst upp á Seyðisfirði. Fimmt-
án ára fór hann í Menntaskólann á Akureyri en eftir stúdents-
próf 1937 lá leiðin suður í Tónlistarskólann og til starfa hjá
Ríkisútvarpinu. Í ársbyrjun 1944 fór hann í frekara tónlistar-
nám til Bandaríkjanna og var við Yale-háskóla í fjögur ár hjá
þýskum kennara, Paul Hindemith.
Enn vinnur Jón einhverja stund flesta daga á Þjóðskjala-
safninu. Hann hefur fengist við ritun íslenskrar tónlistarsögu
undanfarin ár og söfnun heimilda til hennar. Sjálfur hefur
hann líka mótað þá sögu með eigin verkum. Fyrir utan að
semja þekkt lög eins og Fuglinn í fjörunni á hann að baki störf
á tónlistardeild útvarpsins og sem frumkvöðull og síðar fram-
kvæmdastjóri Sinfóníunnar auk þess að kenna í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík. Á árunum 1968-79 var hann dagskrár-
stjóri í lista-og skemmtideild sjónvarpsins og þegar rifjað er
upp hversu íslensk dagskrárgerð var þá með miklum blóma
samsinnir hann því. „Við vorum með heilmikið af leiknu efni
og skemmtiþætti alls konar enda fullt af ungu og áhugasömu
fólki sem vann baki brotnu af ótrúlegri bjartsýni. Þetta var
nýstárlegur vettvangur og ég tel að þarna hafi hið raunveru-
lega vor í íslenskri kvikmyndagerð hafist.“
Jón ætlar að taka á móti gestum sem vilja heilsa upp á
hann í Sunnusalnum á Hótel Sögu í tilefni afmælisins. Þar
verða börnin hans sjö og barnabörnin en margir skólafélag-
ar og samferðamenn hafa helst úr lestinni. „Mér hefur stund-
um fundist upp á síðkastið að það séu allir vinir mínir horfnir
af þessum heimi,“ segir hann. „Meira að segja ýmsir sem ég
vann með hjá sjónvarpinu þótt ég væri með þeim elstu þegar
ég hóf störf þar.“
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Jónsdóttir
áður til heimilis í Víðilundi 13, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn
17. september kl. 13.30.
Jón Trausti Guðjónsson Þórdís Guðmundsdóttir
Gunnsteinn Guðjónsson
Anna Kristín Guðjónsdóttir Jón Gísli Grétarsson
Jóhann Guðjónsson
Magnús Guðjónsson Sigríður Jóhannesdóttir
Ingvar Guðjónsson
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær systir mín, mágkona og frænka,
Guðlaug Torfadóttir
líffræðingur, Hofakri 3, Garðabæ,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudag-
inn 13. september kl. 15.
Kristín S. Gilson Henry L. Gilson
Valgerður Jónsdóttir Guðni Hannesson
Kristbjörn Jónsson
90 ára afmæli
Jón Þórarinsson
tónskáld.
Af því tilefni mun hann taka á móti
gestum í Sunnusal Hótel Sögu, á
afmælisdaginn, fimmtudaginn
13. september, á milli
kl. 17.00 og 19.00.
Ástkær móðursystir okkar,
Sigríður Ólafsdóttir,
Dvergasteini, síðast til heimilis á
dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
lést 7. september. Útförin fer fram frá Akraneskirkju
föstudaginn 14. september kl. 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elín Hannesdóttir,
Helgi Hannesson,
Guðmundur Þór Hannesson.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigþrúður Pálsdóttir
ljósmóðir, Frá Eyjum í Kaldrananeshreppi,
Hraunvangi 3, Hafnarfirði,
lést sunnudaginn 9. september. Jarðarförin fer fram frá
Víðistaðakirkju föstudaginn 14. september kl. 13.00.
Halldór Hjálmarsson,
Steinunn Halldórsdóttir, Einar Steingrímsson,
Hjálmar Halldórsson,
Rún Halldórsdóttir,
Páll Halldórsson, Stella Óladóttir,
Örn Halldórsson, Ingibjörg Bryndís Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Erna Halldórsdóttir
Kolbeins
kennari, síðast til heimilis á
Hjúkrunarheimilinu Skjóli,
sem lést að morgni 5. september, verður jarðsungin frá
Langholtskirkju föstudaginn 14. september kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á FAAS, Félag
aðstandenda Alzheimersjúklinga.
Halldór Torfason Védís Stefánsdóttir
Ragnheiður Torfadóttir Gunnar Ingi Hjartarson
Lára Torfadóttir Hafsteinn Pálsson
Ásthildur Gyða Torfadóttir Kristberg Tómasson
Erna Torfadóttir Geir Sæmundsson
ömmu- og langömmubörn.
MOSAIK
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Skúli Guðnason
Grænumörk 2, Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn
15. september kl. 14.00.
Valgerður Guðnadóttir og fjölskylda.
Fallegir legsteinar
á góðu verði