Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 41
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 9 Óhætt er að segja að Berglind Ómarsdóttir, klæðskeri hjá Kjól- um og klæði, hafi ekki farið tómhent heim af Ísmóti 2007, þar sem hún uppskar tvenn verðlaun og eina viðurkenningu. Minnstu munaði þó að hún yrði af öllu saman. „Ég er alsæl með þetta,“ segir Berglind hress í bragði, sem vann í flokkunum Klæðskeri ársins og Tískuteymi ársins, ásamt því að fá viðurkenningu úr minningarsjóði Indriða Guðmunds- sonar klæðskera fyrir bestan árangur á Ísmóti 2007. „Ég átti alls ekki von á sigrinum, þótt mér hafi óneitanlega þótt skemmtilegt að vinna.“ Berglind viðurkennir þó að hún hafi allt fram á síðustu stundu verið í vafa um hvort hún ætti að vera með á mótinu. „Ég kom frá Bandaríkjunum þremur dögum áður en skila átti fötunum fyrir myndatöku og ætlaði að hætta við, þar sem ég var ekki byrjuð. Svo lá ég andvaka alla nóttina vegna valkvíða. Undir morgun hafði ég hins vegar ákveðið að vera með og hellti mér út í þetta.“ Systir Berglindar brá sér í hlutverk fyrirsætu og henni tókst á síðustu stundu að safna saman mannskap í tískuteymið. Þá var hins vegar svo lítill tími til stefnu að sækja varð um eins dags skilafrest. „Ég sé aldeilis ekki eftir að hafa tekið þátt í þessu,“ segir Berg- lind. „Miðað við allt sem gekk á varð sigurinn einhvern veginn enn meiri. Svo þótti mér vænt um viðurkenninguna, þar sem Indriði kenndi mér á sínum tíma.“ - rve Ætlaði að hætta við Berglind var í vafa um hvort hún ætti að vera með á mótinu en sló til og stýrði tískuteyminu til sigurs. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR ÁRNASON „Keppnin var einstaklega glæsileg í alla staði og ekki síður skemmtileg. Við vonuð- um að okkur gengi vel en áttum alls ekki von á sigri. Þetta var alveg æðislegt.“ - Magnús Þór Reynisson, hárgreiðslumaður hjá Jóa og félögum. „Við stukkum á þetta og einhvern veginn gekk allt saman upp. Ég er ánægð með sigurinn og sé ekki eftir að hafa tekið þátt í þessu. Fyrir mitt leyti er þetta líka góð kynning þar sem ég var að opna nýja stofu.“ - Berglind Alfreðsdóttir, snyrtimeistari og nagla- fræðingur hjá Comfort snyrtistofu. „Mér finnst þetta vera frábært teymi og heildarmyndin mjög góð.“ - Helga Jónsdóttir gullsmiður, Gullkúnst Helgu. „Þetta er náttúrlega allt öðruvísi en það sem ég fæst vanalega við, krafðist ekki grettna eða brandara til að fá börn til að brosa. En svo vill til að formaður Ljós- myndarafélagsins er eigandi stofunnar og hann plataði mig til að aðstoða Berg- lindi. Sigurinn var góður en kom á óvart, sérstaklega þar sem teymið okkar var á síðustu stundu.“ - Ágústa Kr. Bjarnadóttir, ljósmyndari hjá Barna- og fjölskylduljósmyndun. Fulltrúar sigurteymis ísmót 2007 fréttablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.